Varasöm tímamót Einar Benediktsson skrifar 23. maí 2014 07:00 Forseti Eistlands, Toomas Hendrik Ilves, lét svo ummælt: „Allt sem skeð hefur síðan 1989 hefur mátt sjá fyrir á þeirri grunnforsendu að landamærum Evrópu verður ekki breytt með valdi, sem nú hefur verið fleygt út.“ Sú skoðun hefur verið útbreidd að með því að ógn myndi aldrei að stafa af Rússlandi væri varnarhlutverk NATO úr sögunni. Í ljós kom hið gagnstæða þegar Pútín hóf aðgerðir í Úkraínu. En samheldni og virðing Atlantshafsbandalagsins hafði laskast með stríðsaðgerðunum í Afganistan, Írak og Líbíu, sem voru feikilega kostnaðarsamar í mannslífum og fjárútlátum en án tilætlaðs árangurs. Var það tilgangur varnarbandalags að gerast alheimslögregla gegn hryðjuverkum? Aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins fjölgaði úr 16 í 28 við að taka við fyrrverandi félagsríkjum Rússa. Stækkunarferlið, segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, að sé ný útgáfa af innilokunarstefnunni gömlu. Það er skiljanlegt að Rússar taki það óstinnt upp að veldi þeirra hefur skroppið saman við að leppríkin orðin lýðfrjáls tóku sínar ákvarðanir í alþjóðlegu samstarfi. En hvað kemur Rússum það eiginlega við? Það minnir þann sem þetta skrifar á fyrri tíð þegar hann var sendiherra gagnvart Póllandi og afhenti Lech Walesa, forseta og þjóðhetju, trúnaðarbréf sitt. Það var 1991 og voru Pólverjar ekki búnir að rjúfa svo tengsl sín við Rússa að þeir gætu gerst aðilar að NATO og ESB, svo sem síðar varð. Þetta afar eftirminnilega samtal snerist um lítið annað en vestræna samvinnu. Walesa tók fram með miklum þunga að Pólverjar einir réðu því að ganga sem fyrst í NATO og þá ESB. Í orðum hans lá að þeir þyldu enga afskiptasemi Rússa af sínum málum. Það stóð að sjálfsögðu ekki á því að heita Pólverjum fulltingi okkar.Slakað á boganum Nú þurfa NATO-ríkin sem fyrr að standa þétt saman. Við hljótum að leggja áherslu á öryggi Íslands en þar hefur verið slakað á boganum. Taka ber til umræðu hina miklu hernaðaruppbyggingu Rússa á norðurslóðum, innan NATO og við Rússa. Öryggi Íslands hvílir ekki hvað síst á varnarsamningnum við Bandaríkin og samstarfi við þá í NATO. Á ríkisleiðtogafundi NATO í Bretlandi í september verður vonandi áréttað að eina markmið bandalagsins er að tryggja öryggi þeirrar Evrópu sem er „heil, frjáls og í friði“. Það er markvert að vegna þróunarinnar í Úkraínu gerðu Finnar í apríl sögulegan samning við NATO um hernaðarsamvinnu og varnarmál. Verður Finnum veittur liðsauki komi til árásar og fyrirhuguð eru kaup á nýjum orrustuþotum. Svíar og Finnar lýstu því yfir í maí að varnarsamstarf þeirra yrði aukið. Aukið átak í varnarmálum af hálfu Evrópulanda verður væntanlega átakamál vegna brotthvarfs Bandaríkjanna. Íslendingar þurfa að sýna hug í verki og styðja loftrýmisgæslu NATO af fremstu getu. Það varðar öryggi landsins að Kínverjar sækjast eftir aðstöðu hér sem sýnilegum lið í lengri tíma fyrirætlunum. Á heimaslóðum leita þeir til yfirráða yfir auðlindum í Suður-Kínahafi í andstöðu við strandríkin. Tækið í þeim yfirgangi er hið risavaxna olíuríkisfyrirtæki CNOOC, sem hefur nú komið sér upp fyrsta borpallinum, sem starfsmaður fyrirtækisins kallaði „okkar færanlega þjóðarlandsvæði”. Það er nú lengst suður af Kína við smáeyju sem Víetnam gerir tilkall til. Þessar einhliða ráðstafanir Kínverja um yfirráð á opnu hafi hafa leitt til þess að Filippseyingar hafa samið við Bandaríkin um að opna þeim aftur hina miklu Subic Bay-herstöð.Leikhús fáránleikans Minna má á að við höfum þegar valið CNOOC sem 60% samstarfsaðila á Drekasvæðinu, íslenska hlutanum við Jan Mayen. Inn í umræðuna um Kína hefur blandast misskilningur varðandi fríverslunarsamning við þetta hráefna-, orkugráðuga land sem náinn samstarfsaðila og fjárfesti. Stærð og landlega slíkra bandamanna, sem kann að vera draumsýn einhverra, er aðeins efni í leikhús fáránleikans. Mál manna er að illmögulegt sé að átta sig á þróuninni erlendis og ekki síður stefnu Íslands, sé hún þá yfirleitt nokkur. Þar ræður miklu óvissan um stöðuna varðandi Ísland og ESB, sem meirihluti landsmanna vill tjá sig um í þjóðaratkvæði. Það mál birtist mér sem deilan um aðildina að NATO, minnisstæð okkur eldri kynslóðarfólki. Þá tók Sjálfstæðisflokkurinn þá afgerandi forystu sem leiðtogar hans gátu veitt. Svo var einnig um aðildina að EFTA og EES-samninginn, í samstarfi við Alþýðuflokkinn. Sjálfstæðisflokkur sá sem nú ber það nafn á lítið sammerkt með forveranum nema nafnið. Forseti Íslands hefur haldið fram þýðingu hins íslausa Norðurskauts í friðsæld og án vopnaðrar viðveru undir stjórn Norðurskautráðsins. Væri vel að svo sé. En sú mikla hervæðing sem Pútín forseti boðar á skömmum tíma á heimskautssvæðum Rússlands minnir höfundinn á fyrri tíð þegar hann var fastafulltrúi í NATO í kalda stríðinu. Það sem nú er tilkynnt í Moskvu eru auk þess miklu þróaðri hergögn á láði, legi og lofti. Varnarleysi hefur ekki gagnað neinu ríki ef hættuástand brestur á en varnirnar tryggðu áður friðinn. Það var galdurinn við árangursríkt samstarf í NATO en reyndar ekki án fyrirhafnar og fjárútláta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Benediktsson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Sjá meira