Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Argentínski knattspyrnumaðurinn Alejandro Garnacho segir að hann vilji endurheimta sjálfstraustið undir stjórn Unai Emery eftir komu sína til Aston Villa. Enski boltinn 24.7.2026 15:47
Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Aston Villa hefur fengið argentínska vængmanninn Alejandro Garnacho að láni frá Chelsea, gengið verður svo frá kaupum næsta sumar til að komast fram hjá fjárhagsreglum. Enski boltinn 23.7.2026 14:42
Aston Villa reynir að fá Garnacho Aston Villa er í viðræðum við Chelsea um að fá Alejandro Garnacho í sínar raðir. Búist er við að Garnacho komi að láni sem gæti endað með því að Villa kaupi leikmanninn. Fótbolti 21.7.2026 20:03
Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær. Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár, nýliðar eru á leið í Evrópu og þekkt lið á leiðinni niður. Deildin kveður goðsagnir í lifanda lífi. Enski boltinn 25. maí 2026 10:31
Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Líða fer að kveðjustund í enska boltanum þennan veturinn. Lokaumferð deildarinnar fer fram á sunnudag þar sem Arsenal mun lyfta langþráðum bikar og annað hvort Tottenham eða West Ham mun falla í B-deildina. Sýn Sport verður með puttann á púlsinum. Enski boltinn 22. maí 2026 11:00
Lítið þorp í Gana hélt skrúðgöngu fyrir Aston Villa Á sama tíma og lið Aston Villa fagnaði Evrópudeildartitlinum með skrúðgöngu í Birmingham var skrúðganga haldin í litlu þorpi í Gana af sama tilefni. Fótbolti 21. maí 2026 22:01
Spilaði úrslitaleikinn puttabrotinn Emiliano Martinez, markmaður Aston Villa, spilaði puttabrotinn í sigri liðsins í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á móti Freiburg sem fór fram í gærkvöldi. Fótbolti 21. maí 2026 10:30
Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Sigur Aston Villa í Evrópudeildinni í fótbolta hefur ansi áhugaverð áhrif á lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á sunnudaginn. Þar ræðst hvort það verða fimm eða sex ensk lið í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Enski boltinn 21. maí 2026 09:01
Sjáðu Villa fagna titli: Rikki G missti sig yfir draumamörkum Aston Villa varð í gærkvöld Evrópudeildarmeistari með frábærum 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleik í Istanbúl. Mörkin mögnuðu úr leiknum og meistarafögnuðinn má sjá á Vísi. Fótbolti 21. maí 2026 08:31
Vilhjálmur Bretaprins fagnaði titlinum með Aston Villa Vilhjálmur Bretaprins lét sig ekki vanta þegar Aston Villa spilaði úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Freiburg og fagnaði manna mest þegar sigurinn var í höfn. Fótbolti 20. maí 2026 22:58
Aston Villa er Evrópudeildarmeistari Aston Villa vann Evrópudeildina með 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleiknum. Enska liðið hafði algjöra yfirburði gegn því þýska og mörkin skoruðu Youri Tielemans, Emiliano Buendia og Morgan Rogers. Fótbolti 20. maí 2026 18:31
Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Aston Villa tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu, í annað sinn á þremur árum, með frábærum 4-2 sigri á heimavelli gegn Liverpool í slag liðanna í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Enski boltinn 15. maí 2026 20:35
Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Ashley Young kvaddi fótboltaferil sinn formlega á samfélagsmiðlum í gær. Þessi fertugi fyrrum leikmaður lauk honum með því að fara upp um deild. Enski boltinn 14. maí 2026 15:01
Mistókst að lyfta sér upp fyrir Liverpool Þremur leikjum er lokið í dag í ensku úrvalsdeildinni og öllum lauk þeim með jafnteflum. Falldraugurinn vofir enn yfir Nottingham Forest og Aston Villa mistókst að gera fjórða sætið að sínu. Enski boltinn 10. maí 2026 15:01
Aston Villa - Nott. Forest | Létt veganesti gestanna Aston Villa þarf að vinna upp 1-0 forskot Nottingham Forest í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 7. maí 2026 18:32
Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og mörkin úr þeim má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 4. maí 2026 07:00
Tottenham kom sér upp úr fallsæti Tottenham kom sér upp úr fallsæti með 1-2 sigri gegn Aston Villa í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Conor Gallagher og Richarlison skoruðu mörkin mikilvægu fyrir Tottenham en Emi Buendia bætti úr stöðunni seint í leiknum. Enski boltinn 3. maí 2026 17:33
Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Nottingham Forest vann Aston Villa í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Crystal Palace fagnaði sigri á útivelli í Sambandsdeildinni. Fótbolti 30. apríl 2026 20:26
Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Missy Bo Kearns, landsliðskona Englands í fótbolta og leikmaður Aston Villa, lenti í hræðilegu áfalli nýlega en þakkar liðslækninum fyrir að hafa líklega bjargað lífi sínu þegar hún missti fóstur. Enski boltinn 28. apríl 2026 07:00
Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Dramatíkin var allsráðandi í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Baráttan bæði á toppi og botni deildarinnar virðist ætla að teygja sig allt til loka tímabilsins. Hér neðar í fréttinni má sjá öll mörk gærdagsins, allt það helsta. Enski boltinn 26. apríl 2026 09:00
Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Fulham lyfti sér upp í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1-0 sigri á Aston Villa á Craven Cottage í fyrsta leik dagsins. Ryan Sessegnon skoraði eina mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Enski boltinn 25. apríl 2026 13:23
Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland Tammy Abraham skoraði fyrir Aston Villa í uppbótartíma til að tryggja 4-3 sigur gegn Sunderland í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Sunderland tókst að snúa leiknum á lokamínútunum en þarf að sætta sig við sárt tap. Enski boltinn 19. apríl 2026 15:04
Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Manchester City minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í sex stig með öruggum sigri á Chelsea, 0-3, á Stamford Bridge í gær. Alls voru níu mörk skoruð í leikjunum fjórum í gær. Enski boltinn 13. apríl 2026 08:33
Villa vann með tveimur en Forest fer heim með jafna stöðu Aston Villa vann öruggan tveggja marka sigur á útivelli gegn Bologna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar en einvígið hjá Nottingham Forest og Porto er hnífjafnt. Fótbolti 9. apríl 2026 21:12