Engin vettlingatök 13. júní 2006 19:00
Tveir bræður sem handteknir voru í áhlaupi Lundúnalögreglunnar á dögunum vegna gruns um að þeir hygðu á hermdarverk lýstu í dag reynslu sinni. Þeir segjast hafa sætt fádæma fautaskap og haldið að þeirra síðasta stund væri runnin upp. Bræðrunum Abdul Koyair og Mohammed Kahar brá heldur betur í brún þegar þeir voru rifnir upp úr rúmum sínum í upphafi þessa mánaðar. Fyrst héldu þeir að ræningjar hefðu brotist inn en svo kom í ljós að þar var á ferðinni sérsveit lögreglunnar sem hafði fengið ábendingu um að hryðjuverk væru í undirbúningi í húsi þeirra í Lundúnum. Mohammed átti sér einskis ills von þegar hann heyrði allt í einu skothvell. Hann heyrði bróður sinn öskra og varð þá ljóst að hann hafði orðið fyrir skoti. Því næst sparkaði lögregluþjónn í andlitið á honum og sagði honum að halda sér saman. Næstu vikuna sættu bræðurnir linnulausum yfirheyrslum en svo var þeim sleppt án ákæru enda fundust engin merki um að á heimili þeirra væru hermdarverk í bígerð. Í kjölfar blaðamannafundar bræðranna gaf Lundúnalögreglan út yfirlýsingu þar sem hún baðst afsökunar á að hafa valdið þeim sársauka og sálartjóni.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Fleiri fréttir Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Sjá meira