Mistök á að leiðrétta Ögmundur Jónasson skrifar 18. janúar 2012 06:00 Í fréttaskýringu í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag segir eftirfarandi um fyrirsjáanleg átök á Alþingi um að fallið verði frá málshöfðun á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra: „Þar munu mætast stálin stinn og báðar fylkingar virðast nokkuð sigurvissar. Hvernig það mál fer verður ákveðinn mælikvarði á styrk stjórnarinnar.“ SinnaskiptiÞetta þykir mér undarlegur málatilbúnaður. Í þessu máli gilda ekki flokkslínur og eiga ekki að gilda nú frekar en haustið 2010, þegar þingsályktun um málið var samþykkt á þingi. Í þeirri atkvæðagreiðslu voru fylkingar ekki skýrari en svo að bæði Framsókn og Samfylking klofnuðu í afstöðu sinni og ráðherrar í ríkisstjórn greiddu ekki atkvæði á einn veg. Ráðherrar Samfylkingar greiddu atkvæði gegn málshöfðun gegn Geir H. Haarde, en við, ráðherrar og þingmenn VG, vorum fylgjandi. Ef þessir ráðherrar Samfylkingarinnar töldu málshöfðun ranga þá, hví ættu þeir að vera henni fylgjandi nú? Og hvers vegna í ósköpunum að ætla að stjórn og stjórnarandstaða muni nú takast á um málið á flokkspólitískum forsendum – þar sem mætist „stálin stinn“? Það sem hins vegar hefur átt sér stað eru sinnaskipti hjá einhverjum okkar í VG og hugsanlega einnig í Framsóknarflokknum að því er mér skilst. Um sinnaskipti andstæðinga málshöfðunar hef ég ekki heyrt. Ég tala að sjálfsögðu aðeins fyrir sjálfan mig þegar ég geri grein fyrir eigin sinnaskiptum. Einn stjórnmálamaður sekur?Við atkvæðagreiðsluna um málshöfðun gegn Geir H. Haarde gerðist það að atkvæði féllu þannig að allir Samfylkingarráðherrar voru undanþegnir málssókn en Geir H. Haarde var látinn standa einn eftir. Einstakir þingmenn Samfylkingarinnar greiddu atkvæði að því er virtist, sitt á hvað. Niðurstaðan varð hins vegar flokkspólitísk: Enginn samfylkingarráðherra var ákærður, aðeins einn sjálfstæðismaður, Geir H. Haarde. Honum skyldi ætlað einum að axla samanlögð pólitísk mistök Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar í aðdraganda hrunsins! Við þetta varð að mínu mati eðlisbreyting á þessu máli sem af hálfu okkar margra í VG, var hugsað sem prófsteinn á ábyrgð „stjórnmálanna“. Glæpsamleg ásetningsbrot?Niðurstaðan varð hins vegar sú að einn maður átti nú að svara – með fangelsisdóm yfir höfði sér – fyrir allt sem úrskeiðis hafði farið í áralöngum aðdraganda hrunsins þar sem fjöldi manns hafði komið að verki, með beinum eigin aðgerðum eða aðgerðarleysi sínu. Í mínum huga er undirgefni við valdið engu síður ámælisverð en sjálf valdbeitingin. Ákæran gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi snýr að því að hann hafi sýnt af sér andvaraleysi og ekki sinnt samráði sem skyldi. Ég hef orðið var við að margir halda að um það sé að ræða að Landsdómur fáist við rannsókn á því sem gerðist á landamærum glæpsamlegra ásetningsbrota annars vegar og pólitískra axarskafta hins vegar. Svo er ekki. Það eru axarsköftin sem eru til skoðunar og auk þess þröngt afmökuð í aðdraganda hrunsins. Hins vegar er ekki að undra að fólk haldi að miklu meira sé undir, því krafist er fjársektar og fangelsisvistar, allt að tveimur árum. Í vitund manna og þegar málið verður skoðað í sögulegu ljósi síðar meir er hætt við að það taki á sig stærri mynd. Sú mynd er á ábyrgð okkar sem að þessu stöndum. SýndaruppgjörPólitísk afglöp geta verið afdrifarík eins og tvímælalaust átti við um stjórnarstefnuna og ákvarðanir í veigamiklum efnum á árunum í aðdraganda hrunsins, allar götur frá því framsal á kvóta var heimilað, bankarnir einkavæddir og tekið var til við að kynda undir græðgisæðið. „Virkjum eignagleðina“, sagði Davíð Oddsson í upphafi valdaferils síns. Heilir stjórnmálaflokkar, fjölmiðlar og stjórnsýslan að nokkru leyti, tóku í kjölfarið að stíga hinn tryllta dans peningahyggjunnar. Sem áður segir tel ég að við fyrrnefnda atkvæðagreiðslu á þingi hafi orðið eðlisbreyting á málinu. Geir H. Haarde átti nú einn í reynd að svara til siðferðilegrar ábyrgðar fyrir allt það sem úrskeiðis hafði farið á hinum pólitíska vettvangi í löngum aðdraganda hrunsins þar sem margir höfðu komið við sögu. Eftir á að hyggja tel ég að mistök okkar sem greiddum þessari málssókn atkvæði séu mikil. Óháð niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar tel ég að við höfum farið villur vegar í málinu öllu. Réttarhöld yfir nokkrum einstaklingum vegna andvaraleysis þeirra og mistaka, geta í mínum huga aldrei orðið annað en sýndaruppgjör við skipbrot pólitískrar kreddu sem kjósendur studdu aftur og ítrekað. Nú er hvíslaðÞað er athyglisvert að ýmsir sem komu að stjórnmálum í aðdraganda hrunsins hvísla því nú í eyru okkar að fráleitt sé að stöðva þessa málsókn: Það þurfi nefnilega að gera málin upp! Með þessum réttarhöldum er í mínum huga ekki verið að gera eitt eða neitt upp. Það kann hins vegar að vera að með þessum málatilbúnaði gerist hið gagnstæða, við látum afvegaleiðast í uppgjöri við fjármálakerfið og pólitísk afskipti af því og einkavæðingu á verðmætum samfélagseignum, þar sem einstaklingar högnuðust persónulega. Ekkert af þessu á við um Geir H. Haarde. Hann framfylgdi hins vegar pólitískri kreddu sem bjó í haginn fyrir hina raunverulegu svindlara. Hrunverjar á þingiStjórnmálin eiga enn eftir að draga lærdóma af hruninu með því að breyta vinnubrögðum sínum. Það mun gerast þótt það virðist ætla að taka lengri tíma en ég hafði trúað. Skýrsla þingmannanefndarinnar undir formennsku Atla Gíslasonar sneri fyrst og fremst að breyttum vinnubrögðum Alþingis og ríkisvalds, horfði með öðrum augum fram á veginn en ekki aftur. Í anda skýrslunnar þurfum við sem skipum stjórnarmeirihlutann á Alþingi að horfa með gagnrýni á eigin gjörðir og stjórnarandstaðan, sem að uppistöðu til eru hrunverjarnir sjálfir, mætti tala af ögn meiri hógværð en hún gerir og sýna þannig að hún ætli í raun og veru að horfast í augu við sjálfa sig og pólitíska fortíð sína. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landsdómur Ögmundur Jónasson Mest lesið Halldór 06.06.26. Halldór Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Snædís Valsdóttir,Aðalsteinn Hjartarson Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar