Frábær sigur hjá Kiel í Veszprem 27. apríl 2013 15:54 Leikmenn Kiel fögnuðu ógurlega í leikslok.
Kiel varð í dag fyrsta liðið til þess að tryggja sér farseðilinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Kiel vann þá frækinn sigur, 28-29, á Veszprem í Ungverjalandi. Kiel vann fyrri leikinn einnig með einu marki, 32-31, og rimmuna því samtals með tveimur mörkum. Það blés ekki byrlega fyrir Kiel framan af leik. Ungverska liðið spilaði stórkostlegan varnarleik og leiddi lengstum með þremur til fjórum mörkum. Kiel náði þó að koma muninum í tvö mörk, 14-12, fyrir hlé en það segir sína sögu um varnarleikinn að liðið hélt þessu stórkostlegu sóknarliði Kiel í aðeins tólf mörkum í hálfleiknum. Úthaldið virtist þverra í síðari hálfleik hjá Vesprem og Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, var einnig mættur með lausnir. Kiel skoraði tólf mörk á aðeins 18 mínútum í síðari hálfleik. Kiel komst yfir í fyrsta skipti, 22-23, þegar 14 mínútur voru eftir af leiknum. Það forskot gaf liðið aldrei eftir heldur bættu þeir í. Kiel náði mest þriggja marka forskoti. Veszprem þjarmaði aðeins að þeim í lokin en það áhlaup kom of seint. Aron Pálmarsson átti frábæran leik fyrir Kiel. Skoraði þrjú mörk og spilaði flottan varnarleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk að þessu sinni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira