Seðlabankinn
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 47 ›
Sólveig Anna segir ríkisstjórnina ekki getað fríað sig ábyrgð í kjarasamningum Formaður Eflingar segir kjarasamninga ríflega sjötíu prósenta fólks á vinnumarkaði ekki eitthvað verkefni sem stjórnvöld geti ýtt frá sér vegna atburðanna í Grindavík. Samningarnir skipti alla þjóðina máli. Innlent 23.1.2024 19:29
Dapurlegt ef stjórnvöld ætla að draga í land í kjaraviðræðum vegna Grindavíkur Formaður VR segir dapurlegt ef stjórnvöld ætli að notfæra sér stöðuna í Grindavík til að draga í land með aðgerðir í tengslum við nýja kjarasamninga. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins virðist ekki hafa trú á að hægt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Ef Seðlabankinn hækki vexti í byrjun febrúar sé þátttöku verkalýðshreyfingarinnar í þessari tilraun lokið. Innlent 23.1.2024 11:46
Gætum þurft að bíða „töluvert lengur“ eftir fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans Aukin óvissa um niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hætta á þensluhvetjandi áhrifum vegna aðgerða stjórnvalda til að koma til móts við Grindvíkinga veldur því að talsverð bið gæti verið í að peningastefnunefnd Seðlabankans byrjar að lækka vexti, að mati skuldabréfamiðlara. Málefni Grindavíkur munu að líkindum vera í forgangi hjá ríkisstjórninni fremur en myndarleg aðkoma þeirra að kjarasamningum eins og verkalýðshreyfingin hefur gert kröfu um. Innherji 22.1.2024 09:54
Kuldi í kjaraviðræðum vegna deilna um launaskrið Nú þegar hálfur mánuður er þar til friðarskylda rennur út á almennum vinnumarkaði ásamt gildandi skammtímasamningum, er mikil óvissa komin í viðræður breiðfylkingar stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Verkalýðsforystan segir atvinnurekendur vilja minni krónutöluhækkanir vegna launaskriðs þeirra hærra launuðu. Innlent 18.1.2024 12:07
Pallborðið: Hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Viðvarandi verðbólga og vaxtahækkanir, húsnæðiskreppa, stöðugar jarðhræringar, óvinsæl ríkisstjórn, forsetakosningar framundan og hvað er stjórnarandstaðan að hugsa? Heimir Már Pétursson fær leiðtoga stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 í dag. Innlent 17.1.2024 12:34
Spáir hækkun vaxta og segir samninga um hóflegar launahækkanir ekki nóg Það er ekki nóg að semja aðeins um hóflega launahækkanir í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eigi að ná niður verðbólgunni heldur þarf sömuleiðis að fylgja með aðhald í opinberum fjármálum og peningastefnu Seðlabankans, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Hann er svartsýnn á að vextir gangi niður í bráð og spáir því að meginvextir Seðlabankans muni þess í stað hækka um tvær prósentur á árinu samhliða áframhaldandi aukningu í straumi ferðamanna til landsins. Innherji 15.1.2024 14:17
Úrlausnarefni að samræma væntingar á almenna og opinbera vinnumarkaði Forsætisráðherra segir úrlausnarefni að sameina væntingar stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði annars vegar og opinbera markaðnum hins vegar. Hún leyfi sér hins vegar að vera bjartsýn á að takast muni að ganga frá kjarasamningum innan ekki langs tíma. Innlent 15.1.2024 13:21
Kaup erlendra sjóða á ríkisbréfum jukust hröðum skrefum undir lok ársins Erlendir fjárfestar héldu áfram að bæta við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á síðasta mánuði ársins 2023 eftir að hafa sýnt þeim lítinn áhuga um nokkurt skeið þar á undan. Hlutfallsleg eign þeirra á útistandandi ríkisbréfum jókst þannig um meira en helming á fjórða ársfjórðungi samhliða því að gengi krónunnar hafði gefið nokkuð eftir. Innherji 10.1.2024 11:56
