Vettvangur breytinganna Einar Benediktsson skrifar 20. febrúar 2014 07:00 Það hefur varla verið áhlaupaverk fyrir Gunnar Haraldsson og félaga hans í Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að gera úttekt á aðildarmálunum fyrir Alþingi, enda hefur það tekið sinn tíma. Nær hefði verið að kalla til alla þá sérfræðinga hins opinbera, ráðuneyta og ríkisstofnana, Seðlabankans, menntasamfélagsins og hagsmunasamtaka þjóðfélagsins sem unnið hafa að þessum samningum í fjögur ár en önnur á þessu sviði í áratugi. Löggjafarvaldið ætti að eiga hægt um vik að fá allar slíkar upplýsingar í trúnaði, gerist þess þörf.Langt ferli til skaða Tvennt stingur í augu. Það er alrangt að Ísland hljóti að undirgangast gjaldþrota stefnu ESB í sjávarútvegsmálum. Þá er það grundvallaratriði að Evrópusambandið er vettvangur ákvarðana um breytingar. Það er vissulega rétt að það er mjög til baga að ekki skyldi vera hægt að ljúka aðildarsamningunum, a.m.k. fyrir sjávarútveg og landbúnað, fyrir 2013. Í samningnum hefðu átt að vera óformleg tímamörk og samkomulag um skarpara vinnulag til að samningsniðurstöður lægju fyrir áður en gengið var til síðustu Alþingiskosninga. Ferli sem miðaðist við lönd Austur-Evrópu kallaði vafalaust á rýnivinnu laga en það átti ekki við um Ísland fremur en EES-löndin áður. Langt samningaferli, ólokið eftir fjögur ár, var sérstaklega til skaða eins og úrslit urðu í Alþingiskosningunum. Hvað sem því líður, yrðu samningsslit með því að draga umsóknina til baka núna versta áfall fyrir orðspor Íslands í sögu lýðveldisins. Við sláum ekki á þá bróðurhönd sem margir ESB-leiðtogar hafa rétt okkur.Meginkrafa um íslenskt fiskveiðistjórnunarkerfi Fullyrða má að fiskveiðistjórnunin í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni í ESB hefur mistekist. Hún hefur leitt til slíkrar ofveiði í Norðursjónum að fiskistofnar eru í stórhættu, m.a. vegna fáránlegrar reglu varðandi brottkast. Styrkir til skipasmíða og reksturs eru slíkir að flotastærðin og þar með veiðigetan er alltof mikil og útgerðin getur ekki þrifist án fjárgjafa. Markmið stefnu í sjávarútvegsmálum er að veiðar miðist við að stofnarnir séu sjálfbærir og flotinn arðbær. Alkunna er að þetta fag kunna Íslendingar mætavel og það hefur oft komið upp að slík stefnubreyting hjá ESB sé aðkallandi. Það er því meginkrafa að lögsaga okkar verði skilgreind sem sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnunarsvæði. Þessi réttindi verða varanlega tryggð í aðildarsamningnum, sem hefur sama lagagildi og stofnskrá ESB, Rómarsamningurinn og allar aðrar aðalsamþykktir sem kenndar eru við Maastricht, Nice og Lissabon. Þetta þýðir að sérstaða Íslands er óbreytanleg, því til slíks, svo fullkomlega fjarstætt sem það er, þyrfti samþykki okkar sjálfra.Hagsmunamat mælir með aðild Evrópusambandið er í eðli sínu vettvangur vegna framkvæmdar sameiginlegs, breytilegs lagagrundvallar. Um er að ræða viðbrögð við dýnamískri þróun innbyrðis viðskipta og efnahagssamstarfs og ekki síður afstöðu til breyttra samskipta út á við. Þannig urðu rafræn vöruviðskipti til breytinga á rekstri innri markaðsins rétt eins og að ný, samhæfð fjarskiptatækni tengd EUROPOL gaf tryggari landmæravörslu Schengen-ríkjanna. Þar eð ESB aðlagast breyttum aðstæðum hefur samvinnan eðlilega þróast frá þeim tíma að núverandi tengsl okkar réðust við gerð samningsins um Evrópska efnahagssvæðið frá 1993. Í áföngum hefur ESB stækkað og stofnað myntbandalag með upptöku evru, nú lögeyrir 14 ríkja. sem hefur staðist álag bankakreppunnar. ESB hefur skilað sínu í feikimiklum vexti og velmegun. Það eru hrakspár einar að vegna ólíks þróunarstigs, tungumála og sögu sé myntbandalagið dauðadæmt. Reynslan sýnir hið gagnstæða og að ríkin finna styrk og sjá betri framtíð í þessari samvinnu. Að gerðum aðgengilegum aðildarsamningi mælir mat hagsmuna okkar með aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta er ekki síst vegna þess að næsta þróunarstig Evrópusamvinnunnar er svokallaður fríverslunarsamningur við Bandaríkin (Trans Atlantic Trade and Investment Pact). Væri ekki rétt að taka þetta fyrir sem aðalmál framtíðar innan Evrópusambandsins? Það er einmitt þetta nýja fríverslunarsvæði sem er lífshagsmunamál fyrir okkur, ekki síst vegna erlendra fjárfestinga eftir að höftum verður aflétt. Vonandi sjá menn ekki lausn varðandi erlent fjármagn á Íslandi í kínverskum framkvæmdalánum og gjafafé að hætti Afríkuríkja. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Benediktsson Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Sjá meira