Innlent

Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hag­kaup á Eiðis­torgi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Maðurinn mun hafa mundað hníf í versluninni og ekki hlýtt skipunum lögreglu.
Maðurinn mun hafa mundað hníf í versluninni og ekki hlýtt skipunum lögreglu. Vísir/Arnar

Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við verslun Hagkaupa á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi í dag. Maður mun hafa mundað hníf í versluninni og lögregla beitti rafbyssu til að yfirbuga hann.

Ríkisútvarpið hefur eftir sínum heimildum að maður á fimmtugsaldri hafi verið með hníf í versluninni. Hann hafi ekki hlýtt skipunum um að leggja hnífinn frá sér og ekki brugðist heldur við piparúða.

Þá hafi lögregla beitt hann rafbyssu og þá tekist að yfirbuga manninn og fara með hann í lögreglubíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×