Madrídingar hundfúlir út í dómarana Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. maí 2011 22:55 De Bleeckere og Xabi Alonso í leiknum í kvöld. Nordic Photos / AFP
Xabi Alonso, leikmaður Real Madrid, segir að það hafi verið dómurunum að kenna að liðið komst ekki áfram í úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu. Real Madrid gerði í kvöld 1-1 jafntefli við Barcelona í síðari viðureign liðanna í undanúrslitunum. Það dugði ekki til þar sem að Börsungar unnu fyrri leikinn í Madríd, 2-0. Þýski dómarinn Wolfgang Stark dæmdi fyrri leikinn og þótti eiga slæman dag. Í kvöld var dæmdi svo Frank De Bleeckere, dómari frá Belgíu, mark af Madrídingum í stöðunni 0-0. „Leikurinn hefði þróast allt öðru vísi ef markið okkar hefði fengið að standa,“ sagði Alonso eftir leikinn í kvöld. „Okkur finnst að margar ákvarðanir dómaranna hafi bitnað á okkur í þessum leikjum og við erum ekki ánægðir með það.“ „við stóðum okkur virkilega vel en ákvarðanir dómaranna bitnuðu á okkur.“ Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, var rekinn af velli í fyrri leiknum fyrir mótmæli og tók því út leikbann í kvöld. Aðstoðarmaður hans, Aitor Karanka, tók í svipaðan streng og Alonso. „Mourinho hafði rétt fyrir sér. Hann sagði að það myndi reynast okkur ómögulegt að komast áfram. Leikurinn í kvöld sannaði það og 100 milljónir sjónvarpsáhorfenda geta borið vitni um það. Það er engu við það að bæta.“
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Holland - Japan | Hefja leik í hörkuriðli „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ Sjá meira