Árið 2023 í myndum: Skjálftar á skjálfta ofan Það var titringur víða í samfélaginu árið 2023. Hatrammar kjaradeilur settu mark sitt á árið og tekist var á um hvalveiðar, útlendingamál og valdheimildir lögreglu, svo eitthvað sé nefnt. Innlent 2.1.2024 08:47
Stefán nýr framkvæmdastjóri hjá Seðlabankanum Stefán Guðjohnsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í nóvember. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:36
Söguleg breiðfylking stefnir að því að keyra niður vexti og verðbólgu Ný breiðfylking með um 93 prósent félagsmanna Alþýðusambandsins hefur sameinast um kröfur og markmið í nýjum kjarasamningum til þriggja ára. Formaður Eflingar segir stefnt að hóflegum launahækkunum til að keyra niður vexti og verðbólgu hratt og örugglega. Ef allt gangi að óskum verði hægt að ganga frá tímamóta samningum snemma á næsta ári. Innlent 21.12.2023 18:31
Gleðilegt að verðbólga virðist hjaðna fyrr en spáð var Verðbólga er minni í desember en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og mælist nú 7,7 prósent samkvæmt vísitölu Hagstofunnar. Hagfræðingur Landsbankans segir gleðiefni að verðbólgan virðist vera að hjaðna hraðar en spáð hafði verið. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:27
Breiðfylking að myndast til að ná niður vöxtum og verðbólgu Formaður VR er bjartsýnn á að breiðfylking stéttarfélaga nái að gera sögulega kjarasamninga í janúar sem stuðli að verðbólguhjöðnun og vaxtalækkunum. Það skipti meira máli en nokkrir þúsundkallar til eða frá í launahækkunum. Innlent 20.12.2023 11:54
Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. Innherji 19.12.2023 12:16
Ísland eigi enn inni „töluvert mikið“ af hækkunum á lánshæfismati Nýleg hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá S&P ætti að hafa mikil jákvæð áhrif í för með sér fyrir þjóðarbúið, einkum fjármálakerfið, að sögn seðlabankastjóra sem telur Ísland eiga skilið enn meiri hækkun á lánshæfismatinu. Matsfyrirtækið hefur fram til þessa greint aukna hagræna áhættu hjá bönkunum sem hefur haft áhrif á áætlanir um mögulegt umfram eigið fé þeirra. Innherji 14.12.2023 07:01
Kaup á ríkisbréfum sýnir að háir vextir „eru á radarnum“ hjá erlendum sjóðum Eftir nánast ekkert innflæði í íslensk ríkisskuldabréf um nokkurt skeið hafa erlendir fjárfestar aukið talsvert við eign sína í slíkum bréfum á síðustu tveimur mánuðum. Kaupin koma á sama tíma og gengi krónunnar hafði veikst skarpt sem gefur til kynna að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum getið virkað sem sveiflujafnari fyrir krónuna, að sögn hagfræðings. Innherji 13.12.2023 11:41
Strangt þak á kaupauka hefur leitt til hærri launa í fjármálakerfinu Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað, segja stjórnendur fjármálafyrirtækja. Það eykur rekstraráhættu fyrirtækjanna, einkum þeirra minni. Innherji 12.12.2023 07:01
Mikill árangur að uppgangur síðustu ára hafi ekki valdið ofþenslu í bankakerfinu Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. Innherji 11.12.2023 11:45
Má Seðlabankinn semja sínar reglur? Ég skrifaði fyrir nokkru grein þar sem bent var á að stýrivextir seðlabanka ættu ekki að hafa áhrif á útlánavexti lánastofnana. Til að leggja áherslu á slíkt, hefur alltaf verið grein í lögum um Seðlabanka, þar sem Seðlabanka var veitt heimild til að ákveða sjálfur þá vexti sem settir voru á þau afmörkuðu lán sem honum væri heimilt að veita lánastofnunum. Skoðun 8.12.2023 11:00
Seðlabankastjóri segir óheppilegt að beita vöxtum gegn húsnæðisskorti Seðlabankastjóri fagnar viðbrögðum Reykjavíkurborgar við kröfu verkalýðshreyfingarinnar um að dregið verði úr fyrirhuguðum gjaldskrárhækkunum. Nú skipti öllu máli að samstaða náist um að koma verðbólgunni hratt niður. Innlent 6.12.2023 19:20
