Play

Play gat ekki greitt laun um mánaðamótin
Forsvarsmenn lággjaldaflugfélagsins Play hafa ekki getað greitt starfsfólki sínu laun fyrir nóvembermánuð. Upplýsingafulltrúi Play segir starfsmenn sína stöðunni skilning og til standi að greiða laun hið fyrsta.

Bjóðast til að minnka hlut sinn í Play
Stjórnendur og stofnendur Play, hins nýstofnaða lággjaldaflugfélags, bjóðast til að minnka hlutdeild sína í félaginu í þrjátíu prósent á móti sjötíu prósent eignarhlut fjárfesta.

Play seinkar sölu á fyrstu flugmiðum
Ekki liggur fyrir hvenær sala flugmiða á að fara af stað.

Lánsfé og flugrekstrarleyfi skilyrt við að hlutafjársöfnun klárist
Fjörutíu milljóna evra lánsfjármögnun frá breska sjóðnum Athene Capital og öflun flugrekstrarleyfis hjá Samgöngustofu er skilyrt við að hinu nýstofnaða lággjaldaflugfélagi Play takist að fá fjárfesta til að leggja því til samtals tólf milljónir evra, jafnvirði um 1.700 milljóna króna, í hlutafé.

Ekki liðið að fyrirtæki reki sig á undirboðum
Þær vísbendingar sem okkur hafa borist hníga í þá átt að greiða á grunnlaun langt undir því sem almennir kjarasamningar segja til um.

Hikandi við að leggja Play til hlutafé
Erfiðlega hefur gengið að fá innlenda fjárfesta til að leggja lággjaldaflugfélaginu Play til samtals tólf milljónir evra, jafnvirði um 1.700 milljóna króna, í hlutafé en Íslensk verðbréf (ÍV) hafa á síðustu vikum biðlað til fjárfesta um að koma að fjármögnun félagsins.

Play greiðir átta prósent vexti af láninu
Lánsfjármögnunin er til níu ára og til tryggingar þarf Play að vera með átta milljónir evra í reiðufé sem veð fyrir láninu.

Play semur við ungt þjónustufyrirtæki
Flugfélagið Play, sem áformar að hefja flugrekstur í vetur, verður í viðskiptum við Íslenska flugafgreiðslufélagið ehf. um flugþjónustu á Keflavíkurvelli, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Vefslóðin play.is föl fyrir rétt verð
Flóttinn fær óvænta athygli.

„Markmiðið er skýrt - að halda kostnaði í lágmarki“
Flugfélagið Play hyggst spara allt að sjö milljarða króna með minni yfirbyggingu og einfaldari kjarasamningum á næstu þremur árum, ef marka má fjárfestakynningu félagsins.

Play bjóði góð laun en ekkert skutl út á flugvöll
Play svarar ásökunum Alþýðusambandsins.

Kjaramál Play brjóti í bága við „allar grunnstoðir stéttarfélaga“
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins, segir það vekja verulegar áhyggjur að lággjaldaflugfélagið Play hafi samið um kaup flugliða og flugmanna áður en nokkur slíkur hafi verið ráðinn.

Búið að semja um laun áður en nokkur flugliði hefur verið ráðinn
Það er fátt sem landinn kann betur að meta en ódýr flugfargjöld til útlanda. En ef fargjaldið er of lágt eru það aðrir sem greiða flugmiðann.

Kaupmannahöfn, Lundúnir, París, Berlín, Alícante og Tenerife
Þetta eru áfangastaðirnir sex sem Play horfir til í Evrópu

Starfsmenn Play megi búast við lægri launum og meiri vinnu
Þau sem sótt hafa um stöðu flugliða og flugmanna hjá flugfélaginu Play mega gera ráð fyrir að fá lægri laun en starfsmenn WOW air fengu á sínum tíma. Að sama skapi geta þau átt von á því að vinna meira en sambærilegir starfsmenn Icelandair.

Innkoma Play jákvæð en þó ekki úrslitaatriði
"Eitt nýtt flugfélag með tvær þotur og sex áfangastaði er náttúrulega ekki "make or brake“ fyrir íslenska ferðaþjónustu en við fögnum að sjálfsögðu alltaf öllum sem hafa trú á áfangastaðnum,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar

Play útskýrir frímiðaleikinn
Frímiðaleiknum, sem flugfélagið Play hyggst standa fyrir á næstu vikum, mætti einna helst líkja við páskaeggjaleit.

Play hættir við að ráða „leikfélaga“
Þrátt fyrir að lággjaldaflugfélagið Play sé enn í startholunum hefur það þegar ákveðið að gera breytingar á starfsmannahópnum.

Hátt í þúsund manns sótt um vinnu hjá Play
Í tilkynningu Play segir að umsóknir berist enn, sólahring eftir að flugfélagið var tilkynnt.

Freista þess að afla Play 1.700 milljóna
Íslensk verðbréf vinna að því að tryggja flugfélaginu Play hlutafé upp á 1.700 milljónir króna frá innlendum fjárfestum.

Play hefur sig til flugs til sex áfangastaða í vetur
Forstjóri Play, nýs lággjaldaflugfélags, segir eigið fé ríkulegt og að hugað hafi verið að loftlagsmálum við val á flugvélum. Play hefur sig til flugs í vetur, fyrst um sinn með tvær flugvélar.

Play á vörum Íslendinga: „Starfsmenn munu kalla sig Playboys og Playgirls“
Aðstandendur nýs, íslensks flugfélags boðuðu til blaðamannafundar í Perlu í dag þar sem þau kynntu áform sín.

Skúli hlakkar til að fara út í heim að leika
Skúli Mogensen, stofnandi og fyrrverandi forstjóri WOW air, dáist að þrautsegju fyrrverandi samstarfsfólks hjá WOW air sem kynnti flugfélagið Play til leiks á blaðamannafundi í Perlunni í dag.

Play kynnt til leiks
Nýtt íslenskt flugfélag mun hefja sig til flugs á næstu mánuðum.

WAB air verður Play
Aðstandendur nýs, íslensks flugfélags boðuðu til blaðamannafundar í Perlu í dag þar sem þau kynntu áform sín.

Boðað til blaðamannafundar hjá WAB
Boðað hefur verið til blaðamannafundar í fyrramálið af forsvarsmönnum flugfélagsins sem kallast WAB, eða We Are Back, og byggir á grunni WOW air.

Icelandair rauk upp meðan Bogi og Eva kynntu uppgjörið
Búið er að bókfæra hluta Boeingbótanna en flugfélagið áætlar þó að kostnaður vegna innleiðingar og gagnsetningar vélanna komi fram eftir áramót.

Aðstandendur WAB air ekki af baki dottnir
Kaup Michele Roosevelt Edwards, eða Michele Ballarin eins og hún er jafnan kölluð, á eignum þrotabús WOW air hafi ekki áhrif.

Þjóðin stendur nú einkar vel að vígi
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og stjórnarformaður Icelandair Group, sér fyrir sér að bætur frá Boeing til flugfélagsins verði að hluta til í formi reiðufjár. Bílasala hefur ekki aukist þótt kjarasamningar séu í höfn og óviss varðandi WOW Air er frá.

Fyrstu starfsmenn WAB air mættu til vinnu í Hafnarfirði í morgun
WAB air, íslenskt flugfélag sem hópur fjárfesta reynir nú að koma á fót, hóf starfsemi í nýju skrifstofuhúsnæði í Hafnarfirði í dag.