Chelsea tapaði stigum á heimavelli 26. desember 2006 14:55 Didier Drogba skoraði bæði mörk Chelsea í dag. Hér sést hann nýbúinn að skora það fyrra og Brynjar Björn Gunnarsson horfir á með böggum hildar. MYND/Getty
Englandsmeistarar Chelsea náðu aðeins jafntefli gegn nýliðum Reading á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur urðu 2-2 og á Manchester United því alla möguleika á að ná fjögurra stiga forystu með því að sigra Wigan á heimavelli sínum í leik sem hefst kl. 15. Það var hinn sjóðheiti Didier Drogba sem skoraði bæði mörk Chelsea á Stamford Bridge í dag, hið fyrra á 38. mínútu en hið síðara á þeirri 72. Skömmu áður, eða á 67. mínútu, hafði Leroy Lita jafnað fyrir gestina. Það var síðan einkar slysalegt sjálfsmark frá Michael Essien á 85. mínútu sem tryggði Reading annað stigið í leiknum. Ívar Ingimarsson og Brynjar Gunnarsson léku báðir allan leikinn fyrir Reading, Ívar í vörninni en Brynjar á miðjunni. Tveir aðrir leikir fóru fram kl. 13 í dag. Eggert Magnússon og lærisveinar hans í West Ham máttu þola 2-1 tap á heimavelli fyrir Portsmouth. Linvoy Primus skoraði bæði mörk gestanna en Teddy Sheringham minnkaði muninn fyrir West Ham á lokamínútunum. West Ham er sem fyrr í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Þá vann Tottenham góðan sigur á Aston Villa á heimavelli sínum, 2-1, þar sem Jermain Defoe skoraði bæði mörk heimamanna.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Sjá meira