Möguleiki Vettel á að jafna met Schumacher úr sögunni í ár 14. nóvember 2011 15:22 Sebastian Vettel á mótssvæðinu í Abú Dabí í gær. MYND: Getty Images/Mark Thompson/Red Bull Racing
Christian Horner, yfirmaður meistaraliðs Red Bull sagði Sebastian Vettel hafa verið vonsvikinn eftir keppnina í Abu Dabí í gær eins og allt liðið. Vettel féll úr leik í fyrsta hring eftir að afturdekk hvellsprakk og engin skýring hefur enn fundist á því hvað var þess valdandi. Vettel var í fyrsta sæti þegar dekkið sprakk. Vettel átti fyrir keppnina möguleika á að jafna met Michael Schumacher frá árinu 2004, en þá vann Schumacher 13 mót á keppnistímabilinu. Vettel hefði þurft að vinna mótið í Abú Dabí og síðasta mót ársins í Brasilíu til að jafna árangur landa síns frá Þýskalandi. Vettel hefur unnið 11 mót á árinu. Horner hrósaði Vettel fyrir þá viðleitni að staldra við á þjónustusvæðinu eftir vonbrigðin í mótinu og þá staðreynd að hann vildi hjálpa Mark Webber og liðinu í heild sinni það sem eftir lifði móts. Vettel fylgdist með þeim sem stýra gangi mála hjá Red Bull á þjónustusvæðinu eftir að hann féll úr leik. „Hann drekkur upplýsingar í sig eins og svampur. Hann sá möguleika á því að miðla reynslu sinni til liðsfélaga sína og tækifæri til að upplifa hvernig er að starfa á þeim stað sem ákvarðanir eru teknar á þjónustusvæðinu. Hann vill skilja gang mála og gefa ráð og hjápa," sagði Horner um mál Vettel í frétt á autosport.com í dag. Horner viðurkenndi að Vettel hefði verið mjög vonsvikinn að missa möguleikann sigri úr hendi sér í upphafi mótsins í gær. „Allt liðið var vonsvikið, af því við vorum í stöðu til að sigra. Vettel stóð sig ofur vel í tímatökunni, ók einn sinn besta hring á ferlinum til að tryggja sér fremsta stað á ráslínunni. Vettel gerði allt rétt. Hann ræsti af stað og var kominn í forystu í fyrstu beygju og það voru grimmileg óheppni að verða hætt keppni á þennan hátt." „Auðvitað var hann vonsvikinn, en hann var ekkert að flýta sér frá brautinni. Hann hjálpaði liðinu og liðsfélaga sínum. En hann ætlar að ljúka tímabilinu á góðum nótum og mun mæta tvíelfdur til leiks í Brasilíu," sagði Horner en lokamót ársins verður þar 27. nóvember. Horner sagði að Red Bull tæki sigurum ekki sem sjálfsögðum hlut og því fagnaði liðið alltaf vel, ef sigur liti dagsins ljós hjá liði sínu. „Það er mjög erfitt að vinna kappakstursmót. Það þarf allt að smella saman og tímabilið hefur verið ótrúlegt fyrir liðið. Við höfum unnið ellefu af átján mótum til þessa og náð fremsta stað á ráslínu í öllum mótum nema einu og náð titlum í keppni ökumanna og bílasmiða. Það hefði verið gaman að vinna hér eins og síðustu ár, en vegna þess að dekk sprakk gekk það ekki upp," sagði Horner.
Formúla Íþróttir Mest lesið Glórulaus tækling Gylfa Þórs Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur - ÍBV 2-0 | Gylfi Þór sá rautt í sannfærandi sigri Íslenski boltinn „Bara „shout out“ á mömmu, takk fyrir þetta!“ Fótbolti Ekki með gegn Ísrael þar sem hún er ólétt Handbolti Steini stóryrtur í lok fundar: „We´re gonna fuckin beat you“ Fótbolti Í beinni: Álftanes - Njarðvík | Grænir verða að svara Körfubolti Vann Meistaradeildina með Barcelona en vinnur nú í Intersport Fótbolti Rekinn sem slakasti stjóri í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Van Dijk tjáir sig um samningaviðræðurnar Enski boltinn Guardiola hneykslaður á söngvum um móður Fodens Enski boltinn Fleiri fréttir Schumacher orðinn afi Verstappen fagnaði sigri í Japan: „Þetta er ansi dýr sláttuvél“ Sjáðu magnaðan lokahring Verstappen: „Jafnvel sá besti á ferli Max" Verstappen á ráspólnum í Japan „Það er algjört kjaftæði“ Pérez rætt við nokkur lið um endurkomu Verstappen óánægður með Red Bull fyrir að reka liðsfélagann Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Ballið búið hjá Hamilton og Vergara Red Bull búið að gefast upp á Lawson Hamilton dæmdur úr leik í Kína Piastri vann Kínakappaksturinn Hamilton vann sprettkeppnina en Piastri á ráspól Fyrsti ráspóll Hamiltons í rauðu Eddie Jordan látinn Formúlan gæti farið til Bangkok Lando Norris aðeins 0,8 sekúndum á undan heimsmeistaranum í markið „Þetta tímabil verður ekki fyrir hjartveika“ McLaren með tvo fremstu menn á ráspól í fyrstu keppni ársins „Kominn tími á konu í Formúlu 1“ F1 2025: Guð gefðu okkur besta tímabil sögunnar Cadillac verður með lið í formúlu 1 Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen Sjá meira