
Gróðureldar á Íslandi

Íslendingar þurfi að huga að forvörnum með auknum gróðri og skógi
Gróðureldarnir í Los Angeles eru sagðir þeir mestu í sögu borgarinnar. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs er vindurinn, sem á mikinn þátt í þessum miklu eldum, aðeins farinn að lægja og því vonast slökkviliðsmenn til að ná einhverri stjórn á útbreiðslu hans. Að því sögðu segja viðbraðgsaðilar að enn stafi gríðarleg hætta af eldunum sem eru sagðir hafa lagt heimili tugi þúsunda í rúst.

„Rosa fínt“ ef fólk hætti að kveikja í sinu
Eldur var í sinu á þremur stöðum við vegkant á Vesturlandi, í nágrenni við Brúarfoss og Fíflholt á Mýrum. Slökkvilið frá Borgarnesi brást við kallinu og slökkti eldinn greiðlega en að öllum líkindum var um íkveikju að ræða. Eldarnir voru með nánast nákvæmlega kílómeters millibili.

Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni
„Það sést ekki mikið. Það er erfitt að sjá á þessum vefmyndavélum hvar hrauntungan er. Maður sér reyk hér og þar en síðan er auðvitað mikið um gróðureld sem felur hvað er að gerast.“

Sinubruni í Staðarsveit á Snæfellsnesi
Eldur kviknaði í sinu í nágrenni eyðibýlisins Haga í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Slökkviliðsmenn frá Snæfellsbæ og Grundafirði eru komnir á vettvang og slökkvilið Stykkishólms er á leiðinni.

Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi
Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út vegna sinubruna við Hellisskóg á Selfossi um klukkan 13 í dag. Hellisskógur er skógræktarsvæði rétt fyrir utan Selfoss. Búið er að slökkva brunann en eldsupptök má rekja til flugelda sem barn lék sér með á svæðinu.

Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall
Slökkvilið Árnessýslu hefur nýtt sér heimild til þess að rukka þá sem kveikja í sinu um kostnað við útkall. Hreinn launakostnaður við sinubrunaútkall getur verið á bilinu hálf til ein milljón króna, að sögn slökkviliðsstjóra.

Sinueldur í Munaðarneslandi
Sinueldur logar í Munaðarneslandi á Vesturlandi. Viðbragðsaðilum hefur tekist að ná tökum á brunanum en enn logar í einhverjum glæðum. Svæðið sem brann var ekki stórt en á mjög erfiðu svæði þar sem eldurinn átti upptök sín í birkiskógi.

Sinueldur í Reykjanesbæ
Sinueldur logar í Grænásbrekku í Reykjanesbæ. Slökkviliðsmenn eru á vettvangi og gengur vel að ná tökum á brunanum.

Sinubruni í búgarðabyggðinni
Eldur kviknaði í sinu í búgarðabyggðinni svokölluðu milli Selfoss og Eyrarbakka í dag. Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu eru á vettvangi og hafa náð tökum á eldinum.

„Við erum með tvo trukka og þeir fara mjög hægt yfir“
Slökkvilið í Grindavík berst enn við gróðurelda við gosstöðvarnar við Sundhnjúkagíga. Slökkviliðsstjórinn segir svæðið afar torfærið og að slökkviliðstrukkar fari hægt yfir svæðið.

Sinueldur við urðunarstaðinn á Álfsnesi
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út upp úr átta vegna sinuelds við urðunarsvæðið á Álfsnesi. Slökkviliðið náði tökum á eldinum á tíunda tímanum.

Slokknað í syðsta og minnsta gígnum en enn mikil virkni
Útlit er fyrir að slokknað sé í syðsta gígnum í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina. Það er sá minnsti. Góð og mikil virkni er þó í hinum tveimur gígunum og sérstaklega í öðrum þeirra, sem er stærstur.

Sennilega þeir einu sem vilja rigningu um páskana
Eldgosið norðan Grindavíkur mallar enn eins og það hefur gert síðustu daga. Mikill þurrkur er á svæðinu svo kviknað hefur í gróðri á gosstöðvunum. Slökkviliðsmenn í Grindavík eru sennilega í minnihluta fólks sem vill að það rigni um páskana.

Náðu tökum á gróðureldum við gosstöðvar í gær
Slökkviliðsmenn náðu að slökkva í gróðureldum sem blossuðu upp við gosstöðvarnar í gær. Slökkvilið frá Grindavík, Suðurnesjum og Árnessýslu voru við störf og verður áfram viðvera í dag. Mjög þurrt er á svæðinu og engin rigning í kortunum.

