Jón Axel fékk 3 mánuði 11. október 2005 00:01
Jón Axel Ólafsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður, var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot á skatta- og hegningarlögum. Brotin sem Jón Axel var dæmdur fyrir voru framin á árunum 1998 og 99 þegar hann sat sem stjórnarformaður Íslenska fjölmiðlafélagsins ehf. en það rak meðal annars útvarpstöðina Matthildi. Í dómnum segir að félagið, sem tekið var til gjaldþrotaskipta árið 2001, hafi ekki staðið skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda. Ábyrgð á því að starfsemi félagsins væri í réttu og góðu horfi hafi legið hjá hinum ákærða í krafti stöðu hans sem stjórnarformanns, ekki síst í ljósi þess að hann hafi undirritað virðisaukaskattsskýrslur félagsins. Jón Axel neitaði hins vegar alfarið sök. Auk þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar, sem fellur niður að tveimur árum liðnum haldi ákærði almennt skilorð, var Jóni Axel gert að greiða 14,3 milljónir króna í sekt. Sé það ekki gert innan fjögurra vikna skal ákærði sæta 6 mánaða fangelsi. Þá var honum gert að greiða allan sakarkostnað upp á rúmar 290 þúsund krónur.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Sjá meira