Snorri Steinn kominn upp fyrir Sigga Sveins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2013 06:00 Snorri Steinn Guðjónsson hefur skoraði 92 mörk í 18 leikjum á móti Dönum eða 5,1 mark að meðaltali í leik. Mynd/Vilhelm
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi íslenska handboltalandsliðsins, komst í fyrrakvöld inn á topp fimm yfir markahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi. Snorri Steinn þurfti þrjú mörk til að jafna Sigurð Val Sveinsson og gerði gott betur því hann skoraði alls sex mörk í leiknum eða einu meira en hann hafði gert í fyrstu þremur leikjunum á HM.200 mörk í fjórða sætið Það á eftir að koma í ljós hvort Snorri Steinn komist ofar á listann en það eru heil 200 mörk í Valdimar Grímsson sem situr í 4. sætinu. Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Kristján Arason eru þeir einu sem hafa náð að brjóta þúsund marka múrinn. Það var við hæfi að Snorri Steinn náði þessum tímamótum í leik á móti Dönum sem virðast alltaf kalla það fram það besta hjá þessum 31 árs gamla leikmanni. Snorri Steinn hefur skoraði 8,4 mörk að meðaltali í fimm leikjum sínum við Dani á stórmótum og alls hafa 92 marka hans fyrir landsliðið komið í 18 landsleikjum hans við Danmörku en það gerir yfir fimm mörk að meðaltali í leik.Danir vilja eigna sér Snorra Danirnir vilja reyndar eigna sér Snorra Stein eins og við Íslendingar gerum með Hans Lindberg, hægri hornamann Dana, en Lindberg á íslenska foreldra. Móðurafi Snorra Steins er Dani og hann hefur einnig spilað stóran hluta atvinnumannaferils síns í Danmörku. Eins og er spilar hann með danska liðinu GOG. Það vakti athygli Íslendingar sem fylgdust með útsendingu danska stjórnvarpsins frá leik Íslands og Danmerkur að þeir fóru lofsamlegum orðum um „sinn" mann. Snorri Steinn spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2001 en bestu landsliðsár hans voru 2007 (121 mark í 24 leik) og 2008 (169 mörk í 31 leik) en þá skoraði hann yfir fimm mörk að meðaltali í leik. Snorri Steinn hefur náð að brjóta 10 marka múrinn í níu landsleikjum, þar af hafa fimm þeirra verið á stórmótum. Leikurinn á móti Dönum var enn fremur 46. landsleikur hans með sex mörk eða meira.209 mörkum meira en sá næsti Snorri er langmarkahæstur meðal leikstjórnenda landsliðsins en hann hefur skorað 209 mörkum meira en Geir Hallsteinsson sem er í 2. sætinu. Það má búast við að sá munur aukist talsvert því Snorri Steinn á vonandi eftir nokkur góð ár með íslenska landsliðinu.
Mest lesið Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Joshua í bílslysi þar sem tveir létust Sport Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Skynjar stress hjá Arsenal Enski boltinn „Þegar þú spilar við Gary Anderson er alltaf pláss fyrir flugeldasýningu“ Sport Semenyo vill að allt verði klárt fyrir nýársdag Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir komnir í úrslit á Sparkassen Óðinn bikarmeistari fjórða árið í röð Kolstad tapaði bikarúrslitaleiknum í vítakeppni Segir starfið í húfi hjá Alfreð Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Íslendingarnir í miklum ham fyrir EM Handarbrotinn og missir af úrslitaleiknum Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Elín Klara atkvæðamikil og sigursæl í jólaleiknum Birgir byrjaði rólega eftir jólafrí en fagnaði sigri Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Sjá meira