Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Samúel Karl Ólason skrifar 7. október 2026 21:50 Donald Trump segir að hann hefði getað og geti enn farið í hart gegn forverum sínum og Hillary Clinton. Hann segir þau hafa gert „mjög slæma hluti“ án þess þó að tilgreina hvað hann á við. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump sagði í dag að forverar hans, þeir Joe Biden og Barack Obama, hefðu gert „mjög slæma hluti“ og að hann hefði getað látið rannsaka þá og Hillary Clinton, sem hann sigraði í forsetakosningunum 2016. Það hafi hann ekki gert vegna þeirrar virðingar sem hann segist bera fyrir forsetaembættinu. „
Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demókratar næðu meirihluta í fulltrúadeildinni yrði hann ákærður af þeim fyrir embættisbrot. Blaðamaður spurði hann nákvæmlega fyrir hvað hann héldi að Demókratar myndu ákæra hann. „Þeir vita það ekki,“ sagði Trump. Hann sagði að þrír þingmenn Demókrataflokksins hefðu verið spurðir hvað þeir ætluðu að ákæra hann fyrir, þrátt fyrir allt sem hann hefði afrekað, og sagði að þeir hefðu ekki getað svarað. Hvaða þingmenn hann er að tala um er ekki ljóst en Trump sagði einn þeirra hafa verið forviða þegar hann var spurður. „Hafandi sagt það, þá hefði ég getað gert mjög slæma hluti við Hillary Clinton. Ég hefði getað gert mjög, mjög slæma hluti við Joe Biden. Ég hefði getað gert mjög slæma hluti við Barack Hussein Obama. Ég taldi að það væri óviðeigandi því þú verður að koma fram við forsetaembættið af virðingu.“ Þá sagðist Trump hafa komist að því að þau hefðu ákært hann fyrir embættisbrot tvisvar sinnum, sem gerðist á fyrra kjörtímabili hans. „Enn á þessari stundu get ég gert hvað sem ég vil, ef ég vil það. Þau hafa gert mjög slæma hluti. Það var rétt í þessu minnst á það í formi spurningar hvað þau gerðu. Það sem þau gerðu var mjög ólöglegt. Marga ólöglega hluti.“ Trump bætti við að hann bæri gífurlega virðingu fyrir forsetaembættinu. DOOCY: You’re telling voters that the Democrats will impeach you if they win. For what? TRUMP: They don’t know. I could have done very bad things to Hillary Clinton, Joe Biden, and Barack Hussein Obama. I thought it would be Inappropriate to because you have to treat the office of the presidency with respect. To this moment I can do whatever I want if I want. They've done some very bad things. It was just mentioned in the form of a question what they did, very illegal what they did.— Acyn (@Acyn) October 7, 2026 Tvisvar ákærður fyrir embættisbrot Bandaríkjaforseti hefur fjórum sinnum í sögu landsins verið ákærður fyrir embættisbrot, og Trump tvisvar af þessum fjórum skiptum. Í fyrra skiptið var Trump gert að sök að hafa beitt utanríkisstefnu Bandaríkjanna gegn Úkraínu með því markmiði að þvinga Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, til að tilkynna upphaf tveggja rannsókna sem myndu nýtast Trump í næstu forsetakosningum. Seinna skiptið sneri að árásinni á þinghúsið í janúar 2021. Forsetinn fór því næst að tala um það að í bæði skiptin þegar hann var ákærður fyrir embættisbrot hefðu atkvæðagreiðslurnar um það hvort hann væri sekur verið honum mikið í vil. Hann hefði ekki haft neinar áhyggjur á sínum tíma. Sjá einnig: Trump sýknaður Hann endaði svarið á því að segja aftur að ekki mætti koma fram við forsetaembættið af vanvirðingu. „Aftur, ég hafði tækifæri, og hef enn, gegn Biden, Hillary Clinton og Barack Hussein Obama. Fullt af fólki hefur sagt við mig: „Vöðum í þau“ en ég svaraði: „Nei, þú getur ekki gert forsetaembættinu það.“ Fyrr á árinu rak Trump Pam Bondi úr embætti dómsmálaráðherra en það gerði hann meðal annars vegna þess að honum þótti hún ekki ganga nógu hart fram gegn pólitískum andstæðingum sínum. Líklegra að ráðherrar verði ákærðir Þingmenn Demókrataflokksins hafa kallað eftir því að Trump verði ákærður fyrir embættisbrot og þá á grunni spillingar. Fjölskylda forsetans hefur auðgast gífurlega frá því hann tók aftur við embætti. Flestir hafa þó viljað forðast þá umræðu og hafa frekar talað um mikla þörf á eftirliti með ríkisstjórn hans og aðhaldi gegn henni. Í frétt PBS frá síðasta mánuði segir til að mynda að Demókratar séu mun líklegri til að kæra tiltekna ráðherra Trumps fyrir embættisbrot. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, sé þeirra á meðal. Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra er einnig talinn koma til greina.
