Mourinho reiddist á blaðamannafundi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. ágúst 2013 23:15 Jose Mourinho. Mynd/NordicPhotos/Getty
Jose Mourinho og Pep Guardiola háðu hatramt einvígi þegar þeir þjálfuðu Real Madrid og Barcelona á sínum tíma en Mourinho reyndi þá öll brögðin í bókinni til að fella Barcelona af pallinum. Félagarnir mætast aftur á morgun þegar lið þeirra, Bayern München og Chelsea, spila um Ofurbikar Evrópu en það er árlegur leikur milli Evrópumeistaranna frá síðasta tímabili. Það gekk oftast illa hjá lærisveinum Mourinho á móti liði Guardiola og tölfræðin er Portúgalanum því ekki hagstæð. Það fauk síðan í hann þegar blaðamaður skellti því framan í hann á blaðamannafundi í dag að Mourinho hafi aðeins unnið 3 af 15 leikjum sínum á móti Pep Guardiola. „Þessi tölfræði þín er mjög röng," svaraði Jose Mourinho reiður. „Farðu og skoðaðu hvað gerðist þegar ég var með Inter í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, þegar ég var í bikarúrslitaleiknum á Spáni og þegar við mættum þeim í spænska ofurbikarnum," bætti Mourinho við. „Kannski er þetta rétt hjá þér en það skiptir mig engu máli. Þetta snýst ekki um okkur tvo því þetta snýst um Chelsea og Bayern. Ef þú vilt spyrja út í Chelsea þá er ég hér til klukkan fjögur. Ef þú ætlar hinsvegar að spyrja spurninga um Real eða Barcelona þá er ég ekki hér," sagði Jose Mourinho.
Enski boltinn Fótbolti Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Sjá meira