Mun færri kjaramál til VR 20. ágúst 2004 00:01
Málum til meðferðar í kjaramáladeild VR fækkaði um 30% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á heimasíðu Verslunarfélags Reykjavíkur. Á árunum 2001-2003 komu að meðaltali 600 mál til meðferðar í kjaramáladeild VR fyrri hluta árs en á þessu ári voru þau 422 eða 30% færri. Einkum er um að ræða mál vegna innheimtu launa en einnig ágreining á vinnustöðum og fleira sem varðar stöðu og réttindi launafólks á vinnumarkaði. Allt árið í fyrra fékk kjaramáladeild 1.461 mál til meðferðar og hafa þau aldrei verið fleiri. Það ber þó að hafa í huga að í lok árs varð Útgáfufélagið DV gjaldþrota en í því máli einu voru gerðar launakröfur fyrir hönd 430 einstaklinga. Haft er eftir Gunnari Páli Pálssyni, formanni VR, að fækkun mála sé vísbending um að góðærið sé að skila sér. Atvinnuleysi helst hins vegar óbreytt milli áranna 2003 og 2004. Gunnar Páll telur þó að viðsnúningur verði á vinnumarkaði í haust. Mál til meðferðar í kjaramáladeild VR, fyrstu sex mánuði ársins: Árið 1999 265 mál Árið 2000 344 mál Árið 2001 614 mál Árið 2002 581 mál Árið 2003 608 mál Árið 2004 422 mál
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Viðskipti erlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Húrra dregur saman seglin Viðskipti innlent „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Sjá meira