
Vala Matt

Nota blómapott sem grill í garðinum
Myndlistarmaðurinn Pétur Gautur og landslagsarkitektinn Berglind Guðmundsdóttir búa í Hafnarfirði þar sem nostrað hefur verið við garðinn sem Berglind hannaði sjálf. Í garðinum má með annars finna blómapott sem er notaður sem grill og gólfsíðar hurðar sem þau settu til þess að komast beint út í garð.

Kossasjálfa og bannað að tala um börnin í fríinu
Athafna- og fjölmiðlakonan Guðbjörg Gissurardóttir keypti sér eldgamlan, rauðan húsbíl á Bland sem hún nefndi Runólf og ferðast um landið og ræktar sambandið með eiginmanni sínum Jóni Árnasyni en þau fóru meðal annars í brúðkaupsferðina sína á bílnum.

Fíflar beint úr garðinum bragðgóðir bæði steiktir og djúpsteiktir
Hver myndi trúa því að djúpsteiktir og einnig steiktir fíflahausar væru algjört lostæti.

Vala Matt lærði að gera uppáhaldspastarétt Sophiu Loren á Ítalíu
Vala Matt fór í sælkeraleiðangur til Bibione á Ítalíu fyrir Ísland í dag á dögunum.

Vala Matt táraðist næstum því yfir sósu Evu Laufeyjar
Í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld fer Vala Matt og heimsækir sjónvarpskokkinn hana Evu Laufeyju og fékk að skoða ísskápinn hennar en Eva Laufey hefur alveg slegið í gegn ásamt Gumma Ben í sjónvarpsþáttunum Ísskápastríðið.

Vala Matt og Rósa í eldhúsinu: Hollar og bragðgóðar kartöfluflögur
Í Íslandi í dag í kvöld fer Vala Matt og heimsækir Rósu Guðbjartsdóttur, stjórnmálakonu og rithöfund, í Hafnarfjörðinn.

Khoresht Bademjan: Matargerð sem gleður bæði líkama og sál
Í lokaþætti Sælkeraheimsreisu Völu Matt í Reykjavík heimsótti hún arkitektinn Ali sem kynnti henni fyrir persneskri matargerð sem er bæði litrík og bragðmikil.

Spennandi matargerð frá suður-ameríku í þætti Völu Matt
Vala Matt heldur áfram að heimsækja sannkallaða sælkera í Reykjavík og í síðasta þætti sínum heimsótti hún suður-amerískt eldhús. Ceviche með löngu, bragðmikil chili sósa og nautakjötsréttur voru réttir kvöldsins að þessu sinni.

Vala Matt heimsækir pólskt eldhús í Reykjavík
Í síðasta þætti kynntist Vala Matt pólskri matarmenningu. Kartöflubollur með svínakjöti og ljúffeng ostakaka með súkkulaðisósu.

Vala Matt kynnist taílenskri matargerð
Uppskrift að ljúffengum vefjum með grænmeti og bragðmiklu karrímauki. Úr síðasta þætti Sælkeraheimsreisunnar þar sem Vala Matt fékk að kynnast matargerð frá Tælandi og heimsótti þær Warapon Chanse og Patcharee Raknarong.

Einfalt og gott sushi
Vala Matt fékk að kynnast japanskri matargerð í síðasta þætti Sælkeraheimsreisunnar sem sýndir eru á þriðjudagskvöldum á Stöð 2. Sushi er sennilega eitt það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar minnst er á japanskan mat og í þættinum fékk Vala uppskrift af mjög einföldum sushirétt sem tilvalið er að bera fram í sumar.

Coq au Vin kjúklingapottréttur
Í síðasta þætti Sælkeraheimsreisu Völu Matt heimsótti hún hina frönsku Dominique og fræddist um ljúffenga matargerð frá heimalandi hennar. Hún útbjó klassískan Coq au vin kjúklingapottrétt sem allir geta leikið eftir og bragðast dásamlega.

Uppskriftir úr Sælkeraheimsreisunni
Vala Matt fór nýlega af stað með nýja þáttaröð á Stöð 2, Sælkeraheimsreisuna. Þar heimsækir hún fólk hvaðanæfa að úr heiminum og eldar með þeim dýrindis máltíðir. Í síðasta þætti heimsótti hún fjölskyldu frá Nepal sem býr hér á landi.

Mataræði algjört lykilatriði
Heilsugengið hefur göngu sína á ný í kvöld á Stöð 2. Gestir þáttarins í kvöld eru Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir.

