Náttúruhamfarir
17 18 19 20 21 22 … 22 ›
Ekki hægt að útiloka að aðrar stíflur séu að myndast Vatnshæð við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur lækkað frá því síðdegis í gær og gæti bent til þess að áin sé hægt og rólega að losa um krapann á yfirborðinu. Farið verður í eftirlitsflug nú síðdegis til að kanna betur aðstæður í ánni. Ekki sé hægt að útiloka að aðrar stíflur séu að myndast í ánni. Innlent 2.2.2021 16:21
Vísbendingar um að hreyfing sé komin á klakastífluna Þjóðvegi 1 frá Námaskarði að gatnamótum Vopnafjarðarafleggjara hefur verið lokað þar sem vísbendingar eru um að hreyfing sé komin á klakastífluna sunnan við brúna sem fer yfir Jökulsá á Fjöllum. Innlent 2.2.2021 12:23
„Ég fékk sömu tilfinningu, að við myndum aldrei lifa þetta af" Rýma átti hús mun fyrr á Seyðisfirði að mati hjóna í ljósi þess að aldrei hafði mælst meiri rigning á Íslandi dagana fyrir aurskriðurnar. Þegar hættumat var kynnt var tekið fram að mikil hætta yrði ekki yfirvofandi nema í hamfararigningu. Innlent 1.2.2021 19:00
Ógnin í fjallinu Ofanflóð á Flateyri og Seyðisfirði í fyrra hafa minnt Íslendinga rækilega á að baráttunni við að verja byggðir landsins er hvergi nærri lokið. Þrátt fyrir aukið eftirlit og uppbyggingu varnarvirkja mátti litlu muna að manntjón yrði. Innlent 1.2.2021 07:46
Sérfræðingar farnir norður og geta metið stöðuna á morgun Vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum er enn yfir þröskuldi Veðurstofu Íslands. Vatnshæðin náði hámarki um klukkan tíu í gærmorgun og var þá 530 sentímetrar, eða tíu sentimetrum yfir þröskuldinum. Veðurstofan hefur sent sérfræðinga norður en áætlað er að þeir geti metið stöðuna í ánni á morgun. Innlent 31.1.2021 10:02
Vatn í Jökulsá fór yfir vatnshæðarþröskuldinn Í kringum miðnætti í nótt fór vatnshæð í Jökulsá á Fjöllum yfir vatnshæðarþröskuldinn, 520 sentimetra. Vatnshæðin hefur hækkað hægt og rólega síðan um klukkan þrjú síðdegis í gær. Innlent 30.1.2021 08:30
Lýsa yfir óvissustigi vegna krapastíflu og flóðahættu Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna krapastíflu og flóðahættu í Jökulsá á Fjöllum, á milli Mývatnssveitar og Egilsstaða. Innlent 28.1.2021 16:12
Syllan brytjuð niður með vinnuvélum Unnið hefur verið að því síðdegis og í kvöld að brjóta niður stærðarinnar snjósyllu fyrir ofan Vesturfarasetrið á Hofsósi. Lögreglan á Norðurlandi vestra lokaði hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna stærðarinnar sprungu í snjólögum sem uppgötvaðist fyrir ofan setrið í gærkvöldi, fyrir árvekni ungs pilts. Innlent 27.1.2021 22:11
Bara krapi svo langt sem augað eygir Á morgun verður hafist handa við að ýta út krapa sem hefur safnast við veginn við Jökulsá á Fjöllum. Í gær þurfti að loka þjóðvegi eitt milli Mývatns og Egilsstaða vegna krapastífllu sem flæddi yfir veginn. Innlent 27.1.2021 21:32
Óttast að krapastífla sé á fleiri stöðum í Jökulsá Verkstjóri á Húsavík sem staddur er við Krapastífluna við Jökulsá á Fjöllum óttast að fleiri krapastíflur séu í ánni. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á leiðinni með dróna til að ná betri yfirsýn. Innlent 27.1.2021 12:42
Krapaflóðið lokar enn hringveginum Hringvegurinn milli Mývatns og Egilsstaða er enn lokaður þar sem krapastífla flæðir yfir veginn við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Innlent 27.1.2021 07:26
Hafnarsvæðinu á Hofsósi lokað vegna snjóflóðahættu Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur í samráði við ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands ákveðið að loka hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. Innlent 27.1.2021 06:40
Krapaflóðið tók sundur stofnstreng Krapaflóðið í Jökulsá á fjöllum í dag tók í sundur stofnstreng milli Reykjahlíðar og Hjarðarhaga. Ekki er gert ráð fyrir að hægt verði að gera við strenginn fyrr en á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu. Innlent 26.1.2021 21:38
Þriggja metra djúpur „krapahaugur“ lokar þjóðveginum Krapastífla flæðir nú yfir þjóðveg 1 við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Vegurinn milli Mývatns og Egillstaða er lokaður af þessum sökum. Lögregla segir „krapahauginn“ einna líkastan snjóflóði; hann sé um þriggja metra djúpur og nái yfir um 200 metra vegkafla. Innlent 26.1.2021 18:04
Yfir sjötíu snjóflóð á tíu dögum: „Þetta er dálítið kröftug snjóflóðahrina“ Skráð hafa verið 72 snjóflóð hjá ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands síðustu tíu dag. Þar af hafa fallið 33 á Vestfjörðum, 27 á Norðausturlandi og níu á Norðvesturlandi þegar þetta er skrifað en snjóflóðahrina hefur staðið yfir á Vestfjörðum og á Norðurlandi síðan á mánudaginn. Ríflega tuttugu þessara snjóflóða féllu síðasta sólarhringinn. Snjóflóð féll til að mynda yfir Flateyrarveg síðdegis í dag. Innlent 24.1.2021 22:05
Íbúar húsanna þriggja á Flateyri mega snúa heim Ákveðið hefur verið að aflétta rýmingu á Flateyri en íbúum þriggja íbúðarhúsa var gert að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. Þeir mega því snúa heim. Sömuleiðis er talið óhætt að dvelja á hafnarsvæðinu og viðvörunarljósið þar verður slökkt. Innlent 24.1.2021 14:51
Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt og stöðvaðist skammt utan við veginn að íbúðarhúsinu Sólbakka. Unnið er að könnun á ummerkjum flóðsins. Innlent 24.1.2021 11:54
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Flateyri Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir hættustigi vegna snjóflóðahættu og verða þrjú íbúðarhús rýmd á Flateyri. Innlent 23.1.2021 15:32
„Hélt við værum örugg undir snjóflóðavarnargarðinum“ Íbúi sem þurfti ásamt fjölskyldu sinni að yfirgefa heimili sitt á Siglufirði í gær vegna snjóflóðahættu segist undrandi því snjóflóðagarður sé við húsið. Greinilegt sé að verið sé að endurmeta snjóflóðavarnir á svæðinu. Talið er að altjón hafi orðið á skíðasvæði Siglfirðinga í snjóflóði í gær en lyftan virðist hafa sloppið. Innlent 21.1.2021 19:00
Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. Innlent 21.1.2021 17:46
Allt með kyrrum kjörum á Seyðisfirði í nótt Fulltrúar almannavarna og sveitastjórnar Múlaþings funda um stöðuna á Seyðisfirði klukkan tíu. Á fimmta tug húsa voru rýmd á föstudaginn vegna úrkomuspár og óvissu um stöðugleika hlíðanna. Innlent 17.1.2021 09:49
RAX Augnablik: „Við ætluðum aðeins nær en þá kemur elding í vélina“ „Eldgos eru dálítið sérstök á Íslandi. Ég er búin að fara í öll eldgos á Íslandi í fjörutíu ár,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson. Það verður að teljast skiljanlegt enda náttúruhamfarir oft mikið sjónarspil. Lífið 17.1.2021 07:01
Fjórða manneskjan fannst látin í Ask Björgunarfólk í norska bænum Ask hefur nú fundið fjórðu manneskjuna látna á hamfarasvæðinu sem gríðarstórar skriður ollu á aðfaranótt miðvikudags. Um er að ræða þriðju manneskjuna sem finnst látin í dag, en auk þeirra fannst karlmaður á fertugsaldri látinn í rústunum í gær. Erlent 2.1.2021 20:50
Þriðji fundinn látinn í Ask Einn fannst látinn til viðbótar skömmu eftir klukkan 16 að norskum tíma eftir leirskriðurnar í Ask í Noregi. Erlent 2.1.2021 17:14
Norsku konungshjónin heimsækja Ask á morgun Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning munu sækja bæinn Ask heim á morgun og ræða við fólk sem missti allt sitt í hamförunum. Erlent 2.1.2021 16:32
Leitarhundar fundu einn látinn til viðbótar Leitarhundar hafa fundið lík einnar manneskju til viðbótar eftir leirskriðurnar í Ask í Noregi. Roy Alkvist, sem stjórnar leitinni fyrir hönd lögreglu, segir að svo stöddu ekki hægt að veita upplýsingar um aldur eða kyn hins látna. Erlent 2.1.2021 13:33
Birta nöfn allra sem saknað er í Ask Norska lögreglan birti í dag nöfn þeirra sem saknað er eftir að leirskriður féllu á bæinn Ask aðfaranótt miðvikudags. Á meðal þeirra sem saknað er eru tvö börn, tveggja og þrettán ára, auk mæðgina á sextugs- og þrítugsaldri. Erlent 1.1.2021 19:35
Jarðfræðingur útskýrir hvað býr að baki leirskriðunum í Ask Jarðfræðingur segir jarðveginn á skriðusvæðinu í norska bænum Ask, þar sem gríðarmiklar leirskriður féllu í fyrrinótt, mjög „óstabílann“, einkum eftir rigningar undanfarna daga. Líta þurfi allt að tólf þúsund ár aftur í tímann til að skilja hvað býr að baki. Innlent 31.12.2020 12:21
Endurskoða rýmingarsvæðið á hádegi á morgun Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og lögreglustjórinn á Austurlandi hafa ákveðið að halda rýmingarsvæðinu á Seyðisfirði óbreyttu fram að hádegi á morgun að minnsta kosti. Innlent 30.12.2020 19:14
Fimmtán enn saknað í Ask Fimmtán er enn saknað eftir að stærðarinnar leirskriður féllu í nótt í bænum Ask í Noregi. Erlent 30.12.2020 17:16