Rómverjar vara stuðningsmenn Manchester United við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. maí 2009 12:30 Stuðningsmenn United mega ekki koma á Campo dei Fiori torgið. Mynd/AFP
Það er óttast að um tíu þúsund miðalausir stuðningsmenn Manchester United munu ferðast til Rómar vegna úrslitaleik Meistaradeildarinnar í næstu viku og eru heimamenn farnir að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða til þess að koma í veg fyrir ólæti og slagsmál í borginni. Stuðningsmenn Manchester United, sem verða alls um 30 þúsund talsins, eiga að forðast þau svæði þar sem hætta er að þeir lendi andspænis gengjum heimamanna. Þeir eiga að sleppa því að taka lestina til Piazzale Flaminio og mega ekki nota Ponte Duca D'Aosta brúnna. Stuðningsmenn United eiga líka að vera eins langt í burtu frá Campo dei Fiori torginu og þeir geta en þar hefur áður verið mikil ólæti og slagsmál. „Þetta er einstök upplifun fyrir marga stuðningsmenn og það vilja allir að þeir skemmti sér vel. Til þess að svo geti farið þá þarf að grípa til ákveðinna varúðarráðstafana," sagði Alastair Mackie starfsmaður utanríksmálastofunnar. „Við erum í samstarfi við heimamenn og breska sendiráðið í Róm og það er öruggt að stuðningsmenn fá alla þá þjónustu og aðstoð sem þeir þurfa á að halda," bætti Mackie við. Borgarstjóri Rómar, Gianni Alemanno, fagnar komu stuðningsmanna United. „Rómarborg biður alla stuðningsmenn United velkomna og hlakkar til að njóta með þeim þessarar miklu íþróttaveislu," sagði Alemanno.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Dagskráin í dag: Tími fyrir endurheimt Sport Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Fleiri fréttir „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Sjá meira