Eldgos og jarðhræringar
126 127 128 129 130 131 … 131 ›
Gosið að kvöldlagi - myndir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins tók meðfylgjandi myndir á Fimmvörðuhálsi um klukkan níu í gær. Vilhelm fékk far með þyrlu upp á hálsinn en gekk svo til baka. Eldgosið er ekki síður mikilfenglegt að kvöldlagi en í dagsbirtu eins og sjá má. Innlent 25.3.2010 13:08
Ljónið er fast úti í Hrísey í einangrun Sirkus Ísland sýnir í Salnum í Kópavogi. Fyrsta sýning er á sunnudaginn og svo á að sýna í dymbilvikunni og um páskana, samtals ellefu sýningar. Sýningin er kölluð Sirkus Sóley. Lífið 24.3.2010 22:30
Gufustrókar hækka í 12.000 fet í logninu Gufustrókar úr eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi hækkuðu verulega þegar líða tók á daginn í gær og vind lægði. Innlent 24.3.2010 22:32
Ferðamenn vilja sjá náttúru Þegar eldgos kemst í erlendar fréttir dregur það athygli að óspilltri íslenskri náttúru. Það eykur á spennuna fyrir þessu sérkennilega landi. Allt slíkt hjálpar til þess að fá hingað ferðamenn, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair. Innlent 24.3.2010 22:32
Gos ekki hafið á nýjum stað - mikil gufa orsakar bjarma Fjölmargir hafa haft samband við fréttastofu í kvöld og talið að eldgos væri hafið á nýjum stað í grennd við gossprunguna á Fimmvörðuhálsi. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir svo ekki vera. Innlent 24.3.2010 22:02
Almenningi áfram bannað að nálgast eldstöðina Eyjafjallajökull er enn að þenjast út og meðan svo er verður fólki áfram bannað að nálgast gosstöðvarnar, segir sýslumaður Rangæinga og yfirmaður almannavarna á svæðinu. Yfirvöld eru þó að skoða hvort unnt sé að veita almenningi betri aðgang að svæðinu. Innlent 24.3.2010 19:33
Hraunfossinn stórkostlegt náttúrufyrirbæri Stórfenglegt náttúrufyrirbæri, glóandi hraunfoss, um tvöhundruð metra hár, sést nú á eldsstöðvunum í Eyjafjallajökli þegar hrauneðjan steypist niður í hið hrikalega Hrunagil við Heljarkamb. Innlent 24.3.2010 18:45
Þrýstingurinn hefur ekki minnkað - enn hætta á að gosið fari undir jökul Almannavarnanefnd Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu fundaði í dag með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og vísindamönnum um eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Innlent 24.3.2010 18:12
Þingmenn skoða gosið Þingmenn Suðurkjördæmis eru að fara upp á Fimmvörðuháls að skoða eldgosið í Eyjafjallajökli. Fjölmargir hafa farið þangað í dag en Landsbjörg býst við því að margir muni fara að skoða gosið næstu daga og um helgina. Innlent 24.3.2010 13:45
Vísindamenn komnir að eldstöðinni Vísindamenn komust fyrir stundu upp að gosinu á Fimmvörðuhálsi og eru nú að taka sýni. Óróinn undir gosstöðvunum var heldur meiri í nótt en í gærdag þannig að gosvirknin er ekki að minnka. Innlent 24.3.2010 07:56
Vefmyndavélar vakta eldfjallið Fjarskiptafyrirtækið Míla hefur sett upp tvær myndbandstökuvélar í nánd við gossvæðið á Fimmvörðuhálsi og opnað fyrir beina útsendingu í gegnum vefsíðu fyrirtækisins. Innlent 23.3.2010 22:59