Rangt að stýrivaxtahækkanir gagnist bönkum „svakalega“ Það er að einhverju leyti rangt sem fram hefur komið í fjölmiðlum að stýrivaxtahækkanir gagnist bönkum „svakalega“. Þær setja álag á þá. Hærri vextir auka líkur á útlánatöpum og fleira, sagði seðlabankastjóri. Innherji 6.12.2023 12:01
Erlend markaðsfjármögnun bankanna í „góðum farvegi“ og staða þeirra sterk Þrátt fyrir að fjármálaskilyrði hafi farið versnandi eftir því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum þá er skuldahlutfall bæði fyrirtækja og heimila hóflegt sem gefur þeim svigrúm til að mæta hækkandi greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún brýnir sömuleiðis fyrir mikilvægi þess að koma á samskonar umgjörð og kröfum um starfsemi lífeyrissjóða eins og á við um aðra þátttakendur á fjármálamarkaði. Innherji 6.12.2023 09:10
Bein útsending: Gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, munu gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem birt var í morgun á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 6.12.2023 09:01
Fjármálaskilyrði hafa versnað Fjármálaskilyrði á Íslandi hafa versnað samhliða því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum. Aftur á móti er skuldahlutfall bæði heimila og fyrirtækja hóflegt, hvort heldur miðað er við tekjur eða eiginfjárstöðu. Viðskipti innlent 6.12.2023 08:32
Forystufólk ASÍ og SA segir alla þurfa að leggjast á eitt Forystufólk Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins er sammála um að gera eigi nýja langtíma kjarasamninga sem skapi stöðugleika og stuðli að hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta. Nú eru átta vikur þar til gildandi skammtíma kjarasamningar á almennum vinnumarkaði renna út. Innlent 5.12.2023 19:21
Viðskiptajöfnuður jákvæður um 62 milljarða króna Á þriðja ársfjórðungi 2023 var 61,8 milljarða króna afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 60,8 milljörðum króna betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 39,7 milljörðum króna betri en á sama fjórðungi árið 2022 Viðskipti innlent 1.12.2023 10:47
ASÍ kallar ríki og sveitarfélög til ábyrgðar í baráttu við verðbólgu Verkalýðshreyfingin kallar ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til ábyrgðar í baráttunni við verðbólguna. Engin merki væru á lofti um að þessir aðilar ætli að leggja sitt af mörkum, sem geti sett stórt strik í reikninginn fyrir komandi kjarasamninga. Innlent 30.11.2023 19:20
Tugmilljarða tilfærsla lífeyrisréttinda milli kynslóða dæmd ólögleg Fordæmalausar breytingar um síðustu áramót á samþykktum lífeyrissjóða um tilfærslu lífeyrisréttinda milli kynslóða sjóðsfélaga, sem var staðfest af fjármálaráðuneytinu þrátt fyrir neikvæða umsögn fjármálaeftirlits Seðlabankans, hafa núna verið dæmdar ólöglegar samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Fjármálaeftirlitið hafði varað við því að ekki væri lagaheimild fyrir skerðingu réttinda hjá sjóðum sem búa við góðan fjárhag og tryggingastærðfræðingur gagnrýndi ráðstöfunina harðlega og sagði þær brjóta „gróflega á eignarrétti yngri sjóðsfélaga.“ Innherji 30.11.2023 16:05
Horfum fram á veginn „Þar sem niðurstöður kjaraviðræðna velta á samstarfi aðila vinnumarkaðarins ættum við að vera fullfær um að útrýma þessari óvissu.“ Skoðun 24.11.2023 11:31
Læknismeðferð hafnað Það var gleðilegt að Seðlabankinn skyldi ekki hækka vexti í vikunni. Tóninn í seðlabankastjóra var samt þannig að manni leið ekkert betur í veskinu. Á honum var að skilja að óvissa vegna jarðhræringa hafi komið í veg fyrir enn eina stýrivaxtahækkunina. Skoðun 24.11.2023 07:30