Fjarskipti
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 15 ›
Símtöl til Bretlands geta kostað formúu ef menn passa sig ekki Brexit hefur þegar haft ýmis áhrif á Bretland og á þá sem eiga í samskiptum við breska heimsveldið. Ef menn passa sig ekki gæti kostað skildinginn að tala í síma á Bretlandseyjum. Neytendur 24.10.2022 10:49
Jón Skaftason nýr stjórnarformaður Sýnar Jón Skaftason, forsvarsmaður Gavia Invest, er nýr stjórnarformaður Sýnar. Þrír af fimm stjórnarmönnum eru hluti af hópi einkafjárfesta sem hafa eignast stóran hlut í fyrirtækinu. Hluthafafundur fór fram í morgun. Viðskipti innlent 20.10.2022 12:24
Ný stjórn Mílu tekur á sig mynd eftir kaup Ardian Stjórnarmönnum í Mílu hefur fjölgað úr þremur í fimm eftir að eignarhaldið á félaginu færðist í hendur franska sjóðastýringarfélagsins Ardian en á meðal þeirra sem koma inn í stjórn innviðafyrirtækisins er fyrrverandi forstjóri stærsta farsímaturnafélags Ítalíu. Íslensku lífeyrissjóðirnir hafa yfir að ráða einum stjórnarmanni í krafti samtals tíu prósenta eignarhlutar í félaginu. Innherji 20.10.2022 09:32
Forsætisráðuneytið hafnar því að frumvarp dragi úr erlendri fjárfestingu Forsætisráðuneytið hafnar því að áform um lagasetningu sem innleiði rýni á erlendum fjárfestingum vegna þjóðaröryggis hafi skaðleg áhrif á erlenda fjárfestingu hérlendis. Ekki séu til erlendar rannsóknir sem sýni fram á það. Innherji 19.10.2022 16:30
Reynir reynir ekki aftur við stjórnarsæti Reynir Grétarsson, aðaleigandi Gavia Invest, ætlar ekki aftur að bjóða sig fram til stjórnar Sýnar þegar kosið verður á ný í næstu viku. Reynir náði ekki kjöri er kosið var fyrr í haust. Viðskipti innlent 15.10.2022 14:34
Gangi ekki að lykilstarfsmanni sé meinaður aðgangur að tilteknum lykilupplýsingum Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að það gangi ekki að framkvæmdastjóri fjármála fyrirtækisins sé meinaður aðgangur að tilteknum fjárhagslegum og rekstrarlegum upplýsingum fyrirtækisins, líkt og raunin er vegna fjölskyldutengsla framkvæmdastjórans við stjórnarformann Sýnar. Viðskipti innlent 13.10.2022 21:07
Hættir við framboð í stjórn Sýnar vegna afarkosta OR Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar, hefur dregið framboð sitt til stjórnar félagsins til baka. Hún segir ástæðuna vera afarkosti sem OR setti eiginmanni hennar vegna meintra hagsmunaárekstra í tengslum við stjórnarsetu hennar. Viðskipti innlent 13.10.2022 20:26
Síminn braut ekki samkeppnislög með sölu enska boltans Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæða sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport, í svonefndum Heimilispakka. Viðskipti innlent 12.10.2022 10:53
Sýn þurfi að bæta reksturinn „enn meira til að skila ásættanlegri“ afkomu Þótt tekjur Sýnar hafi verið að aukast og stjórnendur séu að ná betri tökum á rekstrarkostnaði fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins þá er ljóst að það þarf að bæta reksturinn „enn meira til að félagið skili ásættanlegri“ afkomu, að sögn hlutabréfagreinenda, sem mælir með því að fjárfestar haldi bréfum sínum í félaginu að svo stöddu. Innherji 11.10.2022 12:01
Tvö dótturfélög Orkuveitunnar ætla að sækja 50 milljarða í nýtt hlutafé Tvö dótturfélög Orkuveitu Reykjavíkur, Ljósleiðarinn og Carbfix, áforma að sækja sér samanlagt um 50 milljarða króna í nýtt hlutafé á næsta ári til að standa undir þeim miklu fjárfestingum sem eru boðaðar. Áætlanir gera ráð fyrir að sú hlutafjáraukning verði að minnsta kosti að hluta til með aðkomu annarra fjárfesta en OR. Innherji 3.10.2022 17:00
Stjórn Símans vill greiða nær allt söluandvirði Mílu út til hluthafa Á hluthafafundi sem stjórn Símans hefur boðið til verður lögð fram tillaga um lækkun hlutafjár félagsins með greiðslu til hluthafa upp á 31,5 milljarða króna, sem nánast allt reiðuféð sem fjarskiptafélagið fékk fyrir söluna á Mílu. Jafnframt er til skoðunar að selja eða greiða út til hluthafa 17,5 milljarða króna skuldabréf sem var hluti af sölunni. Þetta kemur fram í tilkynningu Símans til Kauphallarinnar. Innherji 30.9.2022 12:48
Lífeyrissjóðir með helmingi minni hlut í Mílu en þeim stóð til boða að kaupa Takmörkuð aðkoma sumra af stærstu lífeyrissjóðum landsins við kaup á hlutum í Mílu í samfloti með franska sjóðastýringarfélaginu Ardian þýðir að samanlagður eignarhlutur sjóðanna í fjarskiptafyrirtækinu verður talsvert minni en áður var áætlað. Íslensku lífeyrissjóðirnir munu tilnefna fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Símanum sem fulltrúa sinn í stjórn Mílu eftir að viðskiptin klárast. Innherji 29.9.2022 07:01
Yngvi ráðinn forstjóri Sýnar Yngvi Halldórsson er nýr forstjóri Sýnar. Hann tekur við starfinu af Heiðari Guðjónssyni sem tilkynnti um starfslok á dögunum. Yngvi hefur undanfarin þrjú ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Sýnar. Viðskipti innlent 27.9.2022 16:00
Hætta á því að tekjuvöxtur Símans haldi ekki í við verðbólgu Hætta er á því að tekjuvöxtur Símans haldi ekki í við verðbólgu og fjárfestar hljóta að velta fyrir sér framtíðarsýn fjarskiptafélaganna á meðan tekjuvöxturinn er eins hægur og raun ber vitni. Þetta kemur fram í nýju verðmati greiningarstofunnar Jakobsson Capital, sem Innherji hefur undir höndum. Innherji 23.9.2022 14:00
Boða til nýs hluthafafundar í október Stjórn Sýnar hefur boðað til hluthafafundar sem haldinn varður fimmtudaginn 20. október næstkomandi. Viðskipti innlent 23.9.2022 11:14
Stjórnin endurspegli ekki hluthafahóp Sýnar Í dag fóru þrjú félög, sem saman fara með 10,8 prósent hlut í Sýn, fram á að haldinn yrði annar hluthafafundur og ný stjórn yrði kjörin. Fasti ehf., sem er í eigu hjónanna Hilmars Þórs Kristinssonar og Rannveigar Eirar Einarsdóttur, er stærsta félagið í hópnum. Hilmar Þór segir að stjórn Sýnar endurspegli einfaldlega ekki hluthafahóp félagsins. Viðskipti innlent 19.9.2022 18:14
Salan á Mílu stóð tæpt eftir óvænt útspil Í byrjun september leit út fyrir að kaup franska sjóðastýringarfélagsins Ardian á Mílu, sem Samkeppniseftirlitið blessaði í síðustu viku eftir undirritun sáttar við Ardian, myndu renna út í sandinn. Klinkið 19.9.2022 10:53
Biðstaða á meðan fjárfestar bíða eftir planinu hjá stjórn Símans Efnahagsreikningur Símans tekur stakkaskiptum núna þegar loksins er orðið ljóst að salan á Mílu fyrir tæplega 70 milljarða króna gengur í gegn. Stóra spurningin, sem ætti að opinberast á allra næsta vikum, er hvað félagið hyggst gera við það mikla reiðufé sem það situr á eftir söluna. Flestir eiga von á því að þeir fjármunir verði meira eða minna allir greiddir út til hluthafa. Klinkið 18.9.2022 13:20
Gildi heldur áfram að stækka hlut sinn í Sýn Gildi lífeyrissjóður, sem hefur um langt skeið verið einn allra stærsti hluthafi Sýnar, er á síðustu vikum búinn að vera að stækka stöðu sína í fjölmiðla- og fjarskiptafélaginu, bæði í aðdraganda og eftir hluthafafund félagsins í lok síðasta mánaðar þar sem átök voru á milli einkafjárfesta og lífeyrissjóða um kjör stjórnarmanna. Innherji 16.9.2022 16:02
Forstjóri Símans: Hefðum aldrei sætt okkur við þetta söluverð í fyrra Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir fyrirtækið öðlast „langþráð athafnafrelsi“ með því að ljúka sölunni á dótturfyrirtækinu Mílu. Það var besti kosturinn í stöðunni, að hans sögn, þrátt fyrir að söluverðið hefði lækkað um alls 8,5 milljarða króna vegna þeirra kvaða sem settar eru á innviðafyrirtækið. Sú afstaða helgast meðal annars af því að efnahagsumhverfið er gjörbreytt frá því að skrifað var undir kaupsamninginn í fyrra. Innherji 16.9.2022 07:01
SKE samþykkir söluna á Mílu og kaupverðið lækkar í 69,5 milljarða Samkeppniseftirlitið og sjóðastýringarfyrirtækið Ardian hafa náð samkomulagi um þau skilyrði sem verða sett við kaupin á Mílu en erfiðar viðræður hafa staðið yfir milli eftirlitsins og franska félagsins allt frá því í júlí. Forstjóri Símans segist „afskaplega ánægður“ með að söluferlið hafi loksins klárast. Innherji 15.9.2022 08:53
Lífeyrissjóðurinn Festa selur allan hlut sinn í Sýn Festa lífeyrissjóður, sem hefur verið á meðal stærstu hluthafa Sýnar, hefur losað um allan eignarhlut sinn í fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækinu. Lífeyrissjóðurinn seldi þannig rúmlega 1,6 prósenta hlut í félaginu skömmu eftir lokun markaða í dag fyrir samtals um 276 milljónir króna, samkvæmt heimildum Innherja. Innherji 13.9.2022 17:36
Lífeyrissjóðir settu nær öll atkvæði sín á Pál og Jóhann í stjórnarkjöri Sýnar Þrír af stærstu lífeyrissjóðunum í hluthafahópi Sýnar, sem ráða samanlagt yfir 26,5 prósenta eignarhlut, settu nær öll atkvæði sín á þá Pál Gíslason og Jóhann Hjartarson í stjórnarkjöri fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins í lok síðasta mánaðar og tryggðu þannig að allir þeir stjórnarmenn sem sóttust eftir endurkjöri héldu sætum sínum. Á meðal þeirra sem fékk ekki eitt einasta atkvæði frá sjóðunum var stærsti einkafjárfestirinn í Sýn. Innherji 11.9.2022 12:08
Aðalatriðið að „flýta sér hægt“ þegar kemur að eignarhaldi Ljósleiðarans Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og formaður borgarráðs, segir að hún sé „í prinsippinu“ fylgjandi því að skoða breytingar á eignarhaldi opinberra fyrirtækja í samkeppnisrekstri. Slíkar breytingar taki þó tíma og hugmyndir um breytt eignarhald á Ljósleiðaranum hafi ekki enn komið formlega á borð Reykjavíkurborgar. Innherji 9.9.2022 15:41
Fjölgun í hluthafahópi Ljósleiðarans kemur til greina Ljósleiðarinn og Orkuveita Reykjavíkur hafa til skoðunar að hleypa utanaðkomandi fjárfestum inn í hluthafahóp Ljósleiðarans ef ráðist verður í hlutafjáraukninguna sem er nú í undirbúningi. Þetta staðfestir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjarskiptafélagsins, við Innherja. Innherji 9.9.2022 06:31
Innviðakaup Ljósleiðarans kunna að vekja blendnar tilfinningar hjá Ardian Sýn og Ljósleiðarinn tilkynntu í gær um að náðst hefði samkomulag um einkaviðræður sem lúta að sölu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans. Samið hefur verið um kaupverð að fjárhæð 3 milljarðar króna og gert er ráð fyrir 10 ára þjónustusamningi á milli fyrirtækjanna. Klinkið 6.9.2022 14:21
Ljósleiðarinn kaupir stofnnet Sýnar á þrjá milljarða króna Sýn og Ljósleiðarinn undirrituðu í dag samkomulag einkaviðræður og helstu skilmála samninga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans og hins vegar að þjónustusamningi milli aðila til tíu ára. Kaupverðið er þrír milljarðar króna. Viðskipti innlent 5.9.2022 19:37
Reynir með yfir 80 prósenta hlut í Gavia Invest Reynir Finndal Grétarsson, stofnandi Creditinfo, er langsamlega umsvifamestur þeirra fjárfesta sem standa að baki félaginu Gavia Invest sem keypti meðal annars allan hlut fráfarandi forstjóra Sýnar og er í dag stærsti einstaki hluthafi fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins. Innherji 31.8.2022 17:06
Jón nýr í stjórn og Petrea verður stjórnarformaður Petrea Ingileif Guðmundsdóttir var í dag kjörin nýr stjórnarformaður Sýnar á hluthafafundi sem fór fram í höfuðstöðvum félagsins við Suðurlandsbraut í hádeginu í dag. Jón Skaftason kemur einn nýr inn í stjórn félagsins. Fjórir af fimm fyrri stjórnarmönnum sóttust eftir endurkjöri og hlutu allir kjör. Viðskipti innlent 31.8.2022 11:51
Mesti rekstrarhagnaður í sögu fyrirtækisins Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022. Til samanburðar nam tap félagsins 348 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 31.8.2022 08:50