Þeir Jóhann og Sigurður hafa verið vinir í fjörutíu ár, leikið margoft saman og gengið í gegnum ýmislegt á ferlinum. Það var því ekkert tiltökumál að þeir léku saman í þessari persónulegu senu.
„Það er eitthvað innanmeginn sem hrjáir hann,“ segir Jóhann enn fremur um atriðið en vill lítið annað gefa upp.
Bjarni Haukur Þórsson leikstýrir, framleiðir og er handritshöfundur Afans en myndin segir Frá Guðjóni sem lifað hefur öruggu lífi. Allt í einu blasir eftirlaunaaldurinn við honum á sama tíma og að erfiðleikar koma upp í hjónabandinu og við skipulagningu á brúðkaupi dóttur sinnar. Í örvæntingu sinni í leit að lífsfyllingu og tilgangi liggur leið hans meðal annars til Spánar, í heimspekideild Háskóla Ísland og á Landspítalann.
Jóhann er ekki búinn að sjá myndina en hvetur Íslendinga til að fjölmenna í bíó.
„Ég hlakka voðalega til að sjá hana í heild sinni. Það sem ég er búinn að sjá af henni er mjög skemmtilegt en það er alvarlegur tónn í henni líka. Við gætum sagt að hún sé brosgrátleg.“