EES-samningurinn
1 2 3 4 … 4 ›
ESA geti ekki beðið endalaust ESA getur ekki beðið endalaust eftir því að íslensk stjórnvöld lagfæri innleiðingu bókunar 35 segir stjórnarmaður Eftirlitsstofnunar EFTA. Hann segir fólk og fyrirtæki hér á landi verða fyrir tjóni á meðan málið sé óleyst. Innlent 30.9.2026 19:04
Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Allar líkur eru á að ESA falli frá málsókn gegn Íslandi ef Alþingi samþykkir frumvarp um innleiðingu bókunar 35, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Hún hvetur þingmenn til að klára málið. Innlent 30.9.2026 13:02
Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn. Innlent 30.9.2026 10:31
Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Lögmannafélag Íslands tekur undir niðurstöður EFTA-dómstólsins um að ákvæði EES-samningsins girði fyrir skyldu lögmanna til að veita skattyfirvöldum upplýsingar um skjólstæðing sinn ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn krefur. Þetta segir í yfirlýsingu frá félaginu. Innlent 29.9.2026 21:21
Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Móðir lagði íslenska ríkið í skaðabótamáli á þeim grundvelli að EES-reglur hafi ekki verið innleiddar með réttum hætti. Sérfræðingur í Evrópurétti segir að fleiri gætu leitað réttar síns enda skýrt fordæmi nú fyrirliggjandi. Utanríkisráðherra segir dapurlegt að konan hafi neyðst til að berjast í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti sínum. Ekki hefði verið um vandamál að ræða ef bókun 35 hefði verið innleidd með réttum hætti. Innlent 24.9.2026 12:39
Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Móðir sem fékk of lágar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði vann skaðabótamál gegn ríkinu. Íslenska ríkið hafði ekki innleitt EES-lögin nógu fljótt en þeim hefur nú verið breytt. Hún fær 2,7 milljónir í skaðabætur. Innlent 23.9.2026 21:01
Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin. Innlent 22.9.2026 11:01
Áhersla ESB á miðstýringu er „viðvarandi áskorun“ fyrir EES-samninginn Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt. Innherji 20.9.2026 15:23
Penelópa í Valhöll Penelópa, kona Ódysseifs, óf á daginn og rakti upp á nóttunni til að halda biðlunum frá sér. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í sautján ár haft sama háttinn á, með þeirri nýbreytni að röðinni er snúið við. Ályktanir um fullveldi rekja vefinn upp í dagsbirtu, en þegar skyggir er sest við vefstólinn á ný og voðin lengist jafnt og þétt í átt til Brussel. Skoðun 20.9.2026 07:02
„Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ „Þetta eru ekki einhverjar grundvallarbreytingar, þetta er bara hlutur sem er verið að reyna að vinna í og gera betur. Ef Norðmenn finna betri leiðir þá ættum við endilega að fylgjast með því en við erum ekki með sæti við borðið og ég sé enga töfralausn á því.“ Innlent 18.9.2026 19:00
Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Norðmenn vilja nútímavæða og efla eftirlit með EES-samningnum og segir Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs að breytingarnar verði þær stærstu síðan samningurinn var innleiddur árið 1994. Ástæðan er breyttur heimur. Ráðherrann kynnti áherslubreytingarnar í dag á blaðamannafundi ásamt Cecilie Myrseth atvinnuvegaráðherra Noregs. Erlent 18.9.2026 08:25
Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Kostnaður íslenska ríkisins við sérundanþágu fyrir millilandaflug í ETS-viðskiptakerfinu gæti numið rúmum þremur milljörðum króna á tveimur árum. Niðurgreiðslur til flugrekenda á sambærilegum forsendum halda áfram út áratuginn og gætu kostað ríkið tæpa sjö milljarða áður en yfir lýkur. Viðskipti innlent 8.9.2026 08:01
EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Í fyrri grein fjallaði ég um nauðsyn þess að treysta EES-samninginn í sessi og tryggja með réttri innleiðingu bókunar 35 við samninginn að fólk og fyrirtæki geti byggt rétt sinn á honum. En fleira þarf til að EES-samstarfið virki sem skyldi fyrir íslenzkt atvinnulíf. Þrjú verkefni standa þar upp úr. Skoðun 4.9.2026 10:16
Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Norska stjórnarskráin heimilar framsal ríkisvalds á afmörkuðu sviði, en reisir því háan þröskuld. Íslenska stjórnarskráin hefur enga sambærilega heimild. Samt hefur Alþingi ítrekað samþykkt valdframsal með einföldum meirihluta og stuðst við lögfræðiálit frá 1992. Munurinn birtist skýrt í meðferð ríkjanna á þriðja orkupakkanum, fjármálaeftirliti ESB og nú Bókun 35. Skoðun 3.9.2026 16:02
Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Samskiptastjóri ESA segir mögulegt að Íslandi verði stefnt fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að bókun 35 við EES-samninginn hefur ekki verið innleidd hér á landi. ESA meti næstu skref í málinu en hafi ekki tekið ákvörðun. Nýliðin þjóðaratkvæðaatkvæðagreiðsla hafi ekki áhrif á ákvarðanir ESA. Innlent 2.9.2026 16:17
„Þetta er smjörklípa“ Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) undirbýr samningsbrotamál gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35. Málið hafi verið í biðstöðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakar ríkisstjórnina um að afvegaleiða umræðuna með því að leggja áherslu á bókun 35 á meðan ekki sé búið að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka. Innlent 2.9.2026 12:08
Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Eftirlitsstofnun EFTA skoðar nú að höfða samningabrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35. Málið er sagt hafa verið sett á bið vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Innlent 2.9.2026 11:29
Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Um 82 prósent telja að hitamet og skógareldar í Evrópu séu að miklu leyti vegna loftslagsbreytinga. Töluverður munur er eftir kyni og afstöðu til stjórnmálaflokka. Þetta er niðurstaða könnunar Maskínu sem framkvæmd var í ágúst. Innlent 18.8.2026 08:49
Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum „Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi.“ Innlent 14.8.2026 16:41
Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Efnahagsmál á Íslandi hafa aldrei uppfyllt öll þau skilyrði sem sett eru fyrir upptöku evru. Besti árangurinn var þó jafnaður í fyrra þegar Ísland uppfyllti þrjú af fimm skilyrðum en staðan hefur versnað síðan þá. Viðskipti innlent 12.6.2026 07:03
Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Tvö af hverjum þremur lögbýlum á Íslandi eru ekki í skráðum rekstri sem tengist landbúnaði og vísbendingar eru um að lögum sem eiga að takmarka óhóflega jarðasöfnun sé ekki beitt. Lagt er til að lög um eignarhald á jörðum verði hert í skýrslu á vegum Landbúnaðarháskólans. Viðskipti innlent 4.6.2026 13:08
Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs. Innlent 19.5.2026 18:34
Flugvöllur er ekki bara upp á punt Innviðaráðherra hyggst láta greina hvort gullhúðun Evróputilskipana hafi átt sér stað þegar íslenskum flugvöllum var gert að fá bæði starfsleyfi og rekstrarleyfi. Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur er sökuð um að fara langt út fyrir valdheimildir sínar með því að reyna að þrengja að Reykjavíkurflugvelli. Innlent 14.5.2026 08:48
Gullhúðun að flugvellir þurfi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Innlent 12.5.2026 12:32
Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum. Innlent 17.3.2026 16:16
„Við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins“ Íslensk stjórnvöld hefðu náð betri árangri í samningaviðræðum um undanþágur frá losunarheimildum ETS-kerfisins hefði Ísland verið hluti af Evrópusambandinu að mati utanríkisráðherra. Hún ítrekaði orð sín um að hún myndi ekki skrifa undir slæman samning. Innlent 8.3.2026 12:01
Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Jón Baldvin Hannibalsson segir ekkert til í kenningum Dags B. Eggertssonar um að þeir Þorsteinn Pálsson hafi samið á laun um stjórnarmyndun og samþykkt EES-samningsins áður en Davíð Oddsson varð forsætisráðherra 1991. Þetta sé af og frá. Innlent 5.3.2026 07:47
Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að þegar Davíð Oddsson gekk beint úr stóli borgarstjóra í forsætisráðuneytið 1991 hafi samningar um EES-samningana verið tilbúnir á laun í samningum milli þeirra Þorsteins Pálssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar. Innlent 3.3.2026 12:13
Tortryggni er ekki utanríkisstefna Heimsmyndin sem blasti við íslensku þjóðinni sem samþykkti EES-samninginn á tíunda áratugnum er ekki lengur til. Stórveldi heimsins brýna nú fyrir heimsbyggðinni að valdbeitingar á borð við viðskiptaþvinganir og tollmúrar verða óhikað nýttar sem tæki til að byggja veggi milli bandamanna - ekki síst í þeim tilgangi að stilla smáum og meðalstórum þjóðum upp við þá. Skoðun 23.2.2026 07:30
Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Icelandair og ítalskt leiguflugfélag fengu úthlutað losunarheimildum frá íslenska ríkinu á grundvelli sérlausnar ESB fyrir Ísland í síðasta mánuði. Ríkissjóður verður af rúmlega 400 milljónum króna í tekjur sem hann hefði getað haft af því að selja heimildirnar. Viðskipti innlent 18.2.2026 08:30