Heilsugengið - Læknirinn læknaði veikt nýra sitt með því að fasta
Solla býr einnig til súper gott og fljótlegt morgunbúst fyrir Björku, en það er fljótlegt hollustustart fyrir vinnudaginn.

Vala Matt: Skötuselur með beikoni
"Hann tók þrjár mínútur að elda og var geggjaður með glænýjum kartöflum,“ segir Vala Matt en sjöundi þáttur Sælkeraferðarinnar var sýndur á Stöð 2 í gær.

Rabarbarasulta, tómatsúpa og pastaréttur
Hér má sjá uppskift að pastakjúklingarétti, rabarbarasultu og tómatsúpu úr sælkeraþætti Völu Matt sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum.

Vala Matt: Steinbítsréttur frá Suðureyri við Súgandafjörð og desert frá Fjöruhúsinu
Uppskriftirnar eru gómsætar vægast sagt.

Vala Matt: Birkite frá Hallormsstað og þorskréttur frá Lónkoti í Skagafirði
Hér er uppskrift að ljúffengum Þorskrétti frá Lónkoti í Skagafirði og birkitei frá Hallormsstað úr sælkeraþætti Völu Matt sem sýndur er á Stöð 2.

Vala Matt: Sushi pizza og ís með rúgbrauðsmulningi
Rúgbrauð skorið í sneiðar og síðan í mjóar lengjur.

Vala Matt: Uppskriftir Óskar og Þóru frá Seyðisfirði
Hér má finna uppskriftir Óskar Ómarsdóttur og Þóru Guðmundsdóttur á Seyðisfirði.

Vala Matt: Uppskrift frá Völla Snæ á Borg Restaurant
Súkkulaðikonfekt með kókosflögum.

Sælkeraferðin - Ódýr og holl selleríbuffmáltíð
Vala Matt sækir Þóru Guðmundsdóttur heim á farfuglaheimilið Hafölduna á Seyðisfirði. Þóra töfrar fram fljótlega, ódýra og holla máltíð. Úr Sælkeraferðinni á Stöð 2.

Solla og Vala Matt: Magnað múslí nammi
Í kvöld í þættinum Ísland í dag verður hollustukokkurinn snjalli Solla Eríks með snilldar uppskrift að hollu sælgæti sem hægt er að gæða sér á með góðri samvisku. Upplagt að taka með sér í vinnuna eða skólann. Geggjað gott og dúndur hollt eins og allt sem Solla býr til. 5 dl haframjölsmúslí m/lífrænu súkkulaði 1 dl agave sýróp 1 dl hnetusmjör ½ dl kókosolía ½ dl kakóduft smá vanilluduft

Erfiðleikar og hollusta í Íslandi í dag
Í sjónvarpsþættinum Ísland í dag, sem hefst strax að loknum fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:55, hittum við Rósalind Óskarsdóttur sem greindist með bráðahvítblæði fyrir um átta mánuðum. F Foreldrar hennar standa í þeirri trú að orsök sjúkdómsins hafi verið að finna í húsinu þeirra en þar var rafsegulsviðið áttfalt meira en eðlileg mörk gera ráð fyrir. Þá fáum við að vita allt um stórbrotna íþróttasýningu, þá fyrstu sinnar tegundar hér á landi og Solla og Vala Matt baka ljúffengt hollustubrauð.
Óvenjulegur brunch
í 10. þætti Matar og lífsstíls koma fyrir myndlistarhjónin ungu Ragnar Kjartansson og Ásdís Gunnarsdóttir sem eru þekkt fyrir óvenjulega og frumlega listsköpun sína.
Listakonan Gulla í eldhúsinu: Lambafille með bláberja og pistasíufylltum ananas
Í níunda þætti Matar og lífsstíls sækir Vala listakonuna Gullu heim. Matarlistin virðist ekki vefjast fyrir Gullu sem önnur listform.
Brauð á grillið að hætti Jóa Fel: Hvítlaukspizza, snittur og focaccia
Í áttunda þætti Matar og lífsstíls er bakarinn og listamaðurinn hann Jói Fel eða Jóhannes Felixson eins og hann heitir fullu nafni heimsóttur.
Matarboð Röggu Gísla: Fiskréttur og grænkálssalat
Í 7. þætti Völu Matt, Matur og Lífstíll, deilir söngkonan Ragga Gísla með okkur dýrindis uppskriftum af fiskrétti í ofni, grænkálssalati og pönnukökum.
Grillaður kjúklingur í dýrindis marineringu
Í 6. þætti Matar og lífsstíls heimsækir Vala Matt hjónin Jón Arnar og Ingibjörgu. Hér má sjá uppskriftina úr þættinum.