Dagblöðin í sókn í Danmörku 8. mars 2008 09:44
Óli Tynes skrifar frá Svíþjóð Síðan fríblöðunum fjölgaði í Danmörku með tilkomu Nyhedsavisen, sem hin íslenska Dagsbrún gefur út , hefur upplag áskriftarblaðanna minnkað og tekjur sömuleiðis. Nú virðist hilla í viðsnúning. Í febrúar síðasliðnum fjölgaði lesendum frá sama mánuði í fyrra. Jyllands-Posten, Extra Bladet, Politiken og BT bættu öll við sig. Nyhedsavisen er ennþá mest lesna blað Danmerkur með 617 þúsund lesendur. Þar á eftir kemur 24timer með 565 þúsund lesendur. Næst í röðinni er svo þriðja fríblaðið Metro-Xpress. Jyllands Posten hefur bætt við sig fjórum prósentum miðað við febrúar í fyrra. Politiken hefur bætt við sig fimm prósentum, Extra Bladet 16 og BT heilum 20 prósentum. Það eru þó ekki bara gleðilegar tölur hjá JP Politikens hus sem hóf útgáfu á fríblaðinu 24timer til þess að mæta samkeppninni frá Nyhedsavisen. Reksturinn fór úr 204 milljóna króna hagnaði árið 2006 í tap upp á rúmlega 1,6 milljarða tap árið 2007. Þar var eingöngu um að kenna kostnaði við 24timer. Menn eru þó brattir þar á bæ. Lars Munch, framkvæmdastjóri býst við að fríblaðið fari að skila hagnaði þegar á þessu ári. Eins og á Nyhedsavisen hefur verið gripið til ýmissa sparnaðarráðstafana á 24timer undanfarnar vikur. Munch hefur fulla trú á að það dugi til að koma blaðinu réttu megin við strikið.
Erlent Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Sjá meira