Fréttir
202 203 204 205 206 207 208 209 210 … 334 ›
Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku af bílastæðum á þremur innanlandsflugvöllum í vikunni, annaðhvort á miðvikudag eða á fimmtudag. Það að Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra hafi ekki skrifað upp á þjónustusamning Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra og Isavia virðist engu breyta þar um. Innlent 16.6.2024 13:27
Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vinstri grænna segir að flokkurinn þurfi að fara í innra uppgjör og leita í ræturnar, en flokkurinn mælist aðeins með um þriggja prósenta fylgi í skoðanakönnunum og myndi því detta út af þingi ef kosið yrði í dag. Hann er ekki svartsýnn á framhaldið þó það verði „drulluerfitt“ að rífa sig upp úr lægðinni. Guðmundur var í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Innlent 16.6.2024 12:52
Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Framkvæmdastjóri Kadeco á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli segir það draumaverkefni að fá að stýra allri uppbyggingunni, sem mun eiga sér stað á næstu árum á Ásbrú og svæðinu í kringum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann segir mikið kallað eftir því að fá starfsfólk Kadeco á erlendan vettvang til að kynna verkefnið. Innlent 16.6.2024 12:44
Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Slökkvistarfi við Kringluna lauk í nótt eftir að eldur kviknaði í þaki verslunarmiðstöðvarinnar. Slökkviliðsstjóri segir slökkvistarf hafa gengið vonum framar en tryggingarfélögin eru nú með vettvanginn. Innlent 16.6.2024 11:50
Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Fólksbifreið var ekið í veg fyrir jeppa á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að jeppinn valt nokkra hringi. Ökumaður og farþegi fólksbifreiðarinnar flúðu vettvang en lögreglu tókst að handtaka þá skömmu síðar. Innlent 16.6.2024 11:38
Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Slökkvistarfi við Kringluna lauk klukkan eitt í nótt eftir að eldur kom upp í þaki verslunarmiðstöðvarinnar síðdegis í gær. Slökkviliðsstjóri segir vel hafa gengið að ráða niðurlögum eldsins og vettvangur sé nú í höndum tryggingafélaganna. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 16.6.2024 11:37
Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Sérfræðingar Hafrannsóknarstofnunar hafa komið fyrir laxateljara í fiskveginum við Einarsfoss í Laugardalsá við Ísafjarðardjúp. Teljarinn er búinn myndavél sem tekur myndir af fiskum sem ganga í ána. Innlent 16.6.2024 10:48
Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Ísraelsher hefur tilkynnt að gerð verði dagleg hlé á hernaði með fram stofnbraut á Gasa í þeim tilgangi að hleypa meiri neyðarbirgðum inn á svæðið. Erlent 16.6.2024 10:00
Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 16.6.2024 08:50
Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Björgunarsveitir á Suður- og Vesturlandi brugðust við tveimur útköllum í tengslum við útivist í gær, annars vegar vegna reiðslyss í Borgarfirði og hins vegar vegna gönguslyss í Þórsmörk. Innlent 16.6.2024 08:20
Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Í dag er spáð norðvestan og norðan 3-8 m/s. Víða skýjað og nokkuð þungbúið með smásúld eða þokumóðu á köflum og hita 7 til 12 stig. Bjartara og þurrt á Suður- og Suðausturlandi og þar gæti hiti náði upp undir 20 stig þegar best lætur. Veður 16.6.2024 07:23
Myndir: Allt á floti í Kringlunni Greint hefur verið frá því að mikið vatn sé nú á gólfum Kringlunnar vegna slökkvistarfs slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu sem barðist við eld á þaki verslunarmiðstöðvarinnar í kvöld. Innlent 15.6.2024 23:49
Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Rútuslysið sem varð við Fagranes í Öxnadal átti sér stað á vatnsverndarsvæði Norðurorku. Mengunarslys, nánar tiltekið olíuleki í Öxnadalsá, varð vegna rútuslyssins. Innlent 15.6.2024 23:15
Konungsskip Dana í Reykjavík Við Grandabryggju er heilmikið sjónarspil um þessar mundir þar sem danska konungsskipið liggur þar. Áhöfnin gerði sér glaðan dag í Reykjavík og hleður nú batteríin áður en haldið er til Grænlands. Innlent 15.6.2024 22:28
„Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir að slökkvistarfi við utanverða Kringluna sé lokið. Nú dæli slökkvilið vatni af þakplötu verslunarmiðstöðvarinnar, þar sem að eldurinn kviknaði í dag. Og þá segir hann töluverða vinnu eftir inni í Kringlunni. Innlent 15.6.2024 21:13
Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri Það stendur mikið til á Kirkjubæjarklaustri á morgun því þá hefst formlega söfnun fyrir gróðurskála við hjúkrunar- og dvalarheimilið Klausturhóla. Slíkur skáli kostar á milli 40 og 50 milljónir króna og mun nýtast öllum eldri borgurum í Skaftárhreppi. Innlent 15.6.2024 19:59
„Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., furðar sig á orðum Vinstri grænna um að útgáfa hvalveiðileyfis sé óhjákvæmilegt í núverandi lagaumhverfi vegna þess hve langan tíma það tók matvælaráðherra að gefa út hvalveiðileyfi. Innlent 15.6.2024 19:54
Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri segir að loksins nú virðist slökkvilið vera að ná tökum á eldi sem kviknaði í Kringlunni í dag. Um sé að ræða flókið verkefni. Innlent 15.6.2024 18:49
Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Óskar Finnsson, veitingamaður a Finnsson bistro í Kringlunni, var að fara að halda þrjár útskriftarveislur á staðnum í dag og kvöld þegar eldur kviknaði í verslunarmiðstöðinni í dag. Innlent 15.6.2024 18:23
Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Eldur kviknaði í þaki Kringlunnar síðdegis og allt tiltækt slökkvilið var kallað til. Rýma þurfti verslunarmiðstöðina. Við verðum í beinni útsendingu frá vettvangi í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 15.6.2024 18:00
Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Karólína Hrönn Johnstone, starfmaður verslunarinnar Epal í Kringlunni, var við vinnu í verslunarmiðstöðinni þegar eldur kviknaði í þaki hennar í dag. Hún hefur mestar áhyggjur af því að henni hafi ekki tekist að loka versluninni áður en hún fór út. Innlent 15.6.2024 17:41
Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Jón Breki Jónas Jónasson og Sigurlaug Emma Guðlaugsdóttir voru að vinna í Gallerí 17 í Kringlunni þegar kviknaði í þakinu. Þau segja að það hafi verið mjög óþægileg tilfinning að hlaupa út vegna eldsins. Þau segja að hjartað sé á fullu, þau fylgist vel með og voni að allt verði í góðu. Innlent 15.6.2024 17:00
Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra er ekki búinn að undirrita þjónustusamning sem veitir Isavia heimild til innheimtu bílastæðagjalda á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli. Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður Sigurðar Inga, óskar eftir að þetta komi fram vegna frétta um að í síðustu viku hafi nýr þjónustusamningur verið undirritaður milli innviðaráðuneytis og Isavia, með aðild fjármála- og efnahagsráðuneytisins, þar sem félaginu er veitt heimild til innheimtu stöðugjalda. Innlent 15.6.2024 16:27
Eldur logar í þaki Kringlunnar Eldur kviknaði í þaki Kringlunnar þar sem iðnaðarmenn voru að störfum á fjórða tímanum í dag. Þetta staðfestir Jón Kristinn Valsson, varðstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 15.6.2024 15:54
Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út síðdegis í dag vegna konu sem hafði slasast á fæti. Sigurbjörg Metta Sigurrósdóttir hjá Landsbjörgu staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Innlent 15.6.2024 15:28
Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur og fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, veltir því fyrir sér hvort strákar séu ekki bara að gera rétt í því að eltast ekki við skólagöngu og háar einkunnir. Karlar séu með hærri tekjur en konur í öllum aldurshópum, þrátt fyrir að yngri konur séu líklegri en karlar til að hafa gengið menntaveginn. Innlent 15.6.2024 15:00
Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þrðija tímanum í dag vegna reiðslyss í Borgarfirði. Innlent 15.6.2024 14:58
Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Almenn sátt virðist ríkja meðal landsmann aum kjör Höllu Tómasdóttur í embætti forseta Íslands samkvæmt niðurstöðum nýs þjóðarpúls Gallup. Ríflega helmingur svarenda sagðist mjög eða að öllu leyti sáttur við kjör hennar í embættið. Innlent 15.6.2024 13:48
Vilja banna hvalveiðar með lögum Vinstri græn segja núgildandi lög um hvalveiðar þess eðlis að útgáfa veiðileyfis sé óhjákvæmileg. Þau vilji banna hvalveiðar með lögum, en ekki sé meirihluti fyrir því á Alþingi eins og er. Þetta kemur fram í föstudagspósti Vinstri Grænna. Innlent 15.6.2024 13:42
Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Mikill kraftur er í Bláa hernum undir stjórn Tómasar J. Knútssonar, en sjálfboðaliðar á hans vegum keppast nú við að hreinsa strendur landsins. Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins koma frá útlöndum og fjörutíu prósent af veiðarfærum. Innlent 15.6.2024 13:08