Bandaríkin Donald Trump Barack Obama Joe Biden Bill Clinton Tengdar fréttir Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Kona sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var árið 2023 dæmdur fyrir að brjóta á kynferðislega er nú til rannsóknar hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. E Jean Carroll höfðaði mál gegn Trump og sakaði hann um nauðgun og ærumeiðingar en það mál endaði á því að honum var gert að greiða henni fimm milljónir dala. Honum var í öðru máli gert að greiða henni 83 milljónir dala. 28. maí 2026 09:25 Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Tveir lögregluþjónar sem voru að störfum í þinghúsi Bandaríkjanna þegar stuðningsmenn Donalds Trump forseta ruddu sér leið þar inn þann 6. janúar, hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni. Þeir vilja koma í veg fyrir að Trump-liðar geti greitt bandamönnum forsetans úr nýstofnuðum sjóði sem ætlað er að útvega fólki sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur. 20. maí 2026 21:01 Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump James Comey, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglunnar, hefur verið ákærður fyrir líflátshótun í garð Donald Trump Bandaríkjaforseta á grundvelli myndar sem hann birti á samfélgsmiðlum í fyrra. 29. apríl 2026 06:52 Ákærur gegn Comey og James felldar niður Bandarískur dómari felldi í gær niður ákærurnar gegn þeim James Comey, fyrrverandi yfirmanni Alríkislögreglu Bandaríkjanna, og Letitia James, ríkissaksóknara New York. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að saksóknarinn sem ákærði þau, sem er fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi verið skipaður í embætti með ólöglegum hætti. 25. nóvember 2025 15:56 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Kona sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var árið 2023 dæmdur fyrir að brjóta á kynferðislega er nú til rannsóknar hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. E Jean Carroll höfðaði mál gegn Trump og sakaði hann um nauðgun og ærumeiðingar en það mál endaði á því að honum var gert að greiða henni fimm milljónir dala. Honum var í öðru máli gert að greiða henni 83 milljónir dala. 28. maí 2026 09:25
Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Tveir lögregluþjónar sem voru að störfum í þinghúsi Bandaríkjanna þegar stuðningsmenn Donalds Trump forseta ruddu sér leið þar inn þann 6. janúar, hafa höfðað mál gegn ríkisstjórninni. Þeir vilja koma í veg fyrir að Trump-liðar geti greitt bandamönnum forsetans úr nýstofnuðum sjóði sem ætlað er að útvega fólki sem telur sig fórnarlömb vopnvæðingar réttarkerfis Bandaríkjanna skaðabætur. 20. maí 2026 21:01
Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump James Comey, fyrrverandi forstjóri Alríkislögreglunnar, hefur verið ákærður fyrir líflátshótun í garð Donald Trump Bandaríkjaforseta á grundvelli myndar sem hann birti á samfélgsmiðlum í fyrra. 29. apríl 2026 06:52
Ákærur gegn Comey og James felldar niður Bandarískur dómari felldi í gær niður ákærurnar gegn þeim James Comey, fyrrverandi yfirmanni Alríkislögreglu Bandaríkjanna, og Letitia James, ríkissaksóknara New York. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að saksóknarinn sem ákærði þau, sem er fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi verið skipaður í embætti með ólöglegum hætti. 25. nóvember 2025 15:56