

Elenóra Rós Georgesdóttir bakari birti klassíska uppskrift að sörum sem hún hefur bakað á hverju ári með móður sinni frá því að hún var lítil. Hefðin hefur síðan verið hennar eftirlætis á aðventunni.
Bakað með Sylvíu Haukdal eru nýir þættir á Stöð 2 Maraþon. Í fyrsta þættinum deilir hún dásamlegri uppskrift að sörum fyrir jólin.
Telma Matthíasdóttir, þjálfari og eigandi fitubrennsla.is, fór að hafa gaman af eldamennsku og bakstri þegar hún tók heilsu sína í gegn fyrir allmörgum árum. Hún er mikill sælkeri og útbýr alls kyns næringarríkt sætmeti án sykurs.
Hanna Þóra Th. Guðjónsdóttir tók jólabaksturinn snemma og gefur uppskrift að þremur gómsætum en afar ólíkum smákökum.
Hafdís Priscilla Magnúsdóttir, sem heldur úti kökublogginu Dísukökur, bakar alltaf sykurlaust. Hún rakst á uppskrift að sörum hinna uppteknu fyrir einhverjum árum og ákvað að útbúa sykurlausa útgáfu sem slegið hefur í gegn.
Jólabaksturinn er oft byggður á hefðum en stundum eru nýir hlutir prófaðir og útkoman getur til dæmis verið piparkökujólatré.
Soffía Jakobsdóttir leikkona hefur í yfir þrjá áratugi bakað Sörur fyrir jólin.
Uppskrift. Fullkomlega ómótstæðilegar smákökur.