
Snúast blöðin gegn Blair?
Nú eru kosningar framundan í Bretlandi. Einhvern næstu daga verður tilkynnt um kjördag sem verður í maí. Tony Blair forsætisráðherra hefur á valdaferli sínum átt því láni að fagna að njóta mikils velvilja hjá pressunni. Það hefur verið að breytast á undanförnum mánuðum. Blöðin eru orðin miklu gagnrýnni og neikvæðari í hans garð. Íraksmálið á drjúgan þátt í því en mörg fleiri mál eiga einnig þátt í þessari breytingu. Sumir trúa því að afstaða blaðanna geti ráðið úrslitum um hvort ríkisstjórn Verkamannaflokksins fellur eða heldur velli í kosningunum. Það er umdeilanlegt. Þótt engir neiti því að dagblöð hafi mikil hrif á skoðanamyndun hefur ekki verið sýnt fram á það í kosningarannsóknum að einhlít fylgni sé á milli stefnu blaðanna og kosningahegðunar lesenda þeirra.
Engir trúa eins mikið á áhrifamátt fjölmiðla og stjórnmálamenn.Um allan heim eru þeir gagnteknir þeirri hugmynd að fjölmiðlar ráði úrslitum um velgengni þeirra. Tony Blair hefur verið í þessum hópi. Allan valdaferil sinn - og raunar áður en hann varð forsætisráðherra - hefur hann lagt gífurlega áherslu á að mynda traust og vinsamlegt samband við helstu fjölmiðla. Þess vegna er sú staða sem nú er komin upp í Bretlandi honum mikil vonbrigði.
Fjallað er um samband Blair og bresku blaðanna í nýjasta hefti vikuritsins Economist í tilefni af útkomu bókar þar sem fyrrverandi ritstjóri götublaðsins Daily Mirror, Piers Morgan, rekur einkar hreinskilnislega samskipti sín við forsætisráðherrann og fleiri fyrirmenn. Morgan segir að á ferli sínum hafi hann tuttugu og tvisvar sinnum snætt hádegisverð með Blair, sex sinnum kvöldverð, tekið við hann sex einkaviðtöl og tuttugu og fjórum sinnum hitt hann í óformlegu tveggja manna spjalli yfir tebolla fyrir utan ófá samtöl í síma.
Þetta kallar Economist "phenomenal investment of time in Mr. Morgan," sem blaðið segir að hafi aðallega skrifað um afþreyingariðnaðinn áður en hann varð ritstjóri og hafi enga þekkingu haft á stjórnmálum er hann var leiddur til öndvegis á Mirror. Þessi staðhæfing passar við frásögn Morgan sjálfs en í bókinni segir hann meðal annars frá einkaheimsókn sinni á sveitasetur breska forsætisráðherrans nokkru eftir að hann varð ritstjóri. Þegar þeir gengu þar um ganga benti Blair á myndir af fyrirrennurum sínum á ráðherrastól og spurði hvort Morgan þekkti þá. Hann varð ekki lítið hrifin af því hve ritstjórinn var vel að sér. Þekkti þá bara alla! En Morgan upplýsir í bókinni að hann hafi bara lesið nöfnin af spjaldi sem fest var á ramma myndanna!
Í bók Morgan er sagt frá grunsemdum ritstjórans fyrrverandi um að Blair hafi "haldið fram hjá sér" með því að leka skipulega áhugaverðum fréttum í samkeppnisblaðið Sun sem er útbreiddasta og áhrifamesta dagblað Bretlands. Auðvitað þurfti - og þarf - Blair líka á vinsemd þess að halda. Morgan telur að ástæðan fyrir því að Blair ræktar sambandið við Sun enn betur en við Mirror sé sú að hann telji sig ekki geta gengið að stuðningi blaðsins vísum (það er partur af hinum dyntótta Murdoch-fjölmiðlaveldi). Aftur á móti er Mirror hefðbundið stuðningsblað Verkamannaflokksins. En í Íraksmálinu hefur blaðið þó snúist gegn flokknum og Blair og þannig hefnt sín á daðri forsætisráðherrans við Sun.
Fram kemur í Economist að Blair reyni að haga seglum eftir því hvernig vindar blása hjá Robert Murdoch fjölmiðlakóngi. Þannig reyni hann að hafa Sun sér hliðhollt. Hann viti til dæmis að Murdoch sé lítið hrifinn af Evrópusambandinu og þess vegna fari hann alltaf hægt í sakirnar þegar málefni þess séu á dagskrá. Sagt er að ákvörðun Blair um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um fyrirhugaða stjórnarskrá ESB hafi verð tekin eftir fundi með nánasta ráðgjafa og hugmyndafræðingi Murdochs, Irwin Stelzer. Í þeirri ákvörðun fólst algjör stefnubreyting. Líklega var það ekki tilviljun að Sun skýrði frá því að nokkrum vikum áður en ákvörðun Blair var kynnt að þjóðaratkvæðagreiðsla væri í vændum. Kannski nægir þetta til þess að Sun muni styðja Blair í kosningunum sem framundan eru. En blaðið leyfir sér hins vegar að gagnrýna hann í ýmsum málum og umfjöllun þess um embættisverk hans hefur á köflum verið óvægin undanfarna mánuði.
Hin tvö síðdegisblöðin, Daily Mail og Daily Express, hafa snúist gegn Blair og hann er sagður hafa gefist upp á því að reyna að fá þau á sitt band. Það er ekki bara skortur á stuðningi þessara blaða sem vekur Blair áhyggjur heldur hve miskunnarlaus blöðin eru orðin í umfjöllun um hann og stjórnarstefnuna. Telja menn Blairs að það geti orðið honum hættulegt þegar út í kosningabaráttuna kemur. Á móti vegur að "virðulegri" dagblöð eins og Times, Financial Times og Guardian munu að öllum líkindum lýsa yfir stuðningi við Verkamannaflokkinn. Áhrif þeirra á hinn almenna kjósanda eru þó talin mun minni en götublaðanna. Daily Telegraph styður sem fyrr Íhaldsflokkinn. "Fyrr mun það rotna í helvíti" segir Economist!
En getur verið að stöðugar áhyggjur og svefnlausar nætur Blair og vefara hans á spunaverkstæðinu í Downing Street séu ástæðulausar? Að áhrifamáttur blaðanna sé stórlega ýktur og það sé eitthvað annað en uppsláttur þeirra og fréttameðferð sem ráði kosningahegðun á endanum? Economist segir frá nýrri könnun sem leiðir í ljós að á síðustu þremur árum hafi stuðningur lesenda Sun við forsætisráðherrann minnkað úr 61% í 45%. En könnunin sýnir einnig að stuðningur lesenda andstæðingablaðsins Daily Mail hefur minnkað í nánast sama hlutfalli, úr 31% í 25%. Það bendir ekki til sérstakra áhrifa Sun á kjósendur. Kannski var allt flaðrið utan í Piers Morgan tilgangslaust segir Economist.
Guðmundur Magnússon -gm@frettabladid.is
Skoðun

