Játar að hafa banað konunni 1. nóvember 2004 00:01
Eiginmaður konunnar sem fannst látin á heimili sínu í Hamraborg í nótt hefur játað að hafa orðið henni að bana. Maðurinn, sem er tæplega þrítugur að aldri, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. desember. Það var klukkan rúmlega þrjú í nótt sem lögreglu barst vitneskja um að ekki væri allt með felldu á heimili hjónanna í Hamraborg í Kópavogi. Það var með þeim hætti að maðurinn hringdi í vinafólk og lét vita en það hringdi svo í lögreglu. Þegar lögregla kom að var konan látin. Eiginmaðurinn var handtekinn á vettvangi. Hjónin áttu tvö börn, eins og fjögurra ára. Voru þau bæði sofandi meðan voðaverkið átti sér stað. Börnin dvelja nú hjá aðstandendum. Maðurinn játaði við yfirheyrslur í dag að hafa orðið konunni að bana. Svo virðist sem þrengt hafi verið að öndunarvegi konunnar og það leitt til köfnunar. Læknisfræðilegar niðurstöður um lát konunnar liggja þó ekki fyrir og því ekki hægt að fullyrða um dánarorsök á þessari stundu. Rannsókn málsins er ekki lokið en maðurinn virðist hafa verið allsgáður þegar hann framdi voðaverkið og er talið að afbrýðissemi hafi komið við sögu. Nágrannar segja hjónin hafa verið til fyrirmyndar og þau hafa aldrei komið við sögu lögreglu áður. Maðurinn var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. desember.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira