Forseti Íslands sækir Rannsóknarþing Norðursins í Finnlandi 4. október 2006 17:30 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. MYND/Gunnar V. Andrésson
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sækir Rannsóknarþing Norðursins sem hefst í Oulu í Finnlandi á morgun. Tarja Halonen, forseti Finnlands, setur þingið árdegis og flytur forseti Íslands einnig ávarp við opnun þess. Í tilkynningu frá forsetaskrifstofu kemur fram að Rannsóknarþing Norðursins var stofnað að frumkvæði forseta Íslands fyrir 6 árum og var stofnfundurinn haldinn á Akureyri og á Bessastöðum árið 2000. Skrifstofur Rannsóknarþingsins hafa frá upphafi verið í Háskólanum á Akureyri. Meðal viðfangsefna þess eru atvinnulíf og tækniþróun á norðurslóðum, samvinna á sviði efnahagslífs og menningar, umhverfismál, jafnréttismál og réttindi þjóðarbrota, löggjöf og samgöngur. Rannsóknarþingi er að þessu sinni helgað viðfangsefninu Norðurslóðir án landamæra og það sækja fræði- og vísindamenn af ólíkum sviðum, sveitastjórnarmenn, forystumenn í atvinnulífi og fulltrúar frumbyggja. Þátttakendur á þinginu eru frá Bandaríkjunum, Kanada, Norðurlöndunum og Rússlandi. Fram kemur í tilkynningu frá forsetaskrifstofu að forsetar Íslands og Finnlands efni til viðræðurfundar um vaxandi samvinnu landanna á sviði viðskipta, vísinda og menningar, sem og um sameiginlegan áhuga þeirra á málefnum þróunarlanda. Forseti Íslands mun síðan ræða sérstaklega við ýmsa þátttakendur á þinginu.
Fréttir Innlent Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Innlent Noem rekin Erlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Eyjólfur færir klukkuna aftur Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum „Margir staðir og margir sakborningar“ Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher „Er ekki alltaf gerlegt við þessar kringumstæður“ Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Tveir í varðhaldi vegna hópárásar í miðbæ Plóma mjólkar mest allra kúa og setti Íslandsmet Þessi leiða Viðreisn í Garðabæ Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þau skipa lista Viðreisnar í Reykjavík Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ ASÍ segir niðurskurðaraðgerðir ekki koma til greina Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Sjá meira