Aron: Fagna hverju skoti sem ég næ að verja Sigurður Elvar Þórólfsson í Sevilla skrifar 13. janúar 2013 18:43 Aron Rafn Eðvarsson varði alls 13 skot og þar af 2 vítaköst í 38-22 sigri Íslands gegn Síle í dag. Mynd / Vilhelm „
Ég fagnaði hverju skoti sem ég náði að verja og þannig á það að vera. Ég fann að spennustigið var betra í þessum leik en gegn Rússum. Í þeim leik leið mér eins og skólastrák sem gæti ekki varið skot, þetta var mun betra í dag gegn Síle," sagði Aron Rafn Eðvarsson markvörður íslenska landsliðsins eftir 38-22 sigur liðsins á HM í dag. Aron lék í rúmlega 35 mínútur og varði hann alls 13 skot og þar af tvö vítaköst. „Sjálfstraustið var mun betra, ég varði tvö víti og ég hefði átt að verja það þriðja. En Síle er ekki sterkasta lið í heimi en það þarf að vinna þessa leiki líka. Það er ástæða fyrir því að þessi lið eru á HM og það geta allir eitthvað í handbolta sem eru á þessu móti." Aron segir að þjálfarateymi Íslands hafi farið vel yfir markvörsluna gegn Rússum og hvað hafi farið úrskeiðis. „Þetta var aðallega bara í hausnum á mér, stilla spennustigið og koma með rétt hugarfar í leikinn. Ég er að læra eins og allir leikmenn og vonandi tekst mér að finna réttu aðferðina. Það er mikil samkeppni um að spila en þrátt fyrir það erum við Björgvin Gústavsson að vinna saman alla daga. Við erum að sjálfsögðu ekkert sáttir við að byrja á bekknum en þjálfarinn ræður og maður leggur sitt að mörkum til að liðinu gangi vel – hvort sem maður er inni á vellinum eða á varamannabekknum," sagði Aron Rafn.
Mest lesið Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Skynjar stress hjá Arsenal Enski boltinn Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Enski boltinn Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Fleiri fréttir Óðinn bikarmeistari fjórða árið í röð Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið Sjá meira