Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Skuld fyrri eig­anda stöðvi ekki skoðun bíls

Stjórnvöld vilja breyta lögum um kílómetragjald eftir reynsluna af fyrstu átta mánuðum kerfisins. Skuld fyrri eiganda á ekki lengur að geta stöðvað aðalskoðun bíls og Skatturinn á að fá skýrari heimild til að leiðrétta rangt reiknað gjald.

Innlent
Fréttamynd

Höfum setið eftir í bar­áttu við glæpa­hópa

Lögregla fengi meira svigrúm til að rannsaka skipulagða brotahópa samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum dómsmálaráðherra. Meðal annars yrði auðveldara að leita í símum, leggja hald á eignir og hefja símhlustun þegar hætta er á að mikilvæg gögn glatist. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn segir núverandi lög ekki passa við það hvernig brotahópar starfa í dag.

Innlent
Fréttamynd

Full­trúar rúss­neska sendi­ráðsins kallaðir á teppið

Fulltrúi rússneska sendiráðsins var kallaður til fundar í utanríkisráðuneytinu í morgun þar sem alvarlegar athugasemdir voru gerðar við framferði Rússlands og fjölþáttaaðgerðir landsins í kjölfar drónaatviks í Þýskalandi í lok ágúst. Utanríkisráðherra segir að samstaða Íslands með Þýskalandi hafi verið áréttuð eftir drónaatvik.

Innlent
Fréttamynd

Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum

Samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu eru sértækir skattar sem lagðir eru á íslenska viðskiptabanka rúmlega fimmfalt hærri en sértækir skattar sem lagðir eru á bankar í öðrum löndum Vestur-Evrópu og þrefalt hærri en þar sem skattarnir eru næst hæstir. Verði af fyrirhugaðri skattahækkun á íslensk fjármálafyrirtæki hækki hlutfallið enn frekar og Ísland fjarlægist Evrópu í vaxandi mæli.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Líst ekki á breytingar Ingu á úti­vistar­tíma barna að vetri

Reykjavíkurborg, Saman-hópurinn og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggjast gegn tillögu mennta- og barnamálaráðherra um að útivistartími barna 10 til 12 ára verði lengdur um eina klukkustund yfir vetrartímann. Flestir eru þó eru hlynntir því að sumartími taki gildi 1. júní stað 1. maí.

Innlent
Fréttamynd

Fái að hlera og spyrja svo

Dómsmálaráðherra boðar hertari löggjöf gegn skipulagðri brotastarfsemi. Breytingarnar felast meðal annars í þyngri refsingu, lengra gæsluvarðhaldi og að lögreglu verði heimilt að ráðast í rannsóknaraðgerðir áður en dómari hefur veitt leyfi. Þá megi lögregla bíða í allt að sex vikur áður en hún afhendir verjendum gögn.

Innlent
Fréttamynd

Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á lands­byggðinni

Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Stefnan tengist ekki þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Samskiptastjóri ESA segir mögulegt að Íslandi verði stefnt fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að bókun 35 við EES-samninginn hefur ekki verið innleidd hér á landi. ESA meti næstu skref í málinu en hafi ekki tekið ákvörðun. Nýliðin þjóðaratkvæðaatkvæðagreiðsla hafi ekki áhrif á ákvarðanir ESA. 

Innlent
Fréttamynd

Skoða að stefna Ís­landi vegna bókunar 35

Eftirlitsstofnun EFTA skoðar nú að höfða samningabrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35. Málið er sagt hafa verið sett á bið vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Aðild að ESB hafi aldrei verið mark­mið í sjálfu sér

Forysta Viðreisnar segir flokkinn bera meiri ábyrgð en áður á að gæta hagsmuna þeirra sem vildu halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Flokkurinn verði áfram rödd þessa fólks í stjórnmálaumræðunni og við ríkisstjórnarborðið.

Innlent
Fréttamynd

Kynna úr­ræði sem eigi að liðka fyrir kjara­samningum

Forsætisráðherra segist vongóð um að finna ákjósanlega lendingu í ljósi forsendubrests kjarasamninga. Ríkisstjórnin muni funda í Þjóðhagsráði á fimmtudaginn og kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir því að kjarasamningar haldist. 

Innlent
Fréttamynd

Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld

Landspítalinn segir stöðuna varðandi sjúklinga með færni- og heilsumat ekki hafa verið betri það sem af er þessari öld. Síðastliðna 12 mánuði hafa 244 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða verið opnuð.

Innlent
Fréttamynd

Ætli að leggja á­herslu á bókun 35

Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni leggja áherslu á EES- samninginn á haustþingi. Fram hefur komið að stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram þingsályktunartillögu um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi geri ríkisstjórnin það ekki sjálfviljug.

Innlent
Fréttamynd

Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi

Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda. 

Neytendur
Fréttamynd

Rún frá Veitum til Þor­gerðar Katrínar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Rún Ingvarsdóttur í stöðu aðstoðarmanns ráðherra. Rún er með M.A. gráðu í alþjóðafræðum frá Berkeley-háskóla í Kaliforníu og býr yfir fjölbreyttri reynslu af samskiptamálum, fjölmiðlum og atvinnulífinu.

Innlent
Fréttamynd

Leggja til að Evrópu­sam­bands­umsóknin verði form­lega dregin til baka

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokk og Framsóknarflokk ætla að leggja fram þingsályktunartillögu þegar þing kemur saman eftir helgi um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi ríkisstjórnin umsóknina ekki til baka. Rætt var við Guðrúnu um málið í kvöldfréttum Sýnar í gær.

Innlent
Fréttamynd

Bensínlítrinn hefur hækkað á ný

Bensín hefur almennt hækkað um 23 til 24 krónur lítrinn frá því í gær á dælu en á miðnætti rann út tímabundin heimild til að lækka virðisauka á bensín og dísil. Lítrinn af dísil hefur hækkað um 27 krónur. 

Neytendur
Fréttamynd

Enn ó­ljóst hvað verður um um­sóknina

Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka.

Innlent
Fréttamynd

Evrópu­sam­bandið þurfi að vera meira að­laðandi

Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi.

Erlent
Fréttamynd

Á morgun mega hommar gefa blóð

Á morgun mega allir óháð kyni eða kynhneigð gefa blóð þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi. Sérstök skimun var innleidd hjá Blóðbankanum sem hafði gefið góða raun.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert á­kveðið á fundinum: „Það væru frá­leit við­brögð við þessari niður­stöðu“

Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sé lýð­ræðis­legt að halda for­manni Eflingar í myrkrinu

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir undarlegt að hún sé ekki partur af samtali stjórnvalda, atvinnurekenda og verkalýðsforystu um viðbrögð við verðbólgu og brostnum forsendum kjarasamninga. Það séu ekki lýðræðisleg vinnubrögð að halda henni utan samtalsins og hún vonist til þess að vera tekin inn í það samtal í vikunni áður en mögulegar aðgerðir verði kynntar.

Innlent
Fréttamynd

Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist.

Innlent
Fréttamynd

Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar, segir að sjálfur hefði hann ekki flýtt þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Hann segir ESB líklega enn vilja Ísland inn og telur ólíklegt að þau láti Ísland finna fyrir því fyrir að hafna sambandinu í gær. 

Innlent