Manchester City er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-4 útisigur á Napoli í F-riðli í kvöld.
City-menn hafa unnið alla fjóra leiki sína í riðlinum með markatölunni 12-3. Napoli er hins vegar aðeins með þrjú stig og á litla möguleika á að komast upp úr riðlinum.
Lorenzo Insigne kom Napoli yfir á 21. mínútu en Nicolás Otamendi jafnaði metin 13 mínútum síðar.
Eftir þriggja mínútna leik í seinni hálfleik kom John Stones City í 2-1.
Jorginho jafnaði metin af vítapunktinum á 62. mínútu en sjö mínútum síðar kom Sergio Agüero City aftur yfir eftir skyndisókn.
Það var svo Raheem Sterling gulltryggði sigur City er hann skoraði fjórða mark liðsins í uppbótartíma. Lokatölur 2-4, City í vil.
