Bólusetningar

Bólusetja gegn kórónuveirunni með munnúða
Kínverjar hafa, fyrstir þjóða, hafið bólusetningar gegn COVID-19 með munnúða í stað sprautu.

Breiðvirkt bóluefni gegn HPV gefið bæði stúlkum og drengjum
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að öllum börnum, óháð kyni, verði boðin bólusetning gegn HPV-veirunni. Jafnframt verður nýtt breiðvirkara bóluefni tekið til notkunar, sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameinum af völdum HPV.

Til skoðunar að taka í notkun breiðvirkara bóluefni gegn HPV
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir þörf á því að skipta um bóluefni gegn HPV-veirunni hér á landi en hingað til hefur bóluefnið Cervarix verið boðið stúlkum við 12 ára aldur.

Vonast eftir bóluefnum gegn krabbameinum fyrir 2030
Bóluefni gegn krabbameinum gætu komið á markað fyrir árið 2030, segja hjónin á bakvið Covid-bóluefni Pfizer og BioNTech.

Um nítján þúsund þáðu bólusetningu
Um það bil nítján þúsund íbúar höfuðborgarsvæðisins sextíu ára og eldri þáðu bólusetningu í tveggja vikna átaki í Laugardalshöll sem lauk í síðustu viku.

Biðla til fólks að mæta í dag til að kaffæra ekki stöðvunum í haust
Í dag er síðasti dagur tveggja vikna bólusetningarátaks Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Laugardalshöllinni en um tvö þúsund manns hafa mætt á dag frá því að átakið hófst. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að hver sé að verða síðastur og vonast eftir góðum kippi í dag en opið verður til klukkan þrjú.

Um tvö þúsund manns mættu í bólusetningu
Í fyrsta sinn í hálft ár var stólum raðað upp fyrir fjöldabólusetningu og hjúkrunarfræðingar gengu um með bakka fulla af sprautum. Hluti þeirra sem mættu fengu bæði inflúensubólusetningu og örvunarskammt af nýju bóluefni gegn ómíkrón afbrigðinu.

Búast við þrjú til fjögur þúsund manns í Laugardalshöll á dag
Bólusetningarátak í Laugardalshöll hefst á morgun þar sem einstaklingum sextíu ára og eldri verður boðið fjórða skammt bóluefnis gegn Covid og inflúensubólusetningu samhliða því. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á von á allt að þrjú til fjögur þúsund manns á dag í höllina en sambærilegt átak er að fara af stað víðar á landinu.

Hefja aftur bólusetningarátak í Laugardalshöll
Bólusetningar með fjórða skammt bóluefnis gegn Covid-19 hefjast í Laugardalshöll á morgun fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins sextíu ára og eldri. Boðið verður upp á inflúensubólusetningu samhliða. Stefnt er á að bjóða yngri einstaklingum örvunarskammt eftir að átakinu lýkur.

Lýsa yfir neyðarástandi vegna lömunarveiki
Ríkisstjórinn í New York í Bandaríkjunum hefur lýst yfir neyðarástandi vegna hættu á útbreiðslu lömunarveiki, sem einnig er þekkt sem mænusótt, í fylkinu.

Skrefinu nær bóluefni gegn malaríu en Bretar gætu slaufað verkefninu
Þessa stundina er R21 bóluefnið gegn malaríu prófað í Búrkínu Fasó, Kenía, Malí og Tansaníu. Efnið hefur sýnt allt að 77 prósent virkni en allt gæti farið í vaskinn ef Bretar hætta við aðkomu sína að verkefninu.

Moderna lögsækir Pfizer
Bandaríska lyfjafyrirtækið Moderna ætlar að lögsækja lyfjarisann Pfizer og BioNTech, þýska samstarfsaðila hans, fyrir brot á einkaleyfisrétti við þróun fyrsta bóluefnisins við Covid-19.

Fundu mænusótt í skólpi í New York
Yfirvöld í New York hafa greitt frá því að mænusótt (e. Polio) hafi fundist í skólpkerfi borgarinnar. Það þykir til marks um að veiran sé í meiri dreifingu meðal óbólusettra í borginni en áður var talið. Áður hafði mænusótt ekki greinst í Bandaríkjunum í meira en áratug.

Byrjuðu á fjörutíu skömmtum af bóluefni gegn apabólu
Bólusetning gegn apabólunni hófust í vikunni en aðeins fjörutíu skammtar bóluefnis hafa borist til landsins. Ekkert bóluefni gegn apabólu hefur hlotið markaðsleyfi í Evrópu en bóluefni sem ætlað er gegn bólusótt er talið veita vernd gegn apabólu.

Bólusetti þrjátíu einstaklinga með sömu sprautunni
Yfirvöld í Indlandi rannsaka nú heilbrigðisstarfsmann í fylkinu Madhya Pradesh en hann er talinn hafa bólusett þrjátíu einstaklinga gegn Covid-19 með sömu sprautunni.

Framkvæmdastjórn ESB gefur notkun bólusóttarbóluefni gegn apabólu grænt ljós
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt að bóluefni fyrir bólusótt verði notað gegn apabólunni. Von er á 1.400 slíkum skömmtum til Íslands í haust.

Tilfelli lömunarveiki greindist í New York ríki
Tilfelli lömunarveiki hefur greinst í New York ríki í Bandaríkjunum en þetta er í fyrsta skipti síðan 2013 sem sjúkdómurinn greinist þar í landi.

Bólusetning skiptir máli þegar Tuchel skoðar nýja leikmenn
Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, er án tveggja miðjumanna á undirbúningstímabili Chelsea í Bandaríkjunum, þeirra N’Golo Kante og Ruben Loftus-Cheek, vegna þess að leikmennirnir eru ekki bólusettir fyrir Covid-19. Óbólusettir mega ekki ferðast til Bandaríkjanna.

Ríkið hefur greitt þremur bætur vegna bólusetningar gegn Covid-19
Íslenska ríkið hefur greitt þremur skaðabætur vegna líkamstjóns af völdum bólusetningar gegn Covid-19. Tugir bótakrafna eru í vinnslu hjá Sjúkratryggingum Íslands.

Ekkert barn veiktist alvarlega af Covid-19 fyrir haustið 2021
Ekkert þeirra barna sem greindust með Covid-19 fyrir haustið 2021 varð alvarlega veikt, þrátt fyrir að börnin hefðu ekki verið bólusett. Tæpur fjórðungur var einkennalaus en þrjú af hverjum fjórum sýndu meðalmikil einkenni.

Djokovic ætlar ekki að láta bólusetja sig og mun ekki keppa á Opna bandaríska
Aðeins örfáum klukkustundum eftir að tryggja sér sinn fjórða Wimbledon-titil í röð tilkynnti Novak Djokovic að hann muni ekki keppa á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis þar sem hann ætlar ekki að láta bólusetja sig við kórónuveirunni.

Controlant fengið 24 milljarða greidda fyrirfram frá lyfjarisanum Pfizer
Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant, sem hefur gegnt lykilhlutverki í dreifingu og geymslu bóluefnaskammta gegn Covid-19 fyrir Pfizer, er með samkomulag við bandaríska lyfjarisann sem hefur tryggt félaginu verulegar fyrirfram innheimtar tekjur. Í árslok 2021 námu slíkar tekjur tengdar samningum við Pfizer um 174 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 24 milljarða íslenskra króna, og koma þær að mestu inn í reksturinn á þessu ári og því næsta.

Óbólusettir leikmenn fá ekki félagaskipti
Knattspyrnufélög víðsvegar um Evrópu hætta að spyrjast fyrir um leikmenn sem þau sækjast eftir ef þau komast af því að leikmennirnir eru ekki bólusettir.

Bóluefni gegn apabólu væntanlegt í júlí
Bóluefni gegn apabólu er væntanlegt til Íslands í lok júlí. Íslenskt stjórnvöld tryggðu sér birgðir af bóluefninu Jynneos með þátttöku í Evrópusamstarfinu HERA og EU4health.

Ted Cruz brjálaður út í brúðurnar
Bandaríski þingmaðurinn Ted Cruz er ekki par sáttur við brúðuna Elmo eftir að sjónvarpsþátturinn Sesamstræti deildi myndbandi af Elmo þar sem hann segist hafa fengið bólusetningu við Covid-19. Þingmaðurinn segir Elmo ekki hafa neina vísindalega þekkingu sem styðji bólusetningar barna undir fimm ára aldri.

Mikið álag í sýnatökum og margir vilja fjórða bóluefnaskammtinn
Mikil aðsókn er nú í sýnatökur þar sem töluverður fjöldi fólks er enn að greinast með Covid. Áhersla hefur verið lögð á fjórða bóluefnaskammtinn og hafa nokkur þúsund manns mætt í bólusetningu í vikunni hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu.

Mikil aðsókn í opna húsið
Í dag hófst aftur opið hús í bólusetningar gegn Covid-19 fyrir áttatíu ára og eldri og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Yfirmaður hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að mun fleiri hafi mætt en búist var við.

Varasamt að kyssa og knúsa viðkvæma
Sóttvarnalæknir fundar í dag með fulltrúum hjúkrunarheimila um mögulegar takmarkanir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Hann hvetur fólk til þess að fara varlega í kringum þá sem eru í áhættuhópum og segir skynsamlegt fyrir viðkvæma að taka upp grímunotkun á ný.

„Eigingjörn nálgun getur haft skaðlegar afleiðingar síðar meir“
Tilfellum apabólu fjölgar nú hratt í Evrópu og er til skoðunar að lýsa yfir neyðarástandi. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við slæmum afleiðingum ef ríkari lönd sýna ekki samstarfsvilja til að bregðast við útbreiðslunni.

Gefa grænt ljós á bólusetningar barna niður í sex mánaða aldur
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að leyfa Covid-19 bólusetningar barna frá sex mánaða aldri. Talið er að bólusetningar geti hafist strax í næstu viku en hingað til hafa fimm ára börn verið þau yngstu sem hafa mátt fá bóluefni.