Samgöngur

Fréttamynd

Lýðheilsa og leiðin til Siglu­fjarðar

„Nú berast fréttir af einu fjalli enn til að bora og aka í gegnum til Siglufjarðar“, sagði góður vinur á árdögum Valkyrjustjórnarinnar. Við sammæltumst um að ábyrg stjórnsýsla og meðferð skattfjár tryggðu að fullrannsökuðum Fjarðarheiðargöngum yrði ekki frestað fyrir órannsökuð Fljótagöng.

Skoðun
Fréttamynd

Samningur um Ísa­fjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair

Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða.

Innlent
Fréttamynd

Varnarsigur segir for­maður bæjar­ráðs Ísa­fjarðar

Vegagerðin hefur samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar gegn 1,7 milljarða króna niðurgreiðslu næstu fjögur ár. Það er ríflega helmings lækkun frá tilboði Icelandair, sem var upp á 3,5 milljarða króna, en á móti kemur að flugferðum er fækkað um 28 prósent. Formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar kveðst líta á þetta sem varnarsigur.

Innlent
Fréttamynd

Mótorinn í Herjólfi þarf til út­landa

Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af.

Innlent
Fréttamynd

Gæti sektað flug­stjóra um allt að átta milljónir króna

Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er erfiður mánu­dagur“

Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni.

Innlent
Fréttamynd

Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur

Samgöngustofa hefur hafið rannsókn á lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag. Ráðamenn Icelandair líta atvikið mjög alvarlegum augum. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum gerir hins vegar lítið úr því og fullyrt er að farþegar um borð hafi fagnað stórkostlegri upplifun.

Innlent
Fréttamynd

Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda í­búa

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Þegar hljóð og mynd fara ekki saman

Þegar hljóð og mynd fer ekki saman er eðlilegt að spyrja sig spurninga. Núverandi ríkisstjórn hefur haft háleit markmið og ekki farið leynt með það að þau ætli sér að rjúfa kyrrstöðu í jarðgangnagerð og almennt í samgöngumálum.

Skoðun
Fréttamynd

Markaðurinn tók tíðindunum vel

Forstjóri Icelandair segir það koma í ljós á næstu vikum hvort félagið kaupi tæpan helming í Fly Play Europe á Möltu, dótturfélagi Play sáluga. Félagið sem var stofnað árið 2024, býður á heimasíðu upp á leiguflug og áhafnir.  

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Engar fækkanir fyrir­hugaðar fari kaupin í gegn

Icelandair kannar kaup á tæplega helmingshlut í starfsemi Fly Play á Möltu. Forstjórinn segir að takist kaupin muni það efla starfsemi félagsins. Ekki sé gert ráð fyrir fækkun starfsfólks hér á landi. Þrotabú Play mun fá tiltekna hlutdeild í fyrirhuguðum viðskiptum gangi kaupin eftir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hellis­heiði opin en Þrengsli enn lokuð

Hellisheiði hefur verið opnuð á nýjan leik og en Þrengsli eru enn lokuð. Á vef Vegagerðarinnar segir að krapi sé víða á vegum þar og snjóþekja einnig. Þungfært er á Mosfellsheiði.

Innlent
Fréttamynd

Færri strætó­ferðir um páskana

Strætó verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana á höfuðborgarsvæðinu og á sunnudags- og laugardagsáætlun landsbyggðinni. Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina.

Innlent
Fréttamynd

Tvö­faldur verð­munur á Súðavíkurgöngum

Tólf til fjórtán milljörðum króna munar í kostnaði eftir því hvaða leið verður valin fyrir jarðgöng milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Nokkrir valkostir hafa verið til skoðunar um hvar göngin eigi að liggja. Í tillögu að nýrri samgönguáætlun eru þau í öðru til þriðja sæti ásamt Fjarðagöngum fyrir austan en á eftir Fljótagöngum.

Innlent
Fréttamynd

174 þúsund króna skutlið

Í fjögur ár hef ég ítrekað lagt fram sömu einföldu og sanngjörnu tillöguna við gerð fjárhagsáætlunar í Hafnarfirði: að bærinn niðurgreiði strætókort barna og ungmenna. Í fjögur ár hefur meirihlutinn hafnað henni.

Skoðun
Fréttamynd

Tókust á um Borgarlínuna

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Pétur Marteinsson, oddviti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, tókust á um Borgarlínuna í Bítinu á Bylgjunni. Hildur telur að endurskoða þurfi áætlunina frá grunni en Pétur bendir á að verkefnið sé þegar hafið og skiljanlegt sé að finna fyrir einhverjum vaxtaverkjum. Þau sammælast um að flýta þurfi Miklubrautargöngunum.

Innlent
Fréttamynd

Glæsibrú á Vest­fjörðum boðin út í næsta mánuði

Vegagerðin hyggst í næsta mánuði bjóða út smíði 210 metra langrar brúar yfir Djúpafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún verður ein svipmesta brú landsins en jafnframt lokaáfanginn í einhverri umdeildustu vegagerð á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Gamblað með göng og líf lögð undir

Þessi vetur hefur verið þungur fyrir Austfirðinga. Óvenju þungur. Ekki bara hefur óveður ítrekað lokað vegum, heldur hefur Innviðaráðherra þyngt róðurinn enn frekar.

Skoðun