„Sagan endalausa“ í baráttunni við gróðureldana
Enn standa slökkviliðsmenn í stríði við gróðurelda sem kviknað hafa í kringum gosstöðvarnar við litla Hrút. Slökkviliðsstjóri segist hræddur um að ástandið verði eins þar til það tekur að rigna, mikilvægt sé að eldunum sé haldið niðri á meðan þurrt er.

Veðurguðirnir aldrei með slökkviliðsmönnum í liði
Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að mögulega þurfi að grípa til róttækari aðgerða svo hindra megi frekari gróðurelda í kringum eldstöðina við Litla Hrút. Veðurguðirnir séu ekki með slökkviliðinu í liði, hvernig sem viðri.

Mesti mosabruni frá upphafi skráninga
Enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum gróðurelda, sem geisað hafa á Reykjanesi frá upphafi eldgoss þar fyrir rúmri viku síðan. Fram kemur í grein sem birtist á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands í gær að um mesta mosabruna sé að ræða frá því að skráningar á gróðureldum hófust hér á landi.

Sumarbústaðaeigendur unnu þrekvirki við að slökkva gróðureld í Svínadal
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar hefur ráðið niðurlögum gróðurelds sem kviknaði við sumarbústað í Svarfhólsskógi í Svínadal í Hvalfirði. Að sögn slökkviliðsmanns unnu sumarbústaðaeigendur þrekvirki við að slökkva eldinn.

„Þetta er mjög erfitt en okkur gengur vel“
Slökkviliðsmenn börðust við gróðurelda á gossvæðinu á Reykjanesi í allan dag meðal annars með aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að styrkja Björgunarsveitina í Grindavik um tíu milljónir króna og verið er að athuga gerð á nýju bílastæði sem myndi stytta göngu að gosstöðvunum verulega.

Tvö tonn af vatni í senn
Slökkvistarf Landhelgisgæslunnar við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga hefur gengið vel að sögn stýrimanns. Notast er við skjólur sem rúma um tvö tonn af vatni.

Nota þyrlu til að slökkva gróðurelda við gosið
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar flýgur nú yfir eldstöðvarnar við Litla-Hrút og dreifir vatni yfir gróðurelda á svæðinu til að halda aftur af dreifingu þeirra. Þetta er gert að ósk almannavarna til að draga úr líkum á því að eldurinn breiðist að gönguslóðum.

Vara við eldhættu í skógum landsins vegna þurrka
Skógræktin varar við eldhættu vegna mikillar þurrkatíðar að undanförnu á Norður-og Austurlandi og varar fólk sérstaklega við því að fara með eld í skógum og öðru gróðurlendi.

Sinubruni á Akureyri var ekki til mikilla vandræða
Sinubruni kom upp í brekkunni fyrir ofan Skautahöllina á Akureyri í dag. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri segir að tekið hafi um hálftíma að ráða niðurlögum eldsins. Um sé að ræða fyrsta sinubrunann fyrir norðan í vetur.

Sinubruni í Seljahverfi: Slökkvistörf gengu greiðlega
Tekist hefur að slökkva sinubrunann sem upp kom á Rjúpnahæð fyrir ofan Seljahverfið í Reykjavík nú síðdegis. Að sögn Jónasar Árnasonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu, gengu slökkvistörf vel.

Sinubruni á höfuðborgarsvæðinu
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á fjórða tímanum í dag vegna sinubruna við Turnahvarf í Kópavogi.

Litlu mátti muna að sinubruni læstist í skemmu
Brunavörnum Múlaþings gekk vel að ráða niðurlögum sinuelds sem kviknaði á túni við bæinn Dali í Hjaltastaðaþinghá nú síðdegis. Eldurinn logaði alveg við verkfærageymslu á túninu en náði ekki að læsa sér í geymsluna.

Slökktu fjölda gróðurelda síðastliðinn sólarhring
Töluverður erill var hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðastliðinn sólarhring. Dælubílar fóru í fimm útköll vegna gróðurelda, sem flestir kviknuðu miðsvæðis.

Grunur beinist að göngumönnum í Hnappadal
Slökkvistarfi er að ljúka eftir að gróðureldur kviknaði við Eldborg í Hnappadal. Verið er að senda björgunarsveitir sem kallaðar voru til til baka.

„Einhver vitleysingur“ að kveikja sinuelda í borginni
Slökkvilið vinnur nú að því að ráða niðurlögum minniháttar sinuelda í Reykjavík. Kveikt hefur verið í á að minnsta kosti þremur stöðum í borginni.

Aðgerðum lokið í Straumsvík
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu lauk í gærkvöld störfum á vettvangi í Straumsvík þar sem mikill sinubruni kviknaði í fyrradag. Varðstjóri segir að áfram sé þó fylgst grannt með svæðinu.