

Tedros Adhanom Ghebreyesus, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, varaði við þjóðernis-bólusetningastefnu og óréttlæti í bólusetningum á fundi með utanríkisráðherra Ungverjalands í gær.
Egyptaland verður án stjörnuleikmanns síns Mohamed Salah er liðið mætir Angóla og Gabon í undankeppni HM 2022 í upphafi næsta mánaðar. Liverpool leyfir leikmanninum ekki að fara sökum þess að Salah þyrfti að fara í sóttkví við komuna aftur til Liverpool-borgar.
Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna, CDC, uppfærði lista á ferðaráðssíðu sinni í dag. Ísland er enn í hæsta áhættuflokki og er Bandaríkjamönnum því áfram alfarið ráðið frá ferðalögum til landsins.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að heimila notkun sjálfsprófa hér á landi. Fréttamaður Stöðvar 2 ákvað að sýna landanum hvernig prófin eru notuð.
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að breyta reglugerð um starfsemi rannsóknarstofa sem stunda greiningu á sjúkdómum sem sóttvarnalög taka til. Með breytingunni verður ekki lengur skylda að rannsóknarstofa með starfsleyfi sjái um allar greiningar sem gerðar eru með hraðprófum hér á landi.
Í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins notaðist Landspítalinn við forritið Sidekick til að fylgjast með þeim Covid-sjúklingum sem ekki þurftu að leggjast inn á spítala. Forritið virkar þannig að sjúklingar haka við valmöguleika um líðan sína og geta læknar þá yfirfarið niðurstöðuna og metið hvort þörf sé á inngripi.
Um fjögur þúsund börn úr tveimur árgöngum mættu til bólusetningar í Laugardalshöll í dag. Tveir árgangar voru bólusettir, börn fædd 2006 og 2007, og var nokkuð jafnræði milli árganga ef litið er til mætingar. Þetta er fyrsti dagurinn þar sem börn undir sextán ára aldri eru bólusett við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu.
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur samþykkt alfarið notkun bóluefnis Pfizer og BioNTech við kórónuveirunni í Bandaríkjunum. Hingað til hefur bóluefnið verið notað í skjóli neyðarleyfis. Talið er að ákvörðunin gæti hvatt fleiri Bandaríkjamenn til að láta bólusetja sig.
Íslenskur toppfótbolti, hagsmunasamtök félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, telur rétt að endurskoða reglur um sóttvarnir á kappleikjum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum.
Forseti Taívans reið á vaðið í dag og var á meðal þeirra fyrstu sem fengu nýtt innlent bóluefni gegn kórónuveirunni. Gagnrýnisraddir eru þó uppi um að notkun efnisins hafi verið samþykkt of hratt.
Starfsmaður á öldrunarlækningadeild K1 á Landakoti hefur greinst smitaður af Covid-19. Þetta hefur fréttastofa fengið staðfest frá forsvarsmönnum Landspítala.
Ólíkt hafast þau að, stjórnvöld á Íslandi og í Danmörku, þegar kemur að því að greiða leið fólks í gegnum Covid-19 frumskóginn, til að tryggja að við getum lifað hér sem eðlilegustu lífi á ný. Á meðan íslensk stjórnvöld þvælast fyrir með reglugerð sem bannar notkun Covid-sjálfsprófa þá hvetja dönsk stjórnvöld til notkunar slíkra prófa hvenær sem fólk og fyrirtæki þurfa og vilja.
Bólusetningar hjá tólf til fimmtán ára börnum hófust í Laugardalshöll í morgun. Básar hafa verið settir upp fyrir börn sem kvíða sprautinni og sjúkrarúmum fjölgað vegna hættu á yfirliði. Skólahjúkrunarfræðingar sjá um bólusetninguna.
Sóttvarnalæknir er með minnisblað í smíðum til heilbrigðisráðherra varðandi samkomutakmarkanir á Íslandi.
Mötuneyti nemenda Fjölbrautaskólans í Garðabæ hefur verið lokað eftir að smit kom upp í nærumhverfi starfsmanna þar og þeir sendir í sóttkví. Skólameistari FG segir að koma verði í ljós hvort reglur um sóttkví og einangrun muni valda miklu raski í skólastarfinu.
