Bíó og sjónvarp

Aðeins ár í frumsýningu sjónvarpsþáttanna um Hringadróttinssögu
Nýir sjónvarpsþættir byggðir á Hringadróttinssögu eftir breska rithöfundinn J.R.R. Tolkien verða sýndir í september á næsta ári. Þættirnir verða sýndir á streymisveitu Amazon, Amazon Prime, og er nú langri bið senn á enda.

Bob Odenkirk fékk „lítið hjartaáfall“
Leikarinn Bob Odenkirk hné niður við tökur á þættinum Better Call Saul á dögunum. Hann tilkynnti í gær að hann hefði fengið „lítið hjartaáfall“ og að hann væri á batavegi.

Michelle Yeoh spókar sig um á Íslandi
Tökur fyrir Netflix-þættina Witcher: Blood Origin hófust hér á landi í dag. Leikarar og aðrir sem koma að þáttunum, þar á meðal leikkonan Michelle Yeoh, hafa birt fjölda mynda frá Íslandi á samfélagmiðlum sínum.

Kindarlegt barn í fyrstu stiklu Dýrsins
Fyrsta stikla Dýrsins, kvikmyndar Valdimars Jóhannssonar, kom út í gær og má segja að hún sé ekkert lamb að leika sér við. Og þó - þar bregður ófreskju myndarinnar fyrir, sem virðist einhvers konar undarlegt bland af barni og lambi.

Fluttur á spítala eftir að hafa hnigið niður í tökum
Leikarinn Bob Odenkirk hefur verið fluttur á spítala eftir að hann hneig niður á setti við tökur á þáttunum vinsælu Better Call Saul.

Draugabanarnir snúa aftur
Draugabanarnir svara kallinu á nýjan leik. Sony birti í dag nýja stiklu fyrir kvikmyndina Ghostbusters: Afterlife, sem er framhald kvikmyndarinnar Ghostbusters II frá árinu 1989.

Carrie Bradshaw og vinkonur sameinaðar á ný
Þessa dagana standa yfir tökur á þáttunum And Just Like That...! sem eru framhald af hinum geysivinsælu þáttum Sex and the City. Sautján ár eru síðan þættirnir hættu í sýningu og ellefu ár eru síðan seinni Sex and the City kvikmyndin kom út og því ríkir mikil eftirvænting eftir nýju þáttunum.

Hin brasilísk-íslenska Céu De Agosto hlaut viðurkenningu á Cannes
Céu De Agosto, eða Ágústhiminn, stuttmynd brasilíska leikstjórans Jasmin Tenucci hlaut sérstaka viðurkenningu á verlaunaafhendingu kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í gærkvöldi.

Hrollvekjan Titane hlaut Gullpálmann
Franski leikstjórinn Julia Ducournau varð í dag annar kvenkyns leikstjórinn til að vinna Gullpálmann þegar mynd hennar Titane vann aðalverðlaun Cannes kvikmyndahátíðarinnar í dag.

Heimildamynd um Anthony Bourdain gagnrýnd fyrir gervirödd
Heimildamynd um stjörnukokkinn Anthony Bourdain heitinn hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa beitt gervigreind til að endurgera rödd kokksins. Leikstjóri myndarinnar staðfesti að rödd kokksins hafi verið endurgerð með hjálp gervigreindar og notuð í myndinni.

Antonio Banderas, Harrison Ford og Pheobe Waller-Bridge í nýrri Indiana Jones
Næsta ævintýri fornleifafræðingsins Indiana Jones verður stjörnum prýtt en tilkynnt hefur verið að Antonio Banderas muni fara með hlutverk í næstu mynd, þeirri fimmtu í kvikmyndaseríunni.

Meghan og Harry framleiða teiknimyndaþætti fyrir Netflix
Harry Bretaprins og Meghan Markle hafa tilkynnt að þau séu að framleiða teiknimyndaþætti fyrir Netflix en þættirnir eru framleiddir af framleiðslufyrirtækinu þeirra Archwell. Meghan er höfundur og framleiðandi þáttanna en þeir bera titilinn Pearl.

Sagði sig frá Witcher vegna Verbúðarinnar
Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson sagði sig frá Netflix-þáttunum The Witcher vegna framleiðslu á nýjum íslenskum þáttum, Verbúðinni. Björn Hlynur sló í gegn í hlutverki Eist í fyrstu seríu þáttanna en til stóð að hann léti sjá sig í annarri seríunni en ekkert verður úr því.

Kann betur við Cannes í Covid
Leikarinn Björn Hlynur Haraldsson er staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi þessa dagana en kvikmyndin Lamb, eða Dýrið, sem Björn Hlynur fer með hlutverk í var frumsýnd á hátíðinni.

Loki Laufeyjarson fær aðra seríu
Hrekkjaguðinn Loki Laufeyjarson mun fá aðra sjónvarpsþáttaseríu hjá Marvel en lokaþáttur fyrstu seríunnar kom út í dag. Tilkynnt var um að önnur sería verði framleidd í kreditsenunni í lokaþættinum.

