Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2026 09:58 Fulltrúar Konunglegu sænsku vísindaakademíunnar og Nóbelsnefndarinnar tilkynntu að Francis Halzen, belgísku öreindafræðingur, hefði hlotið Nóbelinn í eðlisfræði árið 2026. Vísir/EPA Belginn Francis Halzen hlaut Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í dag fyrir framlag sitt til rannsókna á svonefndum háorkufiseindum með uppruna í fjarlægum vetrarbrautum. Hann átti frumkvæði að því að nota ís á suðurpólnum til þess að greina fiseindirnar.
Halzen er fæddur í Belgíu árið 1944 og er prófessor í öreindaeðlisfræði við Háskólann í Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann hefur leitt svokallaða IceCube Neutrino Observatory, rannsóknarstöð sem er grafin um tvo kílómetra niður í ísinn við suðurpólinn á Suðurskautslandinu. Fiseindir eru út um allt en þær streyma meðal annars frá sólinni okkar. Þær gagnverka þó takmarkað við efni. Þannig ferðast þær í gegnum líkama manna og jörðina sjálfa án þess að menn verði nokkurs vísari. Einstaka sinnum gerist það þó að þær gagnverka við kjarna frumeinda. Halzen fékk þá hugdettu að nota ís til þess að greina árekstra fágætra háorkufiseinda við frumeindir á níunda áratug síðustu aldar. Hægt væri að greina blossa frá þessum árekstrum í gegnsæjum ísnum sem væri auk þess laus við ýmis konar truflanir. IceCube Neutrino Observatory á Suðurskautslandinu undir dansandi suðurljósum og Vetrarbrautinni.Ilya Bodo, IceCube/NSF Vegna þess hversu fágætar háorkufiseindir eru þarf gríðarlegt magn íss til þess að greina þær. Athuganastöðin á Suðurskautslandinu spannar heilan rúmkílómetra af ís. Nóbelsnefndin segir að athuganirnar á Suðurskautslandinu hafi opnað dyrnar að fjarlægum vetrarbrautum og veitt innsýn í eðli sprengistirna. Halzen sagðist hafa efast um að hugmynd hans ætti eftir að ganga upp. Hann hefði þó haft heppnina með sér að hafa náð að gera hana að veruleika. Fréttin hefur verið uppfærð.
Nóbelsverðlaun Vísindi Suðurskautslandið Belgía Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira