Liverpool vann 0-4 sigur á Leicester City í leik tveggja efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Með sigrinum náði Liverpool 13 stiga forskoti á Leicester. Liðið hefur unnið 17 af fyrstu 18 deildarleikjum sínum á tímabilinu og gert eitt jafntefli.
Liverpool var miklu sterkari aðilinn í leiknum á King Power vellinum í kvöld og Leicester sá aldrei til sólar. Þetta var fyrsta tap Refanna á heimavelli í vetur.
Roberto Firmino kom Liverpool yfir á 31. mínútu þegar hann skallaði fyrirgjöf Trents Alexander-Arnold í netið.
Á 71. mínútu fékk Caglar Söyüncü, varnarmaður Leicester, boltann í höndina og Michael Oliver dæmdi vítaspyrnu.
James Milner, sem hafði komið inn á sem varamaður mínútu áður, fór á punktinn og skoraði með sinni fyrstu snertingu í leiknum. Hann skoraði einnig úr víti í fyrri leiknum gegn Leicester.
Firmino kom Liverpool í 0-3 á 74. mínútu eftir sendingu frá Alexander-Arnold. Sá síðarnefndi skoraði svo fjórða markið fjórum mínútum síðar.
Þrjú mörk á sjö mínútum hjá Liverpool sem sýndi heldur betur styrk sinn í kvöld. Lokatölur 0-4, Rauða hernum í vil.
Liverpool tók Leicester í kennslustund og náði 13 stiga forskoti