Leiðréttingar á staðhæfingum um mjólkurmarkaðinn og tollflokkun
Erna Bjarnadóttir skrifar

Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque
Valgerður Árnadóttir,Rósa Líf Darradóttir,Aldís Amah Hamilton,Ragnheiður Gröndal,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir skrifar

Traustur vinur getur gert voðaverk!
Arnrún María Magnúsdóttir skrifar

Hrós getur skipt sköpum
Ingrid Kuhlman skrifar

Leiðrétting vegna rangfærslna framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda
Elín Margrét Stefánsdóttir skrifar

Þrautreynd baráttukona fyrir auknum fjárveitingum til Háskóla Íslands
Ragný Þóra Guðjohnsen skrifar

Vönduð vinnubrögð í umhverfismálum
Edda Sif Pind Aradóttir,Sævar Freyr Þráinsson skrifar

Jón og félagar eru farnir
Árni Guðmundsson skrifar

Gervigreind, uppfinningar og einkaleyfi
Einar Karl Friðriksson skrifar

Fyrirmynd í kennslu og fræðastarfi – af hverju við styðjum Silju Báru
Valgerður Björk Pálsdóttir,Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir skrifar

Við lifum í skjóli hvers annars
Dagný Hængsdóttir Köhler skrifar

Halldór 01.03.2025
skrifar

COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Meira um íslenskan her
skrifar

Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu
Hópur Sjálfstæðismanna skrifar

Háskóladagurinn og föðurlausir drengir
Margrét Valdimarsdóttir skrifar

Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands
Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar

En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla
Pétur Henry Petersen skrifar

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Micah Garen skrifar

Tölum um það sem skiptir máli
Flosi Eiríksson skrifar

Hvernig borg verður til
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum
Helga Rósa Másdóttir skrifar

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar