Erlent
261 262 263 264 265 266 267 268 269 … 334 ›
Fundur G7 ríkjanna: Selenskí vill stöðva átökin fyrir veturinn Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti biðlar til leiðtoga G7 ríkjanna að stöðva átökin í Úkraínu áður en vetur skellur á. Erlent 27.6.2022 16:22
Rúmlega þúsund manns í verslunarmiðstöðinni sem varð fyrir loftárás Rússa Rúmlega eitt þúsund manns voru inni í verslunarmiðstöð í Kremenchuk þegar loftskeyti hæfði miðstöðina, að sögn Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta. Tíu dauðsföll eru staðfest en fjörutíu eru alvarlega særðir og þar af níu í lífshættu. Óttast er að tala fallinna muni hækka brátt. Erlent 27.6.2022 15:27
Árásarmaðurinn úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Zaniar Matapour, árásarmaðurinn sem skaut tvo til bana í skotárás í miðborg Oslóar aðfaranótt laugardags, var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dag. Matapour er hvorki leyft að eiga samskipti við fjölmiðla né aðra og er gert að sæta einangrun í tvær vikur. Erlent 27.6.2022 15:26
Körfuboltastjarna fór fyrir dómara í Rússlandi í dag Bandaríska körfuboltakonan Brittney Griner fór fyrir dómara í undirbúningsyfirheyrslu í Rússlandi í dag. Griner var handtekinn fyrir rúmlega fjórum mánuðum á Sheremetyevo-flugvelli í Moskvu fyrir vörslu á kannabis þegar það fannst hassolía í rafrettu hennar. Erlent 27.6.2022 14:17
Skapari grænlenska fánans fallinn frá Grænlenski listamaðurinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Thue Christiansen, er látinn, 82 ára að aldri. Christiansen hannaði grænlenska fánann sem samþykktur var árið 1985. Erlent 27.6.2022 14:07
Kona fannst látin í rústum hússins sem sprakk Slökkviliðið í Vestur-Miðlöndum á Englandi hefur tilkynnt að kona hafi fundist látin í rústum íbúðarhúss sem sprakk í loft upp í Birmingham í gærkvöldi. Erlent 27.6.2022 11:45
Sakaður um að deila ríkisleyndarmálum með fjölskyldunni Lars Findsen, fyrrverandi yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar, er sakaður um að hafa deilt ríkisleyndarmálum með nánum ættingjum hans, þar á meðal móður, bróður og kærustu. Sérfræðingur telur málið byggt á veikum grunni Erlent 27.6.2022 11:22
Baldwin ræðir við Allen í beinni á Instagram Leikarinn Alec Baldwin hefur greint frá því að hann muni taka viðtal við leikstjórann Woody Allen á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Instagram. Erlent 27.6.2022 11:17
Nafngreina mennina sem létust í árásinni í Osló Lögregla í norsku höfuðborginni Osló hefur birt nöfn mannanna tveggja sem létust í skotárásinni aðfararnótt laugardagsins. Mennirnir sem létust hétu Kaare Arvid Hesvik, sextíu ára að aldri, og Jon Erik Isachsen, 54 ára. Erlent 27.6.2022 08:52
Vaktin: Loftárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk Serhai Haidai, ríkisstjóri Luhansk, hefur hvatt íbúa Lysychansk til að yfirgefa borgina og segir ástandið afar erfitt. „Bjargið sjálfum ykkur og ástvinum. Passið upp á börnin. Þið getið verið fullviss um að það verður séð um ykkur í öruggum borgum Úkraínu.“ Erlent 27.6.2022 08:31
Nýtt bóluefni gefur vonir um útrýmingu malaríu fyrir árið 2040 Miklar vonir eru bundnar við nýtt bóluefni gegn malaríu en sjúkdómurinn er algengasta dánarorsök fimm ára og yngri í Afríku. 600 þúsund manns létust úr malaríu í Afríku árið 2020 en nýtt bóluefni er talið geta lækkað dánartíðnina um allt að 75 prósent. Erlent 27.6.2022 08:06
Andersson, Erdogan og Niinistö funda á morgun Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Sauli Niinistö Finnlandsforseti og Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti munu hittast á fundi á morgun til að ræða umsóknir Svíþjóðar og Finnlands að NATO. Erlent 27.6.2022 07:36
Íbúar í Tókýó hvattir til að draga úr orkunotkun vegna hitabylgju Yfirvöld í Japan hvetja íbúa stórborgarinnar Tókýó til að draga úr rafmagnsnotkun í dag en mikil hitabylgja gengur nú yfir svæðið sem hefur orsakað mikinn orkuskort. Erlent 27.6.2022 07:25
Mörg stórfyrirtæki hyggjast aðstoða starfsmenn Mörg stórfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa lýst því yfir að þau muni greiða fyrir ferðalög starfsmanna sinna sem neyðast til að leita til annara ríkja til að gangast undir þungunarrof, eftir að hæstiréttur landsins snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade. Erlent 27.6.2022 07:10
Einn í lífshættu eftir að hús sprakk Einbýlishús sprakk í Birmingham á Englandi í nótt með þeim afleiðingum að karlmaður liggur á spítala í lífshættu. Erlent 26.6.2022 23:57
Minnst fjögur látin eftir að stúka hrundi á nautaati Minnst fjögur létust og hundruð eru slösuð eftir að áhorfendastúka hrundi í El Espinal í Kólumbíu þegar nautaat fór fram í dag. Erlent 26.6.2022 21:03
„Síðan vöknum við við sprengingar klukkan sex í morgun“ Einn lét lífið eftir að Rússar vörpuðu í morgun sprengjum á að minnsta kosti tvær íbúðablokkir í Kænugarði höfuðborg Úkraínu. Íslendingur sem býr í borginni segir óþægilegt að vakna upp við sprengingar á ný. Hann er orðinn langþreyttur á stríðinu sem hann segir verða blóðugra með hverjum deginum. Erlent 26.6.2022 15:29
Maxwell sögð á sjálfsvígsvakt í fangelsi Lögmaður Ghislaine Maxwell, sem var sakfelld fyrir aðild að glæpum Jeffreys Epstein gegn konum, segir að hún sé sjálfsvígsvakt í fangelsinu í Brooklyn þar sem henni er haldið. Til stendur að ákvarða refsingu hennar á þriðjudag en lögmaðurinn segir að það kunni að frestast. Erlent 26.6.2022 14:40
Fíllinn Happy telst ekki gæddur mannlegum eiginleikum Hinn fimmtugi fíll Happy þarf áfram að dvelja í dýragarðinum í Bronx í New York eftir að æðsti dómstóll borgarinnar hafnaði kröfu dýravernarsamtaka um að honum yrði sleppt á þeim forsendum að Happy deildi vitrænum eiginleikum með mannfólkinu, eins og það var orðað í kröfugerðinnni. Erlent 26.6.2022 14:31
Neitar að láta yfirheyra sig nema lögregla birti upptökuna Maðurinn sem er ákærður fyrir hryðjuverk í miðborg Oslóar í fyrrinótt hefur neitað að láta yfirheyra sig nema lögregla birti upptöku af yfirheyrslunni í heild sinni opinberlega. Lögmaður hans segir hann óttast að lögreglan snúi út úr orðum sínum. Erlent 26.6.2022 13:18
Búa sig undir slag um þungunarrofspillu Hvíta húsið ætlar að reyna að koma í veg fyrir að ríki geti bannað svonefnda þungunarrofspillu í kjölfar Hæstaréttardóms um að konur eigi ekki rétt til þungunarrofs. Búast má við að tekist verði um málið fyrir dómstólum. Erlent 26.6.2022 11:24
Tuttugu og tveir fundust látnir en lítið er vitað um orsök Tuttugu og tveir einstaklingar á aldrinum 18 til 20 ára fundust látnir á vinsælli krá í borginni Austur London í Suður-Afríku. Erlent 26.6.2022 10:49
Var í sambandi við öfgamann sem boðaði dráp á samkynhneigðum Maðurinn sem skaut tvo til bana og særði fleiri fyrir utan hinsegin bar í Osló í fyrrinótt var í sambandi við þekktan íslamskan öfgamann í Noregi. Sá boðaði fyrir skömmu dráp á samkynhneigðum á samfélagsmiðlum. Erlent 26.6.2022 10:02
Loðfílskálfur fannst í sífrera í Júkon Námumenn sem voru við störf í Júkon í Kanada fundu fornleifar loðfílskálfs þegar þeir grófu í gegnum sífrera nú á þriðjudag. Loðfílskálfurinn er talinn hafa frosið á ísöld fyrir meira en 30.000 árum síðan. Erlent 26.6.2022 09:52
Karl sagður hafa tekið við milljónum frá Katar Karl Bretaprins er sagður hafa tekið við milljónum evra í reiðufé á fundum sínum með fyrrverandi forsætisráðherra Katar. Fulltrúar konungsfjölskyldunnar fullyrða að féð hafi strax runnið til góðgerðasamtaka prinsins. Erlent 26.6.2022 08:19
Sprengdu íbúðarblokkir í Kænugarði Rússar vörpuðu sprengum á að minnsta kosti tvær íbúðarblokkir í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, eldsnemma í morgun. Borgarstjóri Kænugarðs segir að sjö ára gamalli stúlku hafi verið bjargað úr rústunum. Erlent 26.6.2022 07:53
Ekki þurfi að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna apabólu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að ekki þurfi að lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna faraldurs apabólu. Það þurfi hins vegar að fylgjast grannt með faraldrinum sem hefur brotist út í meira en 50 löndum. Erlent 25.6.2022 22:54
Fimm mánaða stúlka skotin til bana í Chicago Fimm mánaða stúlka var skotin til bana í aftursæti bíls í South Shore-hverfi Chicago síðdegis í gær. Stúlkan var flutt á spítala eftir að hafa fengið skot í höfuðið og lést hún þar. Maður á fimmtugsaldri hlaut einnig áverka eftir að byssuskot hæfði hann nærri auga. Erlent 25.6.2022 21:14
Biden samþykkir herta byssulöggjöf Joe Biden Bandaríkjaforseti skrifaði í dag undir lagafrumvarp sem takmarkar rétt Bandaríkjamanna til byssukaupa. Frumvarpið felur í sér hertar bakgrunnsathuganir, takmarkar rétt þeirra sem hafa verið dæmdir fyrir heimilisofbeldi til vopnakaupa og auðveldar ríkjum að fjarlægja byssur af fólki sem er talið hættulegt. Erlent 25.6.2022 18:05
Lysychansk síðasta vígi Úkraínumanna í Luhansk Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Nú er Lysychansk eina borgin í Luhansk sem Úkraínumenn ráða enn yfir. Erlent 25.6.2022 16:53