Nico Rosberg vann í fyrsta sinn í Kína Birgir Þór Harðarson skrifar 15. apríl 2012 09:02 Rosberg var að vonum ánægður með að landa loksins sigri í Formúlu 1. ap
Þjóðverjinn Nico Rosberg vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 í kínverska kappakstrinum í Shanghai í morgun. Jenson Button var annar eftir fjöruga lokahringi sem röðuðu mönnum upp á nýtt. Rosberg leiddi kappaksturinn frá upphafi til enda, að undanskildum nokkrum hringjum þegar Felipe Massa komst ofarlega en átti eftir að taka þjónustuhlé. Liðsfélagi Rosberg, Michael Schumacher, var sá eini sem féll úr keppni. Schumacher kom út úr fyrsta þjónustu hléi sínu með laust dekk og gat þvi ekki haldið áfram. Liðsfélagarnir hjá McLaren, þeir Jenson Button og Lewis Hamilton enduðu í öðru og þriðja sæti eftir harða baráttu undir lok mótsins við keppinauta sína hjá Red Bull. Sebastian Vettel virtist eiga þriðja sætið víst þegar 10 hringir voru eftir en endaði fimmti á eftir liðsfélaga sínum Mark Webber. Kimi Raikkönen var sömuleiðis á hraðri leið með að tryggja sér annað sætið þegar tíu hringir voru eftir. Heppnin var ekki með honum í þetta skiptið því veggripið virtist hreinlega hverfa þegar á reyndi. Fór svo að Raikkönen endaði aðeins í 14. sæti. Báðir Williams bílarnir luku mótinu í stigasæti. Bruno Senna og Pastor Maldonado voru allan tíman ofarlega í keppninni og enduðu í sjöunda og áttunda sæti, á eftir Romain Grosjean á Lotus en á undan Fernando Alonso á Ferrari. Alonso leiddi heimsmeistarakeppni ökuþóra eftir kappaksturinn í Malasíu en lauk mótinu þriðji á eftir McLaren ökuþórunum tveimur. Sauber bílarnir tveir voru atkvæðamiklir í kappakstrinum, höfðu þó ekki eins mikil áhrif á framvindu mótsins og Button spáði í gær eftir tímatökuna. Kamui Kobayashi og Sergio Perez luku mótinu í 10. og 11. sæti. Eftir kínverska kappaksturinn leiðir Lewis Hamilton stigamót ökumanna með 45 stig. Jenson Button er annar með 43 og Alonso þriðji með 37. Með sigri sækir Rosberg sín fyrstu stig í ár og er sjötti með 25 stig. Úr þremur fyrstu mótunum hafa sautján ökumenn landað stigum sem verður að teljast óvenju mikið en lofar góðu fyrir tímabilið sem er rétt að byrja. Kappaksturinn í Kína gefur góðar vonir um að munurinn á milli liðanna sé enn að minnka. Tímatökurnar í gær voru þær jöfnustu í langan tíma og hart var barist í kappakstrinum í dag. Næst er keppt í Barein um næstu helgi.
Formúla Mest lesið Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti Búin að þríbæta þrjátíu ára met Guðrúnar Sport Í landsliðið því lítill ættingi er á leiðinni Körfubolti Dramatík hjá Hákoni Fótbolti Tilþrif Elvars þau bestu í heimi á föstudaginn Körfubolti Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Enski boltinn Sjáðu Loga Geirs hengja Frakkann og tryggja sér titil Sport Fleiri fréttir Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira