Lög og regla
116 117 118 119 120 ›
Lögreglan lýsir eftir dreng Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Albert Þór Benediktssyni, 14 ára, sem síðast sást til í Faxafeni sunnudaginn 26. september síðastliðinn klukkan 17:50. Þeir sem hafa orðið hans varir, eða vita hvar hann er nú, eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Reykjavík í síma við 444 1102. Innlent 13.10.2005 14:43
Máli Hannesar vísað frá Máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um lögbann á efnismeðferð Siðanefndar Háskóla Íslands var vísað frá í Hæstarétti í gær. Innlent 13.10.2005 14:43
Krefst fjögurra ára fangelsis Sækjandi í sakamáli gegn Stefáni Loga Sívarssyni krafðist þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hann yrði dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir þrjár líkamsárásir sem hann er sakaður um að hafa framið á tveimur dögum í apríl. Innlent 13.10.2005 14:43
Lyfjum stolið úr togara Brotis var inn í togarann Sighvat Bjarnason VE í Vestmannaeyahöfn í nótt. Lögreglan í Eyjum fékk tilkynningu um þetta laust fyrir hádegi. Að sögn lögreglu braut þjófurinn upp lyfjakistu skipsins og hafði þaðan á brott pedidín sem er lyf skylt morfíni. Innlent 13.10.2005 14:43
Íslandsmet í fésektum Örn Garðarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Brasserie Borgar játaði, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, rúmlega sextíu milljóna króna skattsvik. Á síðasta ári var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir fimmtán milljón króna skattsvik og til greiðslu þrjátíu milljón króna sektar. Innlent 13.10.2005 14:43
Lögregla leitar enn bílþjófa Lögreglan á Akureyri leitar enn skemmdarvarga og þjófa sem brutust inn í sextán bíla í bænum í fyrrinótt í leit að peningum í þeim. Þeir brutu rúður í bílunum til að komast inn í þá og rótuðu í öllu lauslegu en stálu engum verðmætum, eins og hjómflutningstækjum. Innlent 13.10.2005 14:43
Einn handtekinn í viðbót Einn maður til viðbótar var handtekinn í morgun vegna rannsóknar á umfangsmiklu smygli á fíkniefnum til landsins. Hann hefur lítið komið við sögu fíkniefnamála áður. Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins hér á landi og tveir til viðbótar eru í haldi lögreglu í Hollandi. Innlent 13.10.2005 14:42
Hæstiréttur gekk fulllangt Lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson stóðu að mati Hæstaréttar öðrum umsækjendum töluvert framar að hæfni, en ráðherra segir dóminn hafa gengið fulllangt í mati sínu. Innlent 13.10.2005 14:42
Skemmdarvargarnir ófundnir Lögreglan á Höfn í Hornafirði hefur enn ekki haft upp á skemmdarvarginum eða -vörgunum sem fóru hamförum um Byggðasafn Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Hún segist vera að vinna úr vísbendingum sem borist hafa og kortleggja ferðir einstakra manna. Innlent 13.10.2005 14:42
Jón Steinar ráðinn Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að gengið verði frá ráðningu Jóns Steinars Gunnlaugssonar í embætti Hæstaréttardómara síðar í dag. Það mun koma í hlut fjármálaráðherra, sem er settur dómsmálaráðherra í málinu, að skipa í embættið. Innlent 13.10.2005 14:42
2 mánuðir og 17 milljónir Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og til greiðslu rúmlega 17 milljóna króna fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda á árunum 2001 og 2002. Innlent 13.10.2005 14:42
Höfuðpaurar 100 manna hóps Tólf menn, sem grunaðir eru um stórfellda ólöglega dreifingu á kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum á Netinu, voru handteknir í gær eftir umfangsmikla húsleit Ríkislögreglustjóra og lögreglu víða um land. Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir einum þeirra. Hald var lagt á búnað í fórum mannanna en talið er að þeir séu höfuðpaurar í hundrað manna lokuðum hópi. Innlent 13.10.2005 14:43
ADSL notkun hrundi Notkun á ADSL-neti Símans dróst saman um 50 til 60 prósent eftir að menn frá ríkislögreglustjóra lögðu hald á tölvur og tölvubúnað tólf einstaklinga í húsleitum í fimm lögregluumdæmum á þriðjudag. Innlent 13.10.2005 14:42
Fartölvum stolið Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í fyrrinótt og gærmorgun. Fartölvum var stolið úr tveimur bílanna, sem voru í Þingholtunum. Innlent 13.10.2005 14:42
Ákvörðun ráðherra kom ekki á óvart Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og annar af hæfustu umsækjendum um stöðu dómara við Hæstarétt að mati dómara réttarins, segir að skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar komi honum ekki á óvart. Jón Steinar hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra verið skipaður hæstaréttardómari frá og með 15. október næstkomandi. Innlent 13.10.2005 14:42
Ráðuneytið staðfestir skipunina Dómsmálaráðuneytið hefur staðfest að Jón Steinar Gunnlaugsson, prófessor og hæstaréttarlögmaður, hafi verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands frá og með 15. október næstkomandi. Innlent 13.10.2005 14:42
Grunur um íkveikju á Blönduósi Talið er víst að rekja megi eldsvoðann á Blönduósi í fyrrakvöld til íkveikju. Þá brann fjögur þúsund fermetra iðnaðarhús við Efstubraut til grunna. Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Blönduósi segir að rannsókn tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík á vettvangi eldsvoðans hafi leitt í ljós rökstuddan grun um um íkveikju. Innlent 13.10.2005 14:42
Íkveikja á Blönduósi Kveikt var í atvinnuhúsinu sem brann á Blönduósi aðfaranótt þriðjudags. Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík rannsakaði brunarústirnar og komst að þessari niðurstöðu. Enginn er grunaður um verkið að svo stöddu og er rannsókn málsins á frumstigi. Innlent 13.10.2005 14:43
Þarf að greiða milljóna sekt Fyrrum stjórnarformaður og framkvæmdarstjóri einkahlutafélags var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbunið fangelsi fyrir brot á virðisaukaskattslögum. Innlent 13.10.2005 14:42
Leit vegna ólöglegrar dreifingar Þrjátíu manna lið Ríkislögreglustjóra og lögregluembætta víða um land gerði í gær húsleit hjá tólf einstaklingum á nokkrum stöðum á landinu vegna gruns um að þeir sæktu og dreifðu ólöglega til annarra, kvikmyndum, tónlist og tölvuforritum í gegnum Netið. Nokkrir voru handteknir. Innlent 13.10.2005 14:42
Ákærður fyrir sex líkamsárásir Hálfþrítugur þekktur ofbeldismaður í Hafnarfirði tók sér frest til að tjá sig um sex líkamsárásir og vopnalagabrot sem hann er ákærður fyrir þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Ákæra á hendur manninum, fyrir að hafa slegið mann í höfuðið með öxi á veitingastaðnum A.Hansen í Hafnarfirði síðasta dag ágústmánaðar, er í undirbúningi. Innlent 13.10.2005 14:42
Kýldi lögreglumann Maður á fimmtugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en hann er sakaður um að hafa kýlt lögreglumann með krepptum hnefa í andlitið í maí í fyrra. Maðurinn mætti ekki í Héraðsdóm Reykjaness þegar átti að þingfesta málið í gær. Innlent 13.10.2005 14:42
Kúgaðir í fangelsum Kynferðisglæpamenn hafa löngum verið fyrirlitnir af samföngum sínum, sem gjarnan ráðast á þá með fúkyrðum og jafnvel ofbeldi, að sögn Ara Björns Thorarensen, formanns Fangavarðafélags Íslands. Innlent 13.10.2005 14:42
Það versta sem ég hef lent í "Maður bara brotnar niður þegar maður horfir á fyrirtækið sitt brenna," segir Vilhjálmur Stefánsson, sem er einn þriggja eigenda Bílaþjónustunnar sem var með starfsemi í Votmúla á Blönduósi. Innlent 13.10.2005 14:42
Horfði á eigið fyrirtæki brenna Varaslökkviliðsstjórinn á Blönduósi var í þeirri sérstöku aðstöðu í fyrrinótt að vera að reyna að slökkva eld í sínu eigin fyrirtæki. Innlent 13.10.2005 14:42
Þyrlan send vegna umferðarslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð vestur á Bíldudal klukkan sex í morgun vegna umferðarslyss sem átti sér stað klukkustund áður. Þá ók fólksbifreið í gegnum handrið á rimlahliði í útjaðri bæjarins. Tveir menn á þrítugsaldri voru í bílnum og flaug farþeginn í gegnum framrúðuna og lenti á viðardrumbi í hliðinu. Innlent 13.10.2005 14:41
Karlmaður nefbraut stúlku í nótt Stúlka nefbrotnaði er hún var slegin í andlitið fyrir utan veitingastað við Hafnargötu í Keflavík í nótt samkvæmt Víkurfréttum. Árásaraðilinn er karlmaður og var hann yfirheyrður af lögreglu. Innlent 13.10.2005 14:42
Ók á hliðstólpa Maður ók á hliðstólpa skammt frá Bíldudal um fimmleytið á sunnudagsmorguninn. Stólpinn gekk í gegnum framrúðuna á bílnum og í höfuð ökumannsins sem hlaut af því töluverða áverka. Ökumaðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF, á Borgarspítalann. Innlent 13.10.2005 14:42
Gargandi þvæla segir Sveinn Andri Alls hafa um 120 lögmenn skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við Jón Steinar Gunnlaugsson um að hann verði skipaður í stöðu hæstaréttardómara. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segist ekki vita hversu margir hafi verið beðnir um að skrifa undir áskorunina. Innlent 13.10.2005 14:41
Ölvun, hass og haglabyssa Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann á 137 kílómetra hraða á ellefta tímanum í gærkvöld við Ytri vík á Ólafsfjarðarvegi á milli Dalvíkur og Akureyrar. Ökumaðurinn sem er á fimmtugsaldri er grunaður um ölvun við akstur. Í bílnum fannst smáræði af hassi, sem og haglabyssa og skotfæri. Innlent 13.10.2005 14:41