Tiger King þættir Amazon hættir í framleiðslu?
Svo virðist vera sem ekkert verði úr þáttum í framleiðslu Amazon um dýrahirðinn og dæmda glæpamanninn Joe Exotic, sem vakti mikla athygli í Netflix-heimildaþáttunum Tiger King. Leikarinn Nicolas Cage hafði tekið að sér aðalhlutverkið, sem Joe Exotic, en hann hefur ýjað að því að hann muni ekki fara með hlutverkið.

Big Bang-stjarna vill til Íslands í nýju þáttunum
Kaley Cuoco, ein af stjörnum gamanþáttana ofurvinsælu Big Bang Theory, segist gjarnan vilja taka upp einn þátt í annarri þáttaröð Flight Attendand, nýjum þáttum hennar, hér á landi.

Dýrið hefur fengið nokkuð góðar viðtökur á Cannes
Dýrið, kvikmynd Valdimars Jóhannssonar, var frumsýnd á Un Certain Regard hluta kvikmyndahátíðarinnar í Cannes í dag. Myndin hefur fengið nokkuð góða gagnrýni hingað til. Dýrið er sem stendur með einkunnina 6,7 á IMDB.

Krúnan og Mandalorian sópa að sér Emmy tilnefningum
Tilnefningar til Emmy verðlaunanna hafa verið tilkynntar og eru þar þáttaraðirnar The Crown og The Mandalorian tilnefningaflestar. Hvor þáttanna er tilnefndur til 24 verðlauna en á eftir fylgja WandaVision, Ted Lasso og Handmaid‘s Tale hvað tilnefningafjölda varðar.

Ramsay ekki viss um að íslenskur hákarl sé ætur
Stjörnukokkurinn Gordon Ramsay er ekki par hrifinn af íslenskum hákarli og gerir hann það dagljóst í þáttunum Uncharted, sem sýndir eru á National Geographic. Í þættinum má sjá Ramsay prófa hákarl hjá Finnboga Bernódussyni, vélsmiði í Bolungarvík.

Óvenjuleg opnunarhelgi hjá Black Widow
Fyrsta kvikmynd Marvel kvikmyndaversins í rúm tvö ár fór í sýningu á föstudag og á nokkuð óvenjulegan hátt. Kvikmyndin sem um ræðir er Black Widow, sem fjallar um ofurnjósnarann Natasha Romanoff og rússneskra félaga hennar.

Sjáðu fyrstu stikluna úr annarri seríu The Witcher
Fyrsta smástiklan fyrir aðra seríu Netflix-þáttanna The Witcher er komin í loftið. Nú eru bara fimm mánuðir í að þættirnir komi út og er því nær tveggja ára bið eftir annarri seríu lokið en fyrsta sería þáttanna fór í loftið í desember 2019.

Auglýsa eftir aukaleikurum á Hellu fyrir stórt Netflix-verkefni
Auglýst hefur verið eftir aukaleikurum fyrir erlent verkefni á vegum Netflix á Facebook-síðu íbúa Hellu. Samkvæmt Facebook-færslunni er leitað að karlmönnum á aldrinum 22-55 ára og um sjötugt.

Sjáðu fyrsta brotið úr væntanlegri seríu Succession
Margir hafa beðið í ofvæni eftir seríu þrjú af þáttunum Succession sem framleiddir eru af HBO. Hún kemur út í haust en nákvæmar dagsetningar á frumsýningu þáttanna hafa enn ekki verið tilkynntar.

A24 kaupir sýningarrétt að Dýri Valdimars Jóhannssonar
Bandaríska framleiðslu- og dreifingarfyrirtækið A24 hefur keypt sýningarétt að Dýrinu, kvikmynd Valdimars Jóhannssonar, í Norður-Ameríku.

Richard Donner er látinn
Leikstjórinn og framleiðandinn Richard Donner lést í dag, 91 árs að aldri. Hann var helst þekktur fyrir að hafa leikstýrt Lethal Weapon fjórleiknum og fyrstu Superman kvikmyndinni.

Kvikmyndin Leynilögga keppir um Gyllta hlébarðann
Á blaðamannafundi í morgun tilkynnti listrænn stjórnandi Locarno að kvikmyndin Leynilögga hafi verið valin á hátíðina. Kvikmyndin keppir þar í aðalkeppni hátíðarinnar sem nefnist Concorso internacionale þar sem keppt er um Gyllta hlébarðann eða Pardo d‘Oro, ein virtustu kvikmyndaverðlaun sem veitt eru ár hvert.

„Sjaldgæft að heimildarmyndir komist á hvíta tjaldið vestan hafs“
Íslenska heimildamyndin Á móti straumnum/Against the Current eftir Óskar Pál Sveinsson kvikmyndagerðamann verður frumsýnd í dag í kvikmyndahúsum í New York og Los Angeles í Bandaríkjunum.

Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Skjálfti
Í dag var frumsýnt fyrsta sýnishornið úr íslensku kvikmyndinni Skjálfti. Með aðalhlutverk fara Aníta Briem, Edda Björgvinsdóttir og Jóhann Sigurðsson.

Alþjóðlega heimildamyndahátíðin IceDocs haldin á Akranesi og á netinu
Nýjar alþjóðlegar heimildarmyndir verða sýndar á heimildarmyndahátíðinni IceDocs sem fer nú fram á Akranesi. Hátíðinni lýkur á sunnudag.