Einkavæðing gæti tafist 5. september 2004 00:01
Kaup Landssímans á Fjörgný, sem á sýningarrétt á ensku knattspyrnunni og 26% hlut í Skjá einum, verða tekin til athugunar hjá Samkeppnisstofnun. Líkur eru taldar á að það verði gert með hliðsjón af átjándu grein samkeppnislaga þar sem segir að samkeppnisráð geti ógilt samruna fyrirtækja sem þegar hafi átt sér stað eða sett slíkum samruna skilyrði ef hann er talinn hindra virka samkeppni með því að markaðsráðandi staða verði til. Ákvæðið á við samruna þar sem sameiginleg heildarvelta viðkomandi fyrirtækja er einn milljarður króna eða meiri, en Landssíminn fer yfir það viðmið. Málið er ekki komið í formlega meðferð hjá Samkeppnisstofnun og henni hafði ekki borist tilkynning um samrunann fyrir helgi. Hins vegar eru taldar miklar líkur á því að málið verði tekið til athugunar og stofnunin hefur heimild til að taka mál sem þessi upp af eigin frumkvæði. Þá hefur stofnunin þrjátíu daga til að tilkynna fyrirtækjunum hvort hún telji ástæðu til frekari rannsóknar á samrunanum og þrjá mánuði þaðan í frá til að taka endanlega ákvörðun um lögmæti hans. Málið gæti því dregist fram undir áramót og haft áhrif á undirbúning einkavæðingar Landssímans, en Ólafur Davíðsson, formaður einkavæðingarnefndar, hefur sagt að nefndin sé að fara að vinna af fullum krafti að sölu 98% hlutar ríkisins í félaginu. Aðspurður vildi Ólafur ekki tjá sig um áhrif hugsanlegrar athugunar Samkeppnisstofnunar á söluferlið. Eigendur fyrirtækja sem eru til athugunar hjá Samkeppnisstofnun geta farið fram á flýtimeðferð og í þessu tilviki gæti Geir H. Haarde fjármálaráðherra farið fram á hana fyrir hönd ríkissjóðs.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Sjá meira