Eyjafjallajökull bólgnar enn út Kvika streymir enn inn undir Eyjafjallajökul og fjallið bólgnar enn út. Eldfjallafræðingur telur að gosið muni standa í einhverjar vikur. Innlent 23.3.2010 18:57
Um tugur jarðskjálfta undir Eyjafjallajökli Um tugur jarðskjálfta hafa mælst undir Eyjafjallajökli frá miðnætti en þeir hafa allir verið minni en 2 að stærð. Almannavarnanefnd lögreglustjórans á Hvolsvelli fundar með Vísindamönnum kukkan fjögur í dag. Ekkert hefur verið flogið yfir eldstöðarnar í dag vegna veðurs. Innlent 23.3.2010 15:53
Vilja hleypa ferðamönnum að gosinu „Það gengur vel, núna erum við að skoða aðgengi ferðmanna að svæðinu og hvernig má gera það betra,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna, en stefnt er að því að hleypa ferðamönnum nálægt gosinu til þess að skoða það. Ef öryggið verður tryggt þá er það mögulegt að sögn Víðis. Innlent 23.3.2010 10:27
Eldgosið eyðilagði heimsmetstilraun Eldgosið við Fimmvörðuháls eyðilagði aðra af tveimur heimsmetstilraunum svissneska flugmannsins Riccardo Mortara. Mortara hugðist slá met ævintýramannsins Steves Fossett með því að fljúga hringinn í kringum hnöttinn á innan við 67 klukkustundum. Lífið 22.3.2010 21:26
Buguðu foreldrarnir Um daginn var frétt í þessu ágæta blaði um konu sem var gífurlega ósátt við að komast ekki með níu mánaða barn sitt á háværa teknóglaða Latabæjarhátíð nema að borga miðann fullu verði. Þessi frétt leiddi huga minn að þeirri algengu tilhneigingu íslenskra foreldra til að fara með kornung börn út um allar trissur vegna einhvers konar skandinavískrar hippafílósófíu þar sem börnin eiga að ráða öllu. Þessi tilhneiging er stundum einkar óviðeigandi og bæði tillitslaus við stórt fólk og smátt. Bakþankar 22.3.2010 17:33
Gætu opnað kaffi-hús fyrir ferðamenn Mikill straumur ferðamanna hefur verið inn Fljótshlíðina eftir að fréttir bárust af gosinu. Svo mikill að heimilisfólki á bæjunum er hætt að standa á sama. Innlent 22.3.2010 22:44
Allir í viðbragðsstöðu „Það eru allir í viðbragðsstöðu,“ sagði Agnar Már Agnarsson, bóndi í Hallgeirseyjarhjáleigu í Austur-Landeyjum, þegar Fréttablaðið spurði hann um búfjárhald nærri gosstöðvunum. Innlent 22.3.2010 22:44
Gosið á Fimmvörðuhálsi í dag - myndskeið Þrátt fyrir að vera lítið á mælikvarða íslenska hálendisins er hraungosið á Fimmvörðuhálsi mikið sjónarspil. Sigríður Mogensen, fréttamaður Stöðvar 2, og myndatökumaðurinn Egill Aðalsteinsson flugu yfir svæðið eftir hádegi í dag. Innlent 22.3.2010 19:46
Krafturinn fer vaxandi Gosið á Fimmvörðuhálsi hefur færst í aukana í dag. Hraunbreiðan á hálsinum hefur tvöfaldast frá því í gær. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur. Hann á von á því að gosið haldi áfram næstu daga. Innlent 22.3.2010 19:02
Íbúar fá að snúa heim - rýmingu aflétt Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli, segir að rýmingu hafi verið aflétt og að íbúar sem þurftu að yfirgefa hús sín eftir að eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi fái að snúa heim. Þetta var á ákveðið á fundi almannavarnarnefndar í dag. Eigendur sumarhúsa á svæðinu eru beðnir um að vera ekki í húsunum. „Við munum hins vegar auka löggæslueftirlit þannig að við verðum fljótir að bregðast við eitthvað kemur upp á.“ Innlent 22.3.2010 18:45
Fréttamaður í miðju öskufallinu nálægt Fimmvörðuhálsinum „Ég er kominn upp á Fimmvörðuháls við Baldvinsskála. Öskustrókurinn er yfir okkur, við erum í öskufalli en snjórinn er orðinn grár,“ sagði Kristján Már Unnarsson, fréttamaður Stöðvar tvö sem var staddur aðeins örfáum kílómetrum fyrir neðan gosið í Eyjafjallajökli. Strókarnir eru um einum kílómeter frá Fimmvörðuhálsinum sjálfum. Innlent 22.3.2010 12:25
Flugbannsvæði stækkað vegna sprengingar Sprengingin í gosstróknum í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi í morgun varð til þess að svæði þar sem flugumferð var bönnuð var stækkaði þónokkuð. Innlent 22.3.2010 11:33
Gosmökkurinn nær átta kílómetra upp í loft - sprungan virðist lengri Á áttunda tímanum í morgun jókst styrkurinn í gosinu á Fimmvörðuhálsi töluvert og er talið að gufusprenging hafi orðið í eldstöðinni. Mikill gufustrókur sést nú frá gosinu og sýna mælitæki að hann nær um átta kílómetra upp í loft. Fljótlega dró þó úr virkninni á nýjan leik. Innlent 22.3.2010 08:22
Ný tækni Gæslunnar gefur nýja innsýn í gosið Til stendur að flugvél Landhelgisgæslunnar fljúgi yfir eldstöðvarnar um hádegisbil og myndi svæðið með innrauðri tækni, til að meta breytingar á landslaginu. Innlent 22.3.2010 07:06
Fumlaus viðbrögð á öllum vígstöðvum Náttúruöflin eru máttug á Íslandi. Á það var minnt um helgina þegar eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi. Fastir pennar 21.3.2010 22:19
Var illa við að skilja dýrin eftir á bænum „Auðvitað bregður manni fyrst en við urðum strax rórri þegar okkur var tjáð að þetta væri lítið gos,“ segir Vilborg Alda Jónsdóttir, bóndi í Hvítanesi í Vestur-Landeyjum, þegar henni var tilkynnt að byrjað væri að gjósa. Innlent 21.3.2010 23:03
Tengsl gosa í Eyjafjallajökli við Kötlugos „Það hefur ekki gosið á Fimmvörðuhálsi í fleiri þúsund ár, og ekki hægt að skýra af hverju gýs þarna núna en ekki beint þaðan sem kvikan safnast saman undir háfjallinu,“ segir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. „Það eru gossprungur bæði vestan og austan úr Eyjafjallajökli, fyrir ofan Seljalandsfoss og þar sem gýs núna. Fjallið er jú um 700 þúsund ára gamalt þannig að gríðarlegur fjöldi gosa hefur komið upp á svæðinu. Bæði í háfjallinu og sprungunum í hlíðum þess.“ Að minnsta kosti þrjár gossprungur liggja um Fimmvörðuháls, en sú sem nú gýs liggur öðruvísi en hinar tvær. Innlent 21.3.2010 23:03
Þetta er helvíti gaman „Þetta er bara helvíti gaman,“ sagði Gabríel Björnsson, fjórtán ára, sem þurfti að verja aðfaranótt sunnudags í fjöldahjálparmiðstöðinni í grunnskólanum á Hvolsvelli. Hann var vakinn með þeim fregnum að gos væri hafið og þurfti undir eins að yfirgefa bæinn Lindartún í Vestur-Landeyjum ásamt fjölskyldu sinni. Innlent 21.3.2010 23:03
Það hefur verið jarðgosaveður undanfarið „Það hefur verið jarðgosaveður undanfarið, miklar stillur þannig að maður hefur nú búist við þessu,“ segir Jón Gunnar Karlsson, bóndi á Strönd í Vestur-Landeyjum. Innlent 21.3.2010 23:03