Hertar reglur veikja gengið erlendis 3. júní 2009 00:01
Gengi krónunnar hefur veikst á aflandsmarkaði (utan landsteinanna) þótt það hafi styrkst hér innanlands síðustu daga. Þetta kemur fram í Hagsjá, nýju daglegu vefriti hagfræðideildar Landsbankans. Þar kemur fram að síðustu tíu daga hafi evran lækkað úr 177,4 krónum í 171,6 krónur, eða sem nemur 3,3 prósentum. Engin velta hafi hins vegar verið á innlendum gjaldeyrismarkaði í gær og því hafi gengið nánast staðið í stað frá því fyrir helgi. „Aflandsgengi (e. Off-shore) krónu hefur aftur á móti farið hækkandi undanfarið og má að einhverju leyti rekja veikinguna til þess að markaðsaðilar telja að Seðlabankinn hafi verið að herða á reglum sínum um gjaldeyriskaup með birtingu á minnisblaði dagsettu 28. maí síðastliðinn," segir í Hagsjá. Í minnisblaðinu eru tilmæli til fjármálastofnana um framkvæmd og sölu gjaldeyris og hnykkt á þeim skilningi Seðlabankans að ekki sé unnt að skipta tilteknum vaxtagreiðslum yfir í erlendan gjaldeyri. Þar á meðal eru vextir af erlendum skuldabréfum sem gefin eru út af erlendum aðilum í krónum (svonefndum jöklabréfum), vextir af krónureikningum hjá erlendum fjármálafyrirtækjum, og vextir af hvers kyns fjármálagerningum sem gefnir eru út af erlendum aðilum. „Þetta virðist vera strangari túlkun en markaðsaðilar höfðu áður gert ráð fyrir og því er ekki óeðlilegt að bilið á milli innanlands- og aflandsgengis aukist," segir hagfræðideild Landsbankans í nýju vefriti sínu.- óká
Markaðir Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fleiri fréttir Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Sjá meira