Elton Brand sagður á leið til Philadelphia 9. júlí 2008 17:25 Elton Brand er einn af aðeins fimm leikmönnum í NBA síðustu 20 ár til að skora 20 stig og hirða 10 fráköst að meðaltali á ferlinum NordcPhotos/GettyImages
Nokkur ólga hefur verið á leikmannamarkaðnum í NBA deildinni undanfarna daga og sá leikmaður sem mestu fjaðrafoki hefur valdið er framherjinn sterki Elton Brand hjá LA Clippers. Brand fékk sig lausan út úr samningi sínum við Clippers á dögunum en talið var að hann myndi semja aftur við félagið - ekki síst eftir að það fékk til sín leikstjórnandann Baron Davis frá Golden State. Nú er hinsvegar komin upp ný staða í málinu og heimildamenn ESPN segja nær öruggt að Brand ætli sér að taka samningstilboði frá Philadelphia 76ers. Ef þessi tíðindi verða að veruleika, yrði það gríðarlegt áfall fyrir Clippers-liðið sem ætlaði sér að blanda sér aftur í baráttu bestu liðanna í Vesturdeildinni með því að semja aftur við Brand og bæta Davis í leikmannahópinn. Brand var raunar meira og minna meiddur síðasta vetur, en hann er tvöfaldur stjörnuleikmaður um þrítugt og jafnan talinn einn besti kraftframherji deildarinnar. Philadelphia þarf að taka til í leikmannamálum sínum ef félagið á að geta samið við Brand, en skv heimildum ESPN er félagið þegar byrjað að gera ráðstafanir þess efnis. Niðurstöðu í málinu er að vænta fjótlega, en Brand um hafa verið í Philadelphia í gærkvöld þar sem hann átti fund með forráðamönnum 76ers.
NBA Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Sjá meira