62 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 27 þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, en 35 utan sóttkvíar.
Tómstunda- og félagsmálafræðingurinn Ingveldur Gröndal segist telja að fleiri jákvæða fleti megi finna á kórónuveirufaraldrinum en fólk virðist almennt halda. Ingveldur skrifaði BA-ritgerð um jákvæð áhrif faraldursins.
Eftirlitsstofnun sveitarfélaga í Ástralíu rannsakar nú lítið sveitarfélag þar í landi, eftir að ákvörðun var tekin um að skjóta fjölda hunda sem biðu þess að komast í dýraathvarf. Ástæðan virðist vera hræðsla embættismanna sveitarfélagsins við útbreiðslu Covid-19.
Undanfarinn mánuð hafa á bilinu eitt þúsund til sex þúsund manns farið í sýnatöku vegna einkenna eða sóttkvíar hjá heilsugæslum víða um land. Biðin eftir niðurstöðu getur reynst mörgum löng. Þeir sem reynast smitaðir eiga möguleika á að vita niðurstöðuna nokkru áður en símtalið berst frá göngudeild Landspítalans.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, er með kórónuveiruna. Stutt er í næstu leiki landsliðsins sem verða í undankeppni HM 2022. Óvíst er hvort þetta hafi áhrif á komandi verkefni.
Þriðji skammturinn af bóluefni Pfizer dró verulega úr líkum á smiti og alvarlegum veikindum hjá sextugu fólki og eldra borið saman við þá sem fengu tvo skammta samkvæmt upplýsingum ísraelskra heilbrigðisyfirvalda.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lýst efasemdum um ágæti svokallaðra sjálfsprófa sem verkfæri í baráttunni við kórónuveiruna. Hann segist hafa séð margar rannsóknir á þessum prófum og því miður sé næmið á þeim ekki nógu gott.
Yfirvöld í Víetnam hafa sett á útgöngubann í ákveðnum hverfum í Ho Chi Minh, höfuðborg landsins, frá og með deginum í dag, degi áður en Kamala Harris varaforseti Bandaríkjanna kemur þangað í tveggja daga opinbera heimsókn.
Verslunin Hringekjan í Þórunnartúni í Reykjavík verður lokuð í dag eftir að starfsmaður verslunarinnar greindist smitaður af kórónuveirunni.
Hið svo kallaða „hybrid“ vinnufyrirkomulag er orðið að veruleika og ljóst að til framtíðar verða æ fleiri störf unnin í blönduðu fyrirkomulagi: Í fjarvinnu að hluta en á vinnustaðnum að hluta.
Bólusetningar barna á aldrinum 12 til 15 ára hefjast í Laugardalshöll í dag en áætlað er að um 10 þúsund börn á höfuðborgarsvæðinu verði bólusett þar í dag og á morgun.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, ber því hraðprófafyrirkomulagi vel söguna sem ríkisstjórnin skoðar hvort hægt sé að taka upp á Íslandi til að leyfa stærri samkomur. Hann mætti í veislu í gær þar sem allir veislugestir voru skimaðir fyrir Covid-19 með hraðprófum áður en þeir fengu að fara inn í veislusalinn.
Börn hafa leitað til embættis umboðsmanns barna vegna bólusetninga sem hefjast á morgun. Umboðsmaður leggur áherslu á að börn og foreldrar gefi sér tíma til þess að ræða ávinning og áhættu bólusetninga til þess að unnt sé að taka upplýsta ákvörðun.
Theódór Skúli Sigurðsson, formaður sjúkrahússlækna, segir af og frá að mönnunarvandi sé eina vandamál Landspítalans en ekki fjármögnun. Það megi álykta af orðum ráðherra eftir fund með forstjóra Landspítalans. Theódór segir að sparnaðaraðgerðir hafi gengið svo langt að heilbrigðisstarfsmenn hafi hreinlega átt að hætta að hjúkra og lækna. Markmiðið væri að spara.
Í þessari grein ætla ég að svara kalli Þórólfs og Víðis um að fá fleiri sjónarmið fram um hvernig við tökumst á við COVID. Við getum öll verið á svo margan hátt stolt af þeim árangri sem við höfum náð í þeirri áskorun sem heimsfaraldurinn hefur verið.