Tölulegar upplýsingar um landsframleiðslu Kína á fjórða ársfjórðungi síðasta árs verða birtar á morgun. Greinendur og sérfræðingar segja að þessar tölur muni verða hrollvekjandi fyrir efnahagskerfi heimsins því reiknað er með að hagvöxtur Kína á þessu tímabili hafi í besta falli verið í kringum núllið.
Kína er aflvélin sem keyrt hefur efnahag heimsins áfram á síðustu árum. Kína tók nýlega þriðja sætið af Þýskalandi á listanum yfir stærsta efnahag þjóða.
Þar á bæ eru menn vanir að mæla hagvöxt ársins í tveggja stafa tölu. Ef aflvélin er farin að hiksta má eiga von á að kreppan í heiminum dýpki ennfrekar en orðið er.
Olav Chen sérfræðingur hjá Storebrand segir í samtali við vefsíðuna E24.no að hann telji að hagvöxturinn í Kína verði í kringum núllið á fjórða ársfjórðung en það þýðir að hagvöxturinn í heild á árinu öllu nemi um 9%. Sú tala er sú lægst sem Kínverjar hafa séð í tæp tuttugu ár.
Greinendur og sérfræðingar hjá Morgan Stanley, Goldman Sachs Asia og Oxford Economics eru ekki jafn bjartsýnir á Chen. Samkvæmt Bloomberg-fréttaveitunni telja þeir að hagvöxtur síðasta árs í Kína hafi numið um 6%.