Katrín yfirgefur Bellurnar Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. nóvember 2016 13:30 Katrín Ómarsdóttir féll með Bellunum. vísir/getty
Katrín Ómarsdóttir, landsliðskona í fótbolta, verður ekki áfram í herbúðum enska liðsins Doncaster Rovers Bellas. Eins árs samningur hennar er búinn og verður ekki endurnýjaður. Katrín kom til Doncaster frá Liverpool fyrir síðasta tímabil og skoraði eitt mark í 16 leikjum. Markið tryggði Bellunum eina sigurinn á leiktíðinni en liðið tapaði hinum fimmtán og féll með aðeins þrjú stig. „Það hafa allir verið svo góðir við mig hjá félaginu. Ég er mjög ánægð að hafa verið hluti af Donny Bellunum þó að tímabilið hafi verið erfitt. Ég veit að þetta var erfitt en þetta félag mun koma til baka sterkara,“ segir Katrín í viðtali við heimasíðu Doncaster. Emma Coates, þjálfari Doncaster, sér á eftir Katrínu sem hún lofar á heimasíðu félagsins. „Katrín er leikmaður sem getur búið til eitthvað úr engu. Hún bjó til einstakar stundir fyrir okkur og þá sérstaklega þetta sigurmark í lokaleiknum sem var mjög mikilvægt fyrir okkur. Það var æðislegt að vinna með henni,“ segir þjálfarinn. Katrín varð Englandsmeistari í tvígang með Liverpool árin 2013 og 2014 áður en hún flutti sig til Doncaster fyrr á þessu ári. Hún var áður á mála hjá Kristianstad í Svíþjóð en spilaði þar áður með KR í Pepsi-deildinni hér heima.
Enski boltinn Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira