Viðskipti innlent
101 102 103 104 105 106 107 108 109 … 334 ›
Hver fasteignaauglýsing fær nú umtalsvert færri smelli Hver fasteignaauglýsing fær að jafnaði umtalsvert færri smelli nú en áður sem gefur til kynna að færri séu að leita sér að íbúð. Í febrúar síðastliðinn, þegar framboð íbúða var í lágmarki, fékk hver auglýsing á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali 149 smelli á dag en í fyrri hluta nóvember var sú tala komin niður í 42. Viðskipti innlent 24.11.2022 07:52
Segja ráðherra bera ábyrgð á ÍL-sjóði Forsvarsmenn lífeyrissjóða landsins segja lagalega stöðu sjóðanna afar sterka vegna fyrirhugaðra slita ÍL-sjóðs. Ábyrgð ríkisins á skuldum ÍL-sjóðs sé skýr. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var út eftir að lögfræðiálit frá LOGOS var kynnt forsvarsmönnum sjóðanna í dag. Viðskipti innlent 23.11.2022 16:50
Katla og Viðar til Aurbjargar Katla Hlöðversdóttir hefur verið ráðin sem þjónustu- og upplifunarstjóri og Viðar Engilbertsson sem markaðsstjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Aurbjörgu. Viðskipti innlent 23.11.2022 13:02
„Við munum hækka vexti eins og þarf“ Stjórnendur peningastefnunefndar Seðlabankans segja það alveg skýrt að nefndin muni hækka stýrivexti frekar, meti hún þörf á því. Seðlabankastjóri segir það alveg skýrt að Seðlabankinn geti ekki verið aðili að loforði um að stýrivextir verði ekki hækkaðir sem hluti af kjarasamningum. Viðskipti innlent 23.11.2022 11:34
Eyesland með hagkvæmasta tilboðið á Keflavíkurflugvelli Íslenska gleraugnaverslunin Eyesland átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur gleraugnaverslunar á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið mun því opna verslun í flugstöðinni á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Viðskipti innlent 23.11.2022 11:16
Bein útsending: Landsmenn kveðja Stjörnutorg Stjörnutorgi verður lokað í dag eftir 23 ára starfsemi. Kveðjuhóf fer fram á svæðinu klukkan 11:30 og verður Vísir í beinni útsendingu frá tímamótunum. Viðskipti innlent 23.11.2022 10:46
Ragnar Þór segir seðlabankastjóra ganga erinda fjármagnseigenda Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur einsýnt að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri beri hag bankanna og fjármagnseigenda fyrst og síðast fyrir brjósti. Viðskipti innlent 23.11.2022 10:01
Ráðinn fjármála- og rekstrarstjóri Orkustofnunar Ingi Jóhannes Erlingsson hefur verið ráðinn í starf fjármála- og rekstrarstjóra hjá Orkustofnun. Viðskipti innlent 23.11.2022 09:49
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 25 punkta hækkun Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig. Viðskipti innlent 23.11.2022 09:00
Tíunda hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,25 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 5,75 prósent í sex prósent. Viðskipti innlent 23.11.2022 08:31
Halldór og Róbert slíðra sverðin Sættir hafa náðst á milli lyfjafyrirtækisins Alvogen og Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, sem bar Róbert Wessman forstjóra þess þungum sökum í fyrra. Alvogen féll frá málsókn gegn Halldóri sem segist nú ekki lengur hafa stöðu uppljóstrara. Viðskipti innlent 22.11.2022 12:18
Ráðin birtingarstjóri hjá Datera Ragnhildur Guðmundsdóttir hefur verið ráðin birtingastjóri birtinga- og ráðgjafafyrirtækisins Datera. Viðskipti innlent 22.11.2022 09:49
Mun leiða markaðsvinnu TourDesk á erlendum mörkuðum Guðmundur F. Magnússon hefur verið ráðinn til að leiða markaðsvinnu TourDesk á erlendum mörkuðum. Viðskipti innlent 21.11.2022 12:27
Samskip fái úrlausn um tiltekin atriði í sátt Eimskips við Samkeppniseftirlitið Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Samskip hafi lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn áfrýjunarnefndar samkeppnismála um tiltekin atriði í sátt Eimskips við Samkeppniseftirlitið frá í júní 2021. Viðskipti innlent 21.11.2022 09:53
Tölvuárás gerð á Mbl.is Tölvuárás var gerð á vefinn Mbl.is fyrr í dag. Vefsíðan hefur legið niðri nú í einn og hálfan tíma. Viðskipti innlent 19.11.2022 15:42
Subway á Íslandi hættir við auglýsingar á RÚV yfir HM Stjarnan ehf., einkaleyfishafi Subway á Íslandi, hefur ákveðið að draga til baka þær auglýsingar sem félagið hafði keypt hjá RÚV fyrir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Félagið ætlar þess í stað að gefa andvirði auglýsinganna til góðgerðasamtaka. Viðskipti innlent 19.11.2022 14:13
Myndavélar í sjálfsafgreiðslukössum sporna gegn þjófnaði Maður var gómaður í verslun í Kópavogi í gærkvöldi við að skanna strikamerki ódýrari vara en hann ætlaði sér að kaupa í sjálfsafgreiðslukassa verslunarinnar. Þetta var í fertugasta og sjötta skiptið sem maðurinn er gripinn við þá iðju. Framkvæmdastjóri Hagkaups segir að þrátt fyrir nokkra svarta sauði sem stunda þetta sé það ekki algengt. Sjálfsafgreiðslukassarnir eru með ákveðnar leiðir til að stöðva þjófana. Viðskipti innlent 19.11.2022 11:46
„Skemmtilegt að opna í gömlu húsi með mikla sögu“ Í áratugi fór fólk með bréf og böggla á aðalpósthúsið í Austurstræti. En nú er öldin önnur og fyrr í kvöld var opnuð þar ný mathöll. Viðskipti innlent 18.11.2022 22:48
Pósthús mathöll opnuð og allir dansa kónga Mathöllin í gamla pósthúsinu opnar í dag eftir sex ára undirbúning. Markmið mathallarinnar er að vera sú skemmtilegasta á landinu. Stór nöfn á borð við Yesmine Olsson, Hauk á Yuzu og Sigga Hall eru öll hluti af verkefninu og leiddi sá síðast nefndi alla í kónga í tilefni dagsins. Viðskipti innlent 18.11.2022 15:01
Tugmilljarða hagnaður hjá Landsvirkjun Landsvirkjun hagnaðist um 31 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er besta rekstrarniðurstaða á þessu tímabili í sögu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 18.11.2022 14:51
Dómurinn yfir Eiríki á Omega fyrir skattsvik staðfestur Landsréttur hefur staðfest tíu mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm yfir sjónvarpsmanninum Eiríki Sigurbjörnssyni, oftar kenndur við kristilegu stöðina Omega. Hann þarf að greiða 109 milljónir í sekt fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum auk 1,6 milljóna króna í málskostnað. Viðskipti innlent 18.11.2022 14:09
Þorsteinn Skúli nýr aðstoðarframkvæmdastjóri SFV Þorsteinn Skúli Sveinsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV). Þorsteinn hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 18.11.2022 11:41
Magnús Þór til Kviku Magnús Þór Gylfason, fyrrverandi forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, hefur verið ráðinn tik Kviku banka. Hann á að hefja störf þar á nýju ári. Viðskipti innlent 17.11.2022 21:45
Metfjöldi íslenskra fyrirtækja á tækniráðstefnu í Helsinki Sprota- og tækniráðstefnan Slush fer fram um þessar mundir í Helsinki í Finnlandi. Fulltrúar frá 65 íslenskum fyrirtækjum eru staddir þar úti en aldrei hafa jafn mörg fyrirtæki sent fulltrúa á ráðstefnuna. Rúmlega hundrað Íslendingar skipta sendinefndina. Viðskipti innlent 17.11.2022 11:17
Hampiðjan stefnir á aðalmarkað eftir kaup á norsku félagi Hampiðjan hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í norska félaginu Mørenot sem er sagt leiðandi framleiðandi á lausnum fyrir sjávarútveg, fiskeldi og olíuiðnað. Stefnt er að því að hlutabréf í Hampiðjunni verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi á næsta ári, en bréfin eru nú skráð á First North-markaðnum. Viðskipti innlent 17.11.2022 09:22
„Manni líður eins og maður sé bara heima“ „Tíminn er bara kominn. Það tekur allt sinn endi,“ segir Ragnar Guðmundsson stofnandi veitingastaðarins Lauga-Ás á Laugarásvegi í Reykjavík en staðnum verður lokað í næsta mánuði. Lauga-Ás hefur verið starfræktur síðan árið 1979 og hafa fastagestir staðarins tekið þessum tíðindum óstinnt upp. Viðskipti innlent 16.11.2022 22:47
Segir úlfalda gerðan úr mýflugu í skýrslu Ríkisendurskoðunar Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins segir sýsluna ekki vera sammála þeim sjónarmiðum sem komi fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Verið sé að gera úlfalda úr mýflugu hvað suma annmarka varðar. Söluna hefði einnig mátt kynna betur fyrir almenningi. Viðskipti innlent 16.11.2022 15:30
Ef einhvern skorti þekkingu og mannskap þá sé það hjá Ríkisendurskoðun Forstjóri Bankasýslu ríkisins hafnar því að stofnunin hafi ekki haft mannskapinn eða þekkinguna í að jafn flókið ferli og sala ríkisins á eignarhlut í Íslandsbanka var. Hann vandar Ríkisendurskoðun ekki kveðjurnar og segist ekki hafa gert nein mistök við framkvæmd útboðsins. Viðskipti innlent 16.11.2022 14:15
Guðrún Valdís valin Rísandi stjarna ársins Guðrún Valdís Jónsdóttir, öryggisstjóri og öryggisráðgjafi hjá Syndis, var valin Rísandi stjarna ársins (e. Rising star of the year) hjá Nordic Women in Tech Awards. Verðlaunaafhendingin fór fram í Gautaborg síðastliðinn fimmtudag, en tilnefndar voru yfir 400 konur frá Norðurlöndunum. Viðskipti innlent 16.11.2022 13:55
Óvænt hækkun á verði í fjölbýli Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent milli september og október. Verð á sérbýli lækkar um 0,7 prósent en verð íbúða í fjölbýli hækkar um 0,9 prósent. Viðskipti innlent 16.11.2022 10:34