Fasteignamarkaður sé að róast 15. maí 2005 00:01
Fasteignaverð er ekki að lækka og framboð á fasteignum ekki að aukast. Þetta segir Ólafur B. Blöndal, framkvæmdastjóri Fasteign.is. Hann segir þó markaðinn vera að róast og að hækkanir séu að öllum líkindum yfirstaðnar. Ólafur segir eignir staldra lengur við en þær gerðu fyrir tveimur mánuðum þegar eignir fóru jafnvel sama dag út af markaði og þær komu inn. En hann segir ekkert benda til þess að markaðurinn sé á niðurleið. Ástandið sé þannig á markaðnum núna, sem hann telji nokkuð jákvætt, að fólk sé farið að staldra við og velta fyrir sér meira lánamöguleikum. Það sé ekki sami útlánahraði og var í áður og hann telji að það komi til af því að bankarnir séu ekki jafnútlánaglaðir. Ólafur segir að þó svo að verð hafi náð ákveðnu hámarki þurfi fólk ekki að kvíða lækkunum. Engin ástæða sé til að vera með upphlaup í þeim efnum því þeir sem hafi starfað við fasteignaviðskipti á Íslandi séu vanir því að þetta gerist. Ólafur segir að alltaf vanti fleiri fasteignir á markað, nóg sé eftirspurnin eftir húsnæði. Hugsanlega séu Íslendingar að ganga inn í tímabil sem sé nokkuð eðlilegt á fasteignamarkaði eins og fasteignasalar þekki það, á milli þess sem spenna verði.
Innlent Viðskipti Mest lesið Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Viðskipti innlent Persónuleg áætlanagerð fyrir 2026 aldrei verið jafn auðveld og nú Atvinnulíf Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Skipta dekkin máli? Samstarf Